Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Page 2
Leiðbeiningar til greinahöfunda
Reglur ritnefndar
Tímarit um menntarannsóknir er vettvangur fyrir fræðilega umræðu um menntarannsóknir a Íslandi. Þær 1.
kröfur eru gerðar til greinahöfunda að þeir lúti viðteknum venjum um fræðilega framsetningu efnis og vis-
indaleg vinnubrbrögð.
Öllum er heimilt að senda efni ritið. Allt efni sem tengist menntun og rannsóknum á menntamálum með 2.
einum eða öðrum hætti metur ritnefnd og skoðar með tilliti til útgáfu.
Meginregla er að innsendar greinar hafi ekki birst annars staðar. Undantekning er gerð frá þessari reglu 3.
ef ritnefnd telur greinar sem birst hafa í viðurkenndum erlendum fagtímaritum eftirsóknarverðar til birting-
ar á íslensku.
Fyrsti höfundur greinar er talinn aðalhöfundur hennar og ber ábyrgð á samskiptum við ritstjóra og vænt-4.
anlega lesendur.
Greinar geta verið hvort sem er á íslensku eða ensku. Ef grein er á íslensku er áhersla lögð á að öll 5.
fræðiheiti séu á íslensku og að málfar og framsetning efnis sé samkvæmt íslenskum málvenjum.
Ákvörðun um birtingu greina byggist á faglegri umsögn a.m.k. tveggja ritrýna um gæði rannsóknar eða 6.
fræðilegrar greinar og viðbrögðum höfundar við athugasemdum. Allt innsent efni fær faglega umsögn og
athugasemdir að minnsta kosti tveggja aðila sem ritnefnd treystir til verksins.
Umsögn fylgir jafnframt ákvörðun um birtingu eða synjun. Í vissum tilvikum getur grein verið sampykkt 7.
með fyrirvara um að brugðist sé við faglegum ábendingum. Eftir að greinarhöfundur hefur brugðist við
athugasemdum er grein hans lesin yfir að nýju og honum sendar nýjar abendingar, fyrri ábendingar ítrek-
aðar eða hann látinn vita að grein hans sé endanlega samþykkt með áorðnum breytingum.
Greinum sem ekki standast kröfur um framsetningu og efnistök hafnar ritnefnd hvort sem um er að ræða 8.
innsendar greinar eða greinar sem fólki hefur verið boðið að skrifa í blaðið.
Ritnefnd áskilur sár rétt til að breyta orðalagi eða stafsetningu ef nauðsyn krefur við lokafrágang ritsins.9.
Skilafrestur efnis í timaritið er 1. maí ár hvert. Handrit sendist ritstjóra (sjá http://www.fum.is).10.
Framsetning efnis
Handritum skal skila í rafrænu formi til ritstjóra. Þau skulu vera unnin í Word með leturgerð Times New 1.
Roman 12 punkta. Línubil skal vera 2 og jafnað til vinstri. Fyrirsagnir skulu vera í Times New Roman 14
punkta og aðeins jafnaðar til vinstri. Lengd handrits skal vera að hámarki 9000 orð (um 25 bls.). Að öðru
leiti skal fylgja útgáfureglum APA1.
Nauðsynlegt er að höfundar gefi til kynna í handriti hvar þeir vilja að töflur og myndir séu staðsettar í 2.
texta. Sérstök athygli er vakin á því að vitna skal til skírnar- og föðurnafns íslensks höfundar en ekki
föðurnafns eingöngu eins og gildir um erlenda höfunda. Jafnframt skal raða íslenskum höfundum í heim-
ildaskrá samkvæmt skírnarnafni þeirra.
Í greinum á íslensku er ætlast til þess að beinar tilvitnanir úr erlendum tungumálum séu þýddar á 3.
íslensku.
Höfundum er bent á að geta þess í neðanmálsgrein ef greinin er byggð á prófritgerð höfundar eða ef 4.
vinnan við verkefnið hefur hlotið styrki.
Myndum skal skilað í sér skjali í upprunalegu formati (t.d. exel í svart/hvítu). Sá texti sem höfundur vill að 5.
standi við mynd, ásamt númeri myndar, fylgi myndinni í öðru skjali.
Stafabil í texta skulu að jafnaði ekki vera fleiri en eitt. Þegar þau þurfa að vera fleiri (t.d. við töflugerð) 6.
skal nota dálkalykil á lyklaborði.
Greinum á íslensku skal fylgja ágrip sem er um 300 orð að lengd. Þeim skal og fylgja ágrip á ensku 7.
(abstract) sem er um 600 orð að lengd. Því má skipta í undirkafla. Greinum á ensku skal fylgja ágrip á
ensku sem er um 300 orð að lengd og ágrip á íslensku sem er um 600 orð að lengd.
Öllum greinum skal fylgja um 60 orða texti undir fyrirsögninni „Hagnýtt gildi“. Þar skulu höfundar tilgreina 8.
á hvern hátt greinin gæti nýst í stefnumótun eða starfi á vettvangi menntamála.
Öllum greinum skal fylgja texti um höfundana á íslensku og ensku (60-70 orð á hvoru máli). Þar skal til-9.
greina menntun höfunda og núverandi starf. Einnig um rannsóknarsvið þeirra og netfang.
Heiti greinar skal fylgja á ensku. Nöfnum höfunda skal fylgja heiti þeirrar stofnunar sem þeir starfa hjá á 10.
íslensku og ensku.
1 Miðað er við reglur APA í framsetningu efnis, tilvitnana, tilvísana og heimildaskrár. Þær má finna t.d. í Publication Manual
of the American Psychological Association, (5th ed. 2001); Handbók Sálfræðiritsins sem Sálfræðingafélag Íslands gefur út,
Gagnfræðakveri handa háskólanemum sem Háskólaútgáfan gefur út og fleiri ritum.