Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Síða 11
9
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
Í fræðilegri umræðu er oft gerður
greinarmunur á innri (e. intrinsic) og ytri (e.
extrinsic) áhugahvöt (Ryan og Deci, 2000),
eða „aðkvæmum“ og „sjálfkvæmum“ áhuga
eins og þetta er stundum kallað. Samkvæmt
Ryan og Deci táknar það að vera áhugasamur
(e. motivated) að vera staðráðinn í að
framkvæma, aðhafast eða grípa til ráðstafana
í þágu tiltekins markmiðs. Slíkur ásetningur
getur stafað annaðhvort af innri áhugahvöt,
þ.e. því að viðkomandi telur athöfnina vera
mikilvæga og gefandi og því skemmtilega,
ellegar að viðkomandi leggur mest upp úr
útkomu athafnarinnar og fyllist metnaði, vill
t.d. ná góðum einkunnum eða vera bestur.
Þeir Ryan og Deci telja að innri áhugahvöt
sé órjúfanlegur þáttur þess að vera lifandi
manneskja, þ.e. hverjum heilbrigðum einstakl-
ingi sé forvitni í blóð borin og einnig það að
vilja skoða og læra á umhverfi sitt. Þeir telja
að slíkt nám sé umbun í sjálfu sér sem megi
líta á sem grundvöll þess að við vöxum og
þroskumst sem einstaklingar.
Deci, Koestner og Ryan (2001) halda því
fram að sterk, eðlislæg tilhneiging mannsins
til að reyna að ná stjórn á og sigrast á
óhagstæðum aðstæðum, sem hindra hann
í að ná markmiðum sínum, liggi að baki
innri áhugahvöt. Þeir telja að einnig liggi
að baki eðlislæg þörf einstaklingsins til
sjálfsákvörðunar (e. self-determination). Áhrif
umbunar á innri áhugahvöt fer að mati þeirra
félaga eftir því hvaða áhrif umbunin hefur á
upplifun einstaklingsins á eigin hæfni og stjórn
hans á aðstæðum. Því skora þeir á skólafólk að
finna leiðir til að styrkja innri áhugahvöt. Í
því sambandi stinga Deci o.fl. (2001) upp á
að stuðst sé við fjölbreyttar kennsluaðferðir,
að námskostum sé fjölgað og að nemendum
séu fengin hæfilega þung viðfangsefni, þ.e. á
mörkum þess sem þeir ráða við hverju sinni.
Rannsóknir benda til þess að námsáhugi
breytist hvað mest þegar nemendur fara af
barnaskólastigi yfir á miðskólastig, þ.e. að
um tólf ára aldurinn fari hann minnkandi
(Anderman og Midgley, 1997; Eccles o.fl.,
1993). Samkvæmt Eccles o.fl. vilja margir
skýra þennan dvínandi áhuga út frá víðtækum
líf- og sálfræðilegum breytingum nemenda á
þessu aldursskeiði. Eccles o.fl. telja þó að um
einföldun sé að ræða þar sem rannsóknir þeirra
og annarra sýni að veigamiklar breytingar verða
á námsumhverfi nemenda á miðskólastigi. Að
þeirra mati breytast um leið kennsluhættir
mjög mikið, þ.e. þeir verða meira stýrandi
en áður og það geri að verkum að námsáhugi
margra nemenda minnki.
Snowman og Biehler (2006) benda á að
þennan dvínandi áhuga beri að skoða í ljósi
þess að einmitt á þessum árum fleygi vitsmuna-
og félagsþroska nemenda ört fram, sem gerir
þá færari en áður um að hafa mótaðar skoðanir
og áhrif á námsaðstæður sínar.
Í samantekt Bong (2008) á rannsóknum
á námsáhuga kemur fram að áhugi barna
mótist meira en áður var talið af því félagslega
umhverfi sem þau búa við. Hún segir að börn
séu t.d. mjög næm á væntingar foreldra og
kennara og það móti tilfinningu þeirra fyrir
eigin getu, hvaða markmið séu æskilegri en
önnur og hvaða viðfangsefni séu þess virði
að taka sér fyrir hendur. Rannsóknir hennar
hafa beinst að því að kanna sál- og félagslegt
umhverfi nemenda, þ.e. mat þeirra á aðstæðum
sínum. Hún telur tengsl nemenda, foreldra
og kennara hafa mikið að segja um áhuga
nemenda, þ.e. góð tengsl stuðli að meiri áhuga
en tengsl sem einkennast af spennu, átökum og
óraunhæfum væntingum.
Anderman og Midgley (1997) segja að
margar rannsóknir bendi til þess að áhugi
nemenda á námsgreinum sé breytilegur og oft
kynbundinn. Þau segja sumar rannsóknir benda
til þess að drengir hafi meiri áhuga á stærðfræði
en stúlkur en þær hafi jafnan meiri áhuga
á tungumálum. Þau benda á að niðurstöður
rannsókna sýni að áhugi nemenda minnki við
upphaf miðskólastigs en óljóst sé hvort það
eigi við um bæði kynin eða eingöngu drengi.
Þau segja að við upphaf miðskólastigsins dragi
meira úr námsáhuga hjá getumeiri nemendum,
sem jafnframt eru áhugasamir um stærðfræði,
en þeim getuminni. Þau segja rannsóknir sýna
að almennt hafi breytingar í námsumhverfi
Námsáhugi nemenda í grunnskólum