Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 31
29
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
Morphew, 1998; Jón Torfi Jónasson, 2003,
2004a; Neave, 1979).
Hér er litið á bóknámsrek sem hægfara
ferli sem skapast af aðgerðum ólíkra en
tengdra hagsmunaaðila, svo sem ríkisins,
háskólastofnana, millistofnana, fagstétta og
nemenda. Fræðimenn hafa smám saman
greint hugtakið bóknámsrek í nokkra yfir- og
undirflokka, sjá 1. mynd hér fyrir neðan.
Kerfisrek (e. system drift) vísar til kerfis-
breytingar sem felst í því að kerfið verður líkara
háskóla en kerfið sem horfið er frá (Neave,
1979; Kyvik, 2004; Gyða Jóhannsdóttir, 2007).
Annar flokkurinn, stofnanarek (e. institutional
drift), lýsir þeirri tilhneigingu stofnana sem
ekki eru háskólar að sækjast eftir virðingarstöðu
háskóla (Neave, 1979; Morphew, 2000; Kyvik,
2004; Jón Torfi Jónasson, 2004a; Gyða
Jóhannsdóttir, 2007). Hér er litið svo á að
stofnanareki megi skipta í tvo undirflokka:
1. Kennara-/deildarek (e. faculty drift) lýsir
sókn einstakra kennara í hefðbundin
viðmið háskóla. Þetta getur einnig átt við
um deildir, til dæmis þegar deildir ákveða
að ráða frekar kennara með doktorsgráðu
en kennara sem annars er mjög hæfur til
starfsins sökum þekkingar á starfsvettvangi
(Kyvik, 2004; Jón Torfi Jónasson, 2004a).
2. Námskrárrek (e. curriculum drift) vísar
til þess að námskrá starfsmenntunar sem
ekki er á háskólastigi verður æ fræðilegri
og bóklegri, þ.e.a.s. færist af vettvangi inn
í skólastofnanir (Neave, 1979; Jón Torfi
Jónasson, 2003, 2004a).
Þriðji yfirflokkurinn, nemendarek (e. drift
of the student body), er sú tilhneiging
nemenda að kjósa í sívaxandi mæli há-
skólanám í stað starfsnáms á framhalds-
skólastigi. Jón Torfi Jónasson (2003, 2004a)
hefur fjallað ítarlega um þessa tegund
bóknámsreks.
Í þessari grein er fjallað um kerfisrek og
stofnanarek.
Kerfisrek og stofnanarek er nátengt skipulagi
háskólastigsins. Scott (1995) hefur flokkað
ólík háskólakerfi samkvæmt fimmskiptu
flokkunarkerfi. Kyvik (2004) hefur útfært
þetta flokkunarkerfi nánar og notað það til
þess að greina skipulag háskólakerfa allmargra
þjóða, þar á meðal Norðurlanda að Íslandi
undanteknu. Í 1. töflu hér á eftir er lýsing á
flokkunarkerfi Scotts (1995) og nánari útfærslu
Kyviks (2004) á kerfinu.
Flokkunarkerfi Scotts er að vísu nokkur
einföldun þar sem það byggist á formlegu
skipulagi háskólastigsins í allmörgum löndum
sem eru menningarlega og menntapólitískt ólík.
Sjálfur leggur Scott áherslu á að flokkunar-
kerfið taki ekki fullt tillit til menningarmunar
landanna. Stjórnvöld skipuleggja ekki háskóla-
stigið samkvæmt tilteknu flokkunarkerfi. Þvert
á móti ráða menningarlegar og menntapólitískar
aðstæður í viðkomandi landi miklu um það
hvernig menntakerfið þróast. Ég held því fram
að flokkunarkerfið sé í raun á tveim þrepum,
þ.e.a.s. formlegu þrepi sem vísar til laga og
reglugerða um menntakerfið, og svo óformlegu
þrepi, en þar er átt við óformleg einkenni
kerfisins; í raun breytingar sem eiga sér stað
án þess að lagaramminn breytist. Kerfið er hins
vegar gagnlegt við að bera saman breytingar á
háskólakerfi landa yfir langan tíma og sjá hvert
stefnir.
Ég hef rennt stoðum undir þá skoðun (Gyða
Jóhannsdóttir, 2006) að flokkunarkerfi Scotts
sé nátengt hugtakinu bóknámsrek og að það
endurspegli bóknámsrek hvað kerfi og stofnanir
Leiðin liggur í háskólana – eða hvað?
1. mynd. Flokkun bóknámsreks í yfir- og
undirflokka.
Bóknámsrek
Kerfisrek Stofnanarek
Kennara-/deildarek Námskrárrek
Nemendarek