Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Síða 34
32
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
Mynd 2 sýnir að tilhögun háskólastigsins
er ólík eftir löndum. Tvíundakerfi hefur verið
tekið upp í Finnlandi, Noregi og Danmörku en
á mismunandi tíma. Svíþjóð og Ísland eru með
sameinað kerfi en Ísland tók það upp tuttugu
árum síðar en Svíþjóð og hleypur formlega
yfir millikerfi að því er virðist. Ekki er þó víst
að þetta sé raunin þegar óformlega þróunin
er skoðuð sérstaklega og verður fjallað um
það síðar. Þegar þetta er ritað hafa verið
lagðar fram tillögur í Noregi sem miða að því
að breyta norska tvíundakerfinu í sameinað
kerfi (NOU, 2008). Myndin sýnir einnig að
kerfisrek hefur átt sér stað í öllum löndunum,
þ.e.a.s. það kerfi sem tekið er upp stendur nær
háskólunum en kerfið sem horfið er frá.
Kerfisbreyting ein og sér segir þó ekki alla
söguna heldur þarf að skyggnast á bak við
tjöldin og kanna hvaða þróun hefur átt sér
stað, bæði hvað varðar kerfi og stofnanir. Til
glöggvunar er hér yfirlit yfir heiti stofnana í
norrænum háskólakerfum, sjá 3. mynd. hér á
eftir.
Mynd 3 sýnir að sama kerfisheitið felur í sér
ólíkt fyrirkomulag og þróun kerfisins. Í Svíþjóð
eru tvenns konar stofnanir í sameinuðu kerfi,
universiteter og högskolor, enda hefur oft verið
talað um sænska kerfið sem dulið tvíundakerfi.
Í Danmörku er professionshøjskole nýjasta
heitið á millikerfinu – áður hét það CVU og þar
áður seminarier. 3. mynd sýnir því einnig að
heiti millistofnana eru ólík eftir löndum.
Hér á eftir er gerð örstutt grein fyrir
kerfisþróun og bóknámsreki í hverju landi
fyrir sig.
Tvíundakerfin í Finnlandi, Noregi og
Danmörku
Í finnska tvíundakerfinu eru annars vegar
hefðbundnir háskólar og sérstakir skólar með
stöðu háskóla og hins vegar tækniskólar (e.
polytechnics). Um miðjan áttunda áratuginn
útvíkkuðu Finnar háskólastigið; stækkuðu þá
háskóla sem fyrir voru og stofnuðu nýja. Í lok
níunda áratugarins varð ljóst að háskólarnir
gátu ekki tekið við öllum nemendum sem
luku stúdentsprófi, miðað við þann ramma
sem þeim var settur; háskólanám var einnig
mjög langt þar sem Finnar lögðu B.A. gráðu
niður í lok áttunda áratugarins og höfðu
aðeins meistaragráðu á háskólastiginu. Auk
þess þóttu möguleikar starfsmenntaskólanna á
2. mynd. Flokkun á skipulagi æðri menntunar á Norðurlöndum árið 2008 skv. flokkunarkerfi Scotts (1995)
og útfærslu Kyviks (2004) á kerfinu, og yfirlit yfir helstu breytingar.
Háskólaráðandi Tvíhliðakerfi Tvíundakerfi Sameinað kerfi
kerfi
Finnland 1992
Noregur 1994 ............................ ?
Danmörk 2000
Svíþjóð 1977
Ísland 1997
Tvíundakerfi Sameinað kerfi
Danmörk Universitet Professionshøjskole
Noregur Universitet Højskole
Finnland Universitet Polytechnics
Svíþjóð Universitet − Högskola
Ísland Háskóli
3. Mynd. Yfirlit yfir heiti stofnana samkvæmt norrænum háskólakerfum 2008
Gyða Jóhannsdóttir