Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Page 40
38
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
framhaldsskóla er flest sem bendir til
þess að sagan endurtaki sig. Um nokkurt
skeið hefur verið starf rækt nám að loknu
framhaldsskólaprófi í kerfinu eins og það er
nú. Fyrst má nefna starfrækslu meistaranáms
ofan á fjögurra ára sveinspróf í Iðnskóla
Reykjavíkur og Fjöltækniskólanum svo og
öðrum fram haldsskólum sem eru með nám
til sveinsprófs (Starfsnáms nefnd, 2006;
Frumvarp til laga um framhaldsskóla, 2008).
Samkvæmt upplýsingum frá skólameistara
Fjölbrautaskólans við Ármúla hefur
heilbrigðisskóli þess skóla boðið sjúkraliðum
að bæta við sig námi í hjúkrunarfræði aldraðra.
Nám í geðhjúkrun fyrir sömu starfsstétt er nú
í mótun en auk sjúkraliðamenntunar þurfa
nemendur að hafa góða kunnáttu í ensku og
raungreinum. Allur þorri nemenda í námi fyrir
læknaritara er með stúdentspróf og það sama
á við um nemendur sem eru í lyfjatækninámi
(munnleg heimild, febrúar 2008).
Samkvæmt upplýsingum frá skólameistara
Menntaskólans í Kópavogi eru inntökuskilyrði
í leiðsögumannaskóla Menntaskólans í Kópa-
vogi stúdentspróf en auk þess þurfa nemendur
að þreyta inntökupróf í tungumálum. Frá
hausti 2007 er í sama skóla starfrækt fyrsta
ár í hótelstjórnun til B.A. prófs og er það í
samvinnu við University Centre Cesar Ritz
í Sviss (munnleg heimild, febrúar 2008).
Talsmenn skólanna hafa átt frumkvæði að
þessum námsbrautum í samvinnu við fulltrúa
atvinnulífsins en auðvitað með vitund
menntamálaráðuneytisins. Þetta eru ný dæmi
um það hvernig framhaldsskólar þróast innan
ramma framhaldsskólalaganna og teygja
námsframboð sitt í áttina að háskólunum.
Miðað við það sem áður hefur verið rakið um
sérskólana á sjöunda, áttunda, níunda og tíunda
áratugnum er enginn vafi á því að þetta eru
skýr merki um bóknámsrek og með talsverðum
rétti má telja þetta nám á millistigi þó að það sé
ekki formlega flokkað þannig.
Lagalega staðfestingu þessara námsbrauta
3. tafla. Þróun í starfsemi háskóla 2001−2008. Skyggðir reitir eru þar sem „nei“ hefur breyst í „já“.
2001 2008
Stofnun
Rann-
sóknir
B.A. M.A Dr.gr. Stofnun
Rann-
sóknir
B.A. M.A. Dr.gr.
Háskóli Íslands (HÍ) já já já já HÍ já já já já
Kennaraháskóli Íslands (KHÍ) já já já já KHÍ já já já já
Háskólinn á Akureyri (HA) já já já nei HA já já já já
Tækniskóli Íslands (TS) nei já nei nei HR+TS* já já já Já**
Háskólinn í Reykjavík (HR) nei já nei nei LHÍ já já nei nei
Listaháskóli Íslands (LHÍ) nei já nei nei LBH já já já já
Landbúnaðarháskólinn að
Hvanneyri (LBH)
já já nei nei VHB já já já nei
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
(VHB)
nei já nei nei HH*** já já já nei
*Tækniháskólinn sameinaðist Háskólanum í Reykjavík árið 2005.
**Háskólinn í Reykjavík mun starfrækja doktorsnám í tölvunarfræðum haustið 2008.
***Hólaskóla var heimilað að starfrækja nám til B.A. gráðu frá 2003 og fékk lagalega stöðu háskóla árið
2007; Háskólinn að Hólum.
Gyða Jóhannsdóttir