Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Síða 52
50
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
ákvarðanatöku einstaklingsins og þeim
mikilvægu tengslum sem eru á milli þekkingar
hans á sjálfum sér og vinnumarkaði og færni
til að taka ákvarðanir um nám og störf (Sharf,
2006, sjá nánar í Sampson o.fl., 2004).
Þróun spurningalista um hamlandi hugsanir
við val á námi og störfum
CTI-spurningalistinn var þróaður til að meta
hvers konar hamlandi hugsanir komi fram í
ákvarðanatöku um nám og störf hjá ráðþega og
segja þannig til um hversu tilbúinn viðkomandi
er að taka ákvörðun (Sampson o.fl., 2000;
Sampson o.fl., 2004). Við þróun CTI-listans
bjuggu höfundar til safn atriða sem byggjast
á skilgreiningum þeirra á hamlandi hugsunum
í tengslum við öll innihaldssvið pýramídans
(Peterson o.fl., 1991) og raunverulegum
staðhæfingum ráðþega sem höfundar höfðu
veitt ráðgjöf (Sampson, Peterson, Lenz,
Reardon og Saunders, 1996b). Atriðin voru
lögð fyrir háskólanema og leiddi þáttagreining
í ljós að hamlandi hugsanir væri hægt að
greina í þrjá meginþætti. 1. Ringulreið
(e. Decision Making Confusion; DMC)
endurspeglar erfiðleika einstaklings við
að hefja ákvarðanatökuferlið eða halda
því gangandi. Ástæðurnar geta verið kvíði
eða aðrar tilfinningar sem tengjast því að
taka ákvörðun um nám og starf eða að
einstaklinginn skorti skilning á því hvernig
slíkar ákvarðanir eru teknar. Kvarðinn tengist
erfiðleikum á boðskipta- (C), greiningar- (A)
og samantektar- (S) sviðum CASVE-hringsins.
2. Skuldbindingarkvíði (e. Commitment
Anxiety; CA) vísar til ótta eða kvíða sem
fylgir erfiðleikum við að koma ákvörðun um
nám eða starf í framkvæmd. 3. Togstreita (e.
External Conflict; EC), endurspeglar erfiðleika
einstaklingsins við að halda jafnvægi á milli
eigin skoðana og annarra á upplýsingum um
sjálfan sig og störf. Í þeim tilfellum getur
viðkomandi orðið tregur til að axla ábyrgð á
eigin ákvörðunum. Kvarðarnir ringulreið og
togstreita tengjast báðir matsstigi (V) CASVE-
hringsins (Sharf, 2006).
2. mynd. Ferli við lausn á vanda og ákörðunartöku (The five stages of the CASVE cycle).
Úr Peterson / Sampson, Jr. / Reardon. Career Development and Services, 1E. © 1991 Wadsworth,
hluti af Cengage Learning, Inc. Endurprentað með leyfi. www.cengage.com/permissions.
Execution
(forming
strategies)
Communication
(identifying a gap)
External or internal
problem signals
Analysis
(interrelating
problem components)
Synthesis
(creating likely
alternatives)
Valuing
(prioritizing
alternatives)
María Dóra Björnsdóttir, Sif Einarsdóttir og Jónína Kárdal