Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 55
53
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
hófst í september árið 2006. Var CTI-listanum
dreift til allra nemenda sem mættir voru í
kennslustund í þeim fjórtán námskeiðum sem
dregin höfðu verið af lista yfir öll námskeið
sem kennd voru við HÍ haustið 2006. Á
sér blaði fremst var bréf þar sem tilgangur
rannsóknarinnar var kynntur. Rannsóknin
var einnig kynnt í stuttu máli munnlega og
þátttakendur hvattir til að lesa vel leiðbeiningar
á fremstu síðu CTI-listans áður en þeir svöruðu.
Jafnframt var útskýrt að svör þátttakenda
væru nafnlaus, það væri ekki skylda að svara
listanum og þeir sem vildu ekki svara voru
beðnir um að skila listanum auðum.
Gagnasöfnun í úrtaki ráðþega stóð yfir frá
lokum október 2006 fram í byrjun maí 2007.
Starfsmaður í móttöku bað þá sem leituðu
til Náms- og starfsráðgjafar Háskóla Íslands
á þessu tímabili, og merktu við Námsval
á skráningarblaði NSHÍ, um að svara CTI-
listanum ef hann taldi þá þurfa frekar á ráðgjöf
en hagnýtum upplýsingum að halda, svo
sem um val á námskeiðum. Tekið var fram
munnlega að ekki væri skylda að taka þátt
í rannsókninni og viðkomandi beðinn um
að setja listann óútfylltan í kassa ef hann
vildi ekki svara. Sama kynningarbréf fylgdi
listanum í þessari gagnasöfnun og þeirri fyrri.
Auk CTI-spurningalistans voru þátttakendur
beðnir um að svara skimunarlista með fjórum
spurningum um það hvers vegna þeir væru að
koma í viðtal til náms- og starfsráðgjafa.
Niðurstöður
Áreiðanleiki listans í heild og undirkvarðanna
þriggja var fyrst kannaður og þeir atriðagreindir.
Til að kanna réttmæti var þáttabygging (e.
factor structure) svara metin og skoðað hvort
hún væri sambærileg við upprunalegu útgáfuna
(Sampson o.fl., 1996b). Einnig var athugað
hvort CTI-listinn hefði greiningargildi og
greindi á milli svara stúdenta og ráðþega eins
og hann var hannaður til að gera (Sampson
o.fl., 1996b).
Áreiðanleiki
Byrjað var á að skoða dreifingu svara á öllum
atriðum í hvorum hópi fyrir sig, almennum
stúdentum og ráðþegum. Stúdentar nýttu alla
svarmöguleika við öll atriði CTI-listans nema
við atriði númer 9, 18 og 24, þar sem enginn
merkti við mjög sammála. Ráðþegar merktu
einnig við alla svarmöguleika á atriðum CTI-
listans nema við atriði númer 15, 18 og 23,
þar sem enginn merkti við mjög sammála.
Áreiðanleiki var metinn með því að reikna innri
áreiðanleika (Cronbach´s Alfa) á heildarkvarða
CTI og fyrir undirkvarðana. Eins og sjá má
í 1. töflu. reyndist áreiðanleikinn yfir 0,90
á kvarðanum í heild og á undirkvarðanum
ringulreið en öllu lægri á hinum tveimur
kvörðunum, eins og búist var við, þó aldrei
lægri en 0,76.
Atriðagreining leiddi í ljós að í hópi stúdenta
Íslensk þýðing og þáttabygging CTI
1. tafla. Áreiðanleiki og fylgni atriða við heildarskor CTI-spurningalistans og undirkvarða hans
Kvarði Fjöldi atriða Innri áreiðanleiki
Fylgni milli
atriða
Fylgni atriða við
eigin kvarða
Stúdentar (n = 314)
CTI 48 0,96 0,01 - 0,74 0,30 - 0,76
Ringulreið (DMC) 14 0,92 0,21 - 0,74 0,43 - 0,75
Skuldbindingarkvíði (CA) 10 0,85 0,11 - 0,61 0,30 - 0,70
Togstreita (EC) 5 0,76 0,28 - 0,54 0,43 - 0,61
Ráðþegar (n = 93)
CTI 48 0,95 - 0,22 - 0,71 - 0,01 - 0,77
Ringulreið (DMC) 14 0,90 0, 07 - 0,68 0,34 - 0,76
Skuldbindingarkvíði (CA) 10 0,82 - 0,05 - 0,51 0,26 - 0,68
Togstreita (EC) 5 0,76 0,03 - 0,60 0,24 - 0,68
CTI = Career Thoughts Inventory; DMC = Decision Making Confusion; CA = Commitment Anxiety; EC =
External Conflict.