Gerðir kirkjuþings - 1997, Síða 16
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
Um hæfi nefhdarmana skv. 11. og 12. gr. gilda ákvæði II. kafla stjómsýslulaga
nr. 37/1993, svo og almenn ákvæði stjómsýslulaga um málsmeðferð fynr
úrskurðamefhd skv. 11. gr. og áffýjunamefnd skv. 12. gr. að því marki sem
starfsreglur, er settar verða skv. 60. gr., mæla eigi fyrir á annan veg.
Kenningarnefnd.
13. gr.
Kirkjuþing kýs kenningamefhd til fjögurra ára. Hlutverk hennar er að fjalla um
kenningarleg málefhi, þ. á m. skýrslur úr samkirkjulegu starfi, og fella úrskurði í
kenningarlegum atriðum ef þörf krefur.
í kenningamefnd sitja fimm fulltrúar. Biskup Islands eða vígslubiskup sá er
hann kveður til er formaður nefndarinnar, einn skal tilnefhdur af guðffæðideild
Háskóla íslands, tveir prestar skuli tilnefhdir af prestastefhu og einn leikmaður af
kirkjuþingi.
Setja skal nánari reglur um kenningamefhd í starfsreglur sbr. 60. gr.
Um staðgengil biskups Islands.
14. gr.
í forfollum biskups íslands kveður hann þann vígslubiskup. sem eldri er að
biskupsvígslu, til þess að gegna embætti sínu um stundarsakir. Hið sama gildir sé
biskup íslands vanhæfur til meðferðar einstaks máls, sem undir hann ber að lögum.
Nú fellur biskup íslands ffá eða lætur af embætti og skal þá sá vígslubiskup,
sem eldri er að biskupsvígslu, gegna embætti hans þar til biskupskjör hefur farið ffam
og nýr biskup íslands hefur fengið skipun í embætti sitt.
3. Vígslubiskupar.
Almennt.
15. gr.
Vígslubiskupar skulu vera tveir með aðsetur á hinum fomu biskupsstólum. í
Skálholti í Biskupstungum og á Hólum í Hjaltadal. Þeir hafi tilsjón með kristnihaldi í
umdæmum sínum og séu biskupi til aðstoðar um kirkjuleg málefhi og annist þau
biskupsverk er biskup íslands felur þeim. Nánari ákvæði um starfssvið vígslubiskupa
skal setja í starfsreglur, sbr. 60. gr.
Forseti íslands skipar vígslubiskupa.
Kosning vígslubiskupa.
16. gr.
Um kosningu og kjörgengi vígslubiskupa gilda sömu reglur og um biskupskjör
eftir því sem við getur átt, sbr. 7. og 8. gr. Kirkjuþing setur nánari reglur um kosningu
vígslubiskups í hvom vígslubiskupsumdæmi fyrir sig.
Vígslubiskupsumdœmi o.fl.
17. gr.
Umdæmi vígslubiskups í Skálholti nær yfir Múla-, Austfjarða-, Skaffafells-,
Rangárvalla-, Ámess-, Kjalamess- , Reykjavíkur-, Borgarfjarðar-, Snæfellsness- og
Dala-, Barðastrandar- og ísafjarðarprófastsdæmi.
Umdæmi vígslubiskups á Hólum nær yfir Húnavatns-, Skagafjarðar-,
Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.
10