Gerðir kirkjuþings - 1997, Blaðsíða 17
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
Kirkjuþing getur ákveðið aðra skipan vígslubiskupsumdæma. Öðlast hin nýja
skipan þá íyrst gildi er tvö kirkjuþing hafa samþykkt slíka tillögu óbreytta.
Samráðsfundur.
18. gr.
Biskup íslands skal kalla vígslubiskupana til samráðsfundar svo oft sem þurfa
þykir. Samráðsfundur biskups Islands og vígslubiskupa skal m.a. búa þau mál er varða
kenninguna, helgisiði og helgihald í hendur prestastefnu.
4. Kirkjuþing.
Almennt.
19. gr.
Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar innan lögmæltra
marka.
Málefhi er varða kenningu kirkjunnar og agavald, heyra þó undir biskup
íslands, sbr. 10., 11., 18. og 27. gr.
Samþykktir um kenningarleg málefni, guðsþjónustuhald, helgisiði, skím.
fermingu og altarissakramenti verða að sæta umfjöllun prestastefnu áður en þær hljóta
endanlega afgreiðslu á kirkjuþingi.
Kirkjuþing kýs stjómir þeirra sjóða sem nefndir em í 3. mgr. 26. gr.
Skipan kirkjuþings
20. gr.
A kirkjuþingi á sæti 21 fulltrúi kjörinn til 4 ára í senn. Em 9 þeirra prestar og
12 leikmenn úr hópi sóknamefhdafólks.
Kjördæmi kirkjuþings em:
1. Múla- og Austfjarðarprófastsdæmi.
2. Skaffafells-, Rangárvalla- og Ámesprófastsdæmi.
3. Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
4. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.
5. Kjalamessprófastsdæmi.
6. Borgarfjarðar, Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi.
7. Barðastrandar- og Isafjarðarprófastsdæmi.
8. Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi.
9. Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.
I hverju kjördæmi er kjörinn einn prestur og einn leikmaður. Að auki skal
kjósa þrjá leikmenn. við fyrstu kosningar til kirkjuþings skv. lögum þessum úr 1., 2.
og 3. kjördæmi, við næstu kosningar úr 4., 5. og 6. kjördæmi o.s.frv.
Rétt til setu á kirkjuþingi eiga biskup íslands og vígslubiskupar,
kirkjuráðsmenn, kirkjumálaráðherra eða fulltrúi hans og fulltrúi guðfræðideildar
Háskóla Islands. Hafa þeir allir málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hafa þeir ekki.
Kirkjuþing kýs þingforseta úr sínum röðum til fjögurra ára.
Biskup Islands kallar hvert nýkjörið kirkjuþing saman, en forseti kirkjuþings
kallar þingið saman effir það. Kirkjuþing skal halda ár hvert, að jafnaði í október,
nema kirkjuþing geri aðra skipan þar á. Óski þriðjungur kirkjuþingsmanna eftir er
skylt að kalla kirkjuþing saman innan viku frá því að krafa um slíkt var sett fram.
Kirkjuþing setur nánari ákvæði um kjör til kirkjuþings og þingsköp í
starfsreglur sbr. 60. gr.
11