Gerðir kirkjuþings - 1997, Síða 38
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
í 3. og 4. mgr. er nýmæli um svonefnda stöðunefnd, þ.e. fastanefnd, sem sé
biskupi íslands til ráðgjafar um hæfi kandídata til prestsembætta. og er hér um nýmæli
að ræða. Hennar hlutverk er einnig að meta hveijir umsækjenda um prestsembætti
teljist hæfastir og raða þremur hæfustu umsækjendunum í röð þannig að í sæti 1 ráðist
sá hæfasti og þannig koll af kolli, með hliðsjón af menntun umsækjenda.
ffamhaldsnámi, starfsferli og öðrum atriðum sem nefhdin telur máli skipta.
Um 38. gr.
í greininni er gert ráð fýrir því að biskup Islands auglýsi laus prestsembætti
með fjögurra vikna umsóknarffesti hið skemmsta. Um val á presti fer síðan eftir
lögum um veitingu prestakalla nr. 44/1987, þar til kirkjuþing hefur sett starfsreglur
um val á sóknarpresti og presti skv. 34. gr., sbr. 60. gr. ffv. Gert er ráð fýrir því að lög
um veitingu prestakalla nr. 44/1987 falli úr gildi þegar kirkjuþing hefur sett slíkar
starfsreglur, sbr. 65. gr. ffv.
Um 39. gr.
Með breytingum á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins voru
ákvæði um æviráðningu presta og annarra starfsmanna þjóðkirkjunnar afnumin.
Nefndin sem skipuð var af kirkjumálaráðherra í júlí 1996 leggur til að þegar
sóknarprestur eða aðstoðarprestur hefur verið valin með lögmætum hætti verði hann
settur í eitt ár til að gegna embættinu. Að þeim tíma liðnum verði hann skipaður í
embætti ótímabundið, nema áður hafi komið ffam skrifleg ósk um að embættið verði
auglýst laust til umsóknar frá fullum þriðjungi atkvæðisbærra sóknarbama í
prestakallinu. Nefndin telur rétt, m.a. í ljósi þeirrar sérstöðu sem ríkir um val á
prestum, en þeir eru eftir atvikum kjömir af kjörmönnum eða sóknarbömum í
kosningum, að prestar njóti æviráðningar.
Um 40. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Um 41. gr.
Greinin samsvarar efni 19. gr. laganr. 62/1990 og 1. mgr. 8. gr. sömu laga.
Um 42. gr.
Greinin þarfhast ekki skýringar.
Um 43. gr.
Greinin styðst að nokkm leyti við ákvæði í lögum nr. 62/1990, en efni þeirra
er einfaldað og samræmt. I 2. mgr. er sett ákvæði til þess að koma í veg fyrir vanda
sem oft hefur skapast viðvíkjandi ákvörðun um réttarstöðu presta er hafa verið ráðnir
til starfa utan hefðbundins kirkjulegs starfsvettvangs, svo sem á vegum félagasamtaka
eða stofnana.
Um 44. gr.
Greinin er efnislega samhljóða 10. gr. laga nr. 62/1990.
* Um45.gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
32