Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 39
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
Um 46. gr.
Grein þessi á sér eigi fyrirmynd í núgildandi lögum. Nauðsyn ber til að sett séu
lagaákvæði um djákna, en nám fyrir þá hefur nýlega verið tekið upp á vegum
guðfræðideildar Háskóla Islands að frumkvæði kirkjuþings.
Um 47. gr.
Greinin þarfnast ekki nánari skýringar.
Um 48. gr.
Greinin samsvarar efni 2. gr. laga nr. 25/1985.
Um 49. gr.
I 49. gr. frv. er gert ráð fyrir því að kirkjuþing setji starfsreglur um skipan
sókna, prestakalla og prófastsdæma. I þeim reglum skulu vera reglur varðandi
skiptingu kirkjusóknar, sameiningu sókna og um sóknarmörk, svo og um
niðurlagningu kirkju eða tilfærslu. í frv. því sem lagt var fram á 118. löggjafarþingi
var farin sú leið að mæla fyrir um tiltekinn lágmarksfjölda prestsembætta miðað við
hvort vígslubiskupsumdæmi um sig, svo og Reykjavíkur- og Kjalamessprófastsdæmi,
auk tiltekins lágmarksfjölda sérþjónustupresta og prófasta. í 61. gr. frv. er gert ráð
fyrir því að ríkið greiði tilteknum fjölda presta laun, en í frv. þessu er ekki að finna
ákvæði um að tiltekinn lágmarksfjöldi embætta skuli vera í hvoru
vígslubiskupsumdæmi, heldur er kirkjuþingi alfarið falið ákvörðunarvald um skipan
sókna, prestakalla og prófastsdæma. Er þetta í samræmi við niðurstöðu viðræðna
kirkjueignanefnda ríkis og kirkju.
Um 50. gr.
Greinin samsvarar 7. gr. laga nr. 62/1990, sbr. 2. gr. laga nr. 150/1996.
Um 51. gr.
Greinin svarar að mestu til efnis 11. gr. laga nr. 25/1985.
Um 52. — 57. gr.
Greinamar svara að mestu til sambærilegra ákvæða í lögum nr. 25/1985, nema
hvað skýrt er kveðið á um að sóknarprestur ráði hvemig afnotum af kirkju skuli háttað
og beri ábyrgð í því efni, auk þess sem kveðið er á um samstarfsnefndir kirkjusókna.
Um 58. gr.
Greinin þarfhast ekki skýringar.
Um 59. gr.
Greinin þarfhast ekki skýringar.
Um 60. gr.
Hér er um algert nýmæli að ræða. Kveðið er á um nánari starfsreglur fyrir
íslensku þjóðkirkjuna sem kirkjuþingi er ætlað að setja, svo og um annars konar
samþykktir þess sem ætlað er að hafa bindandi gildi innan kirkjunnar, sbr. einnig það
33