Gerðir kirkjuþings - 1997, Blaðsíða 51
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
Skipun biskups Islands.
9. gr.
Forseti íslands skipar biskup Islands.
Starfssvið biskups Islands o.fl.
10. gr.
Biskup Islands heíur tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og starfí
hennar í landinu. Hann er forseti kirkjuráðs. Hann fylgir eftir reglum er kirkjuþing
setur, samþykktum kirkjuþings og markaðri stefnu þess og prestastefnu og hefur
ákvörðunarvald um einstök mál, nema þau heyri undir önnur stjómvöld
þjóðkirkjunnar samkvæmt lögum þessum.
Biskup vígir kirkjur. Biskup vígir presta og djákna og setur þeim vígslubréf.
Heimilt er biskupi að vígja til prestsembættis og djáknaþjónustu einstaklinga
sem hafa verið kallaðir til þjónustu af evangelísk-lútherskum fríkirkjusöfnuðum í
landinu.
Um kirkjuaga og lausn ágreiningsmála á kirkjulegum vettvangi.
Urskurðamefnd.
11. gr.
Biskup íslands hefur yfirumsjón með kirkjuaga innan þjóðkirkjunnar og beitir
sér fyrir lausn ágreiningsefna sem rísa kunna á kirkjulegum vettvangi. Vegna agabrota
getur hann gripið til þeirra úrræða sem lög og kirkjuhefð leyfa.
Nú rís ágreiningur á kirkjulegum vettvangi eða starfsmaður þjóðkirkjunnar er
borinn sökum um siðferðis- eða agabrot og getur þá hver sá sem hagsmuna á að gæta
borið málið undir úrskurðamefhd sem biskup íslands skipar til fjögurra ára í senn.
Úrskurðamefnd skal skipuð þremur mönnum og jafhmörgum til vara. Skal
einn tilnefndur af leikmönnum á kirkjuþingi og einn af prestastefnu. Formaður skal
skipaður án tilnefhingar og sé hann löglærður.
Varði mál meint agabrot starfsmanna þjóðkirkjunnar eða embættisfærslu
prests sérstaklega, getur nefiidin vikið hlutaðeigandi úr starfi meðan um mál hans er
fjallað og skal þá annar settur til að gegna starfi hans á meðan.
I úrskurði vegna agabrota getur nefndin gripið til eftirfarandi úrræða:
a. veitt starfsmanni áminningu, eftir atvikum með skilyrðum eða
leiðbeiningum eða nánari fyrirmælum um rétta starfshegðun
b. mælt fyrir um að hann skuli fluttur til í starfi
c. mælt fyrir um að hann skuli ekki gegna núverandi starfi eða sambærilegu
starfi eða köllun á kirkjulegum vettvangi um ákveðið tímabil eða til frambúðar eða
d. lagt til um endanlega brottvikningu hans úr hvaða starfi sem er á
kirkjulegum vettvangi sem valdsvið nefndarinnar nær til.
Kirkjuþing setur nánari ákvæði um úrskurðamefnd í starfsreglur skv. 60. gr.
Afrýjunamefnd.
12. gr.
Niðurstöðu úrskurðamefhdar skv. 11. gr. má skjóta til áfrýjunamefndar sem
ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Hafa málsaðilar og kirkjuráð heimild til
áffýjunar. Áffýjunarfiestur er þijár vikur. Um úrræði þau, sem áfrýjunamefnd getur
gripið til með úrskurði gildir hið sama og ffá var greint um úrskurðamefnd í 11. gr.
Um réttaráhrif kærðs úrskurðar gilda ákvæði 29. gr. stjómsýslulaga nr. 37/1993.
45