Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 52
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
Áfrýjunamefnd er skipuð þremur löglærðum mönnum sem fullnægi almennum
skilyrðum til þess að vera skipaðir hæstaréttardómarar og sé einn þeirra formaður.
Skulu þeir allir skipaðir samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar. Varamenn skulu skipaðir
með sama hætti. Við meðferð einstakra mála skal nefndin skipuð tveimur sérfróðum
mönnum til viðbótar sem nefhdin kveður sjálf til starfans.
Úrskurðir áfnjunamefndar. sem skulu vera rökstuddir og að jafnaði kveðnir
upp innan sex vikna frá því að mál barst nefhdinni, em endanlegir og bindandi innan
valdsviðs þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing setur nánari ákvæði um málsmeðferð fyrir úrskurðamefnd og
áfrýjunamefnd í starfsreglur skv. 60. gr.
Kirkjulegir framkvæmdarvaldshafar skv. 22. gr. skulu framfylgia úrskurðum
skv. 11. og 12. gr., undir yfirumsjón kirkjuráðs, og fylgjast jafnframt með því, að farið
sé eftir úrskurðum, er snerta starfsemi eða framferði einstakra starfsmanna.
Um hæfi nefndarmana skv. 11. og 12. gr. gilda ákvæði II. kafla stjómsýslulaga
nr. 37/1993, svo og almenn ákvæði stjómsýslulaga um málsmeðferð fyrir
úrskurðamefhd skv. 11. gr. og áfrýjunamefnd skv. 12. gr. að því marki sem
starfsreglur, er settar verða skv. 60. gr., mæla eigi fyrir á annan veg.
Ráðgjafarnefnd um kenningarleg málefni.
13. gr.
Biskup Islands skipar ráðgjafamefhd um kenningarleg málefhi samkvæmt
nánari ákvæðum í starfsreglum, sbr. 60. gr.
Um staðgengil biskups íslands.
14. gr.
I forfollum biskups Islands kveður hann þann vígslubiskup, sem eldri er að
biskupsvígslu, til þess að gegna embætti sínu um stundarsakir. Hið sama gildir sé
biskup íslands vanhæfur til meðferðar einstaks máls, sem undir hann ber að lögum.
Nú fellur biskup Islands frá eða lætur af embætti og skal þá sá vígslubiskup,
sem eldri er að biskupsvígslu, gegna embætti hans þar til biskupskjör hefúr farið ffam
og nýr biskup Islands hefur fengið skipun í embætti sitt.
3. Vígslubiskupar.
Almennt.
15. gr.
Vígslubiskupar skulu vera tveir með aðsetur á hinum fomu biskupsstólum, í
Skálholti í Biskupstungum og á Hólum í Hjaltadal. Þeir hafi tilsjón með kristnihaldi í
umdæmum sínum og séu biskupi til aðstoðar um kirkjuleg málefni og annist þau
biskupsverk er biskup Islands felur þeim. Nánari ákvæði um starfssvið vígslubiskupa
skal setja í starfsreglur, sbr. 60. gr.
Forseti Islands skipar vígslubiskupa.
Kosning vígslubiskupa.
16. gr.
Um kosningu og kjörgengi vígslubiskupa gilda sömu reglur og um biskupskjör
eftir því sem við getur átt, sbr. 7. og 8. gr. Kirkjuþing setur nánari reglur um kosningu
vígslubiskups í hvom vígslubiskupsumdæmi fyrir sig.
46