Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 53

Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 53
1997 AUKA-KIRKJUÞING 1. mál Vígslubiskupsumdœmi o.fl. 17. gr. Umdæmi vígslubiskups í Skálholti nær yfir Múla-, Austfjarða-, Skaftafells-, Rangárvalla-, Ámess-, Kjalamess- , Reykjavíkur-, Borgarfjarðar-, Snæfellsness- og Dala-, Barðastrandar- og Ísaíjarðarprófastsdæmi. Umdæmi vígslubiskups á Hólum nær yfir Húnavatns-, Skagafjarðar-, Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Kirkjuþing getur ákveðið aðra skipan vígslubiskupsumdæma. Öðlast hin nýja skipan þá fyrst gildi er tvö kirkjuþing hafa samþvkkt slíka tillögu óbreytta. Biskupafundur 18. gr. Biskup íslands skal kalla vígslubiskupa til fundar svo oft sem þurfa þykir og nánar skal kveðið á um í starfsreglum sbr. 60. gr. Biskupafundur skal m.a. búa þau mál er varða kenninguna, helgisiði og helgihald í hendur prestastefnu og gera tillögur um skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma til kirkjuþings sbr. 49. gr. 4. Kirkjuþing. Almennt. 19. gr. Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar innan lögmæltra marka. Málefni er varða kenningu kirkjunnar og agavald, heyra þó undir biskup íslands, sbr. 10., 11., 18. og 27. gr. Samþykktir um kenningarleg málefni. guðsþjónustuhald, helgisiði, skím, fermingu og altarissakramenti verða að sæta umfjöllun prestastefnu áður en þær hljóta endanlega afgreiðslu á kirkjuþingi. Kirkjuþing kýs stjóm prestssetrasjóðs. Skipan kirkjuþings 20. gr. Á kirkjuþingi á sæti 21 fulltrúi kjörinn til 4 ára í senn. Em 9 þeirra prestar og 12 leikmenn úr hópi sóknamefndafólks. Kjördæmi kirkjuþings em: 1. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. 2. Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. 3. Kjalamessprófastsdæmi. 4. Borgarfjarðar, Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi. 5. Barðastrandar- og ísafjarðarprófastsdæmi. 6. Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. 7. Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. 8. Múla- og Austfjarðarprófastsdæmi. 9. Skaftafells-, Rangárvalla- og Ámesprófastsdæmi. í hveiju kjördæmi er kjörinn einn prestur og einn leikmaður nema í 1., 2. og 3. kjördæmi, þar sem kjömir skulu tveir leikmenn úr hverju kjördæmi. Rétt til setu á kirkjuþingi eiga biskup Islands og vígslubiskupar, kirkjuráðsmenn, kirkjumálaráðherra eða fulltrúi hans og fulltrúi guðfræðideildar Háskóla íslands. Hafa þeir allir málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hafa þeir ekki. 47

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.