Gerðir kirkjuþings - 1997, Blaðsíða 57
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
Ráðherra skipar þriggja manna stöðunefnd til þriggja ára. í nefndinni eiga sæti
fulltrúi tilnefndur af Prestafélagi Islands, annar tilnefndur af guðfræðideild Háskóla
Islands og einn leikmaður tilnefndur af biskupi Islands úr röðum sóknamefndarfólks
og sé hann formaður nefhdarinnar. Nefhdin skal meta hæfni kandídata til
prestsþjónustu að lokinni starfsþjálfun þeirra. Getur enginn kandídat hlotið vígslu hafi
stöðunefhd samdóma metið hann óhæfan. en þó má hann leita eftir vígslu að fimm
árum liðnum frá því að nefndin skilaði áliti sínu og verður hæfi hans þá metið að nýju.
Nefndin skal jafhframt meta hveijir umsækjenda um prestsembætti teljist
hæfastir og raða þremur hæfustu umsækjendunum í röð þannig að í sæti 1 raðist sá
hæfasti og þannig koll af kolli, með hliðsjón af menntun umsækjenda. framhaldsnámi,
starfsferli og öðrum atriðum sem nefndin telur máli skipta.
Að öðru leyti verður kandídat að fullnægja almennum skilyrðum 6. gr. laga nr.
70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Val á presti
38. gr.
Þegar prestakall eða prestsstaða losnar eða nýtt prestakall er stofnað auglýsir
biskup Islands embættið með fjögurra vikna umsóknarfresti hið skemmsta.
Nánari reglur um val á sóknarpresti og presti skv. 34. gr. skal setja í
starfsreglur skv. 60. gr.
39. gr.
Ráðherra veitir þeim embætti sóknarprests sem hlotið hefur bindandi
val en ákvarðar að öðrum kosti veitingu, að fenginni tillögu biskups. Biskup íslands
veitir þeim embætti prests skv. 34. gr. sem hlotið hefur bindandi val en ákvarðar að
öðrum kosti veitingu.
Embætti sóknarprests og prests skv. 34. gr. skal veitt með setningu í eitt ár. Að
þeim tíma liðnum skal skipa viðkomandi í embættið ótímabundið, nema meirihluti
kjörmanna prestakallsins sé sammála um að óska þess að biskup íslands auglýsi
embættið að nýju.
40. gr.
Hafi enginn sótt um prestakall eða embætti er ráðherra heimilt að setja prest í
embættið í allt að eitt ár, skv. tillögu biskups. Prestakallið eða embættið skal auglýst
að nýju að setningartímanum liðnum.
Almennt um skyldur presta.
41. gr.
Skylt er sóknarpresti að taka við kalli sínu jafhskjótt og föng eru á eftir að
hann hefur hlotið skipun eða ráðningu. Biskup íslands getur þó veitt presti, er situr
jörð, frest til næstu fardaga til að taka við embættinu.
Nú er prestssetur í prestakalli og er þá presti skylt að hafa þar aðsetur og
lögheimili nema biskup heimili annað um stundarsakir, að fenginni umsögn prófasts
og viðkomandi sóknamefnda.
42. gr.
Nánari ákvæði um starfsskyldur presta skulu settar í starfsreglur, sbr. 60. gr.
51