Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 58
1997
AUKA-KIRK JUÞIN G
1. mál
Sérþjónustuprestar.
Almennt.
43. gr.
Þar sem almennri prestsþjónustu verður ekki við komið, svo sem á
sjúkrastofnunum, við fangelsi og meðal heymarlausra, skal kalla til presta sem að
jafnaði hafa sérmenntun til starfans.
Biskupi íslands er heimilt að samþykkja að ráðnir séu prestar á vegum
stofnana og félagasamtaka. Teljast þeir prestar vera þjónandi prestar þjóðkirkjunnar,
sbr. 32. gr.
Biskup íslands setur sérþjónustuprestum skipunarbréf til viðbótar vígslubréfi.
Prestar er starfa erlendis.
44. gr.
Biskupi íslands er heimilt að samþykkja að prestar séu ráðnir til starfa meðal
íslendinga erlendis.
Nánari ákvæði.
45. gr.
Nánari ákvæði um sérþjónustupresta skal setja í almennar starfsreglur, sbr. 60.
gr-
9. Djáknar.
46. gr.
Þjónandi djákni þjóðkirkjunnar er hver sá sem á grundvelli köllunar og vígslu
gegnir fastri djáknaþjónustu í þjóðkirkjunni.
Djáknar eru ráðnir af sóknamefhd í samráði við sóknarprest tii þess að gegna
sérstaklega tilgreindum störfum á sviði líknar- og fræðslumála innan safhaðar.
Heimilt er í samráði við viðkomandi sóknamefnd og sóknarprest og/eða
sjúkrahússprest að ráða djákna til starfa á sjúkrastofhun.
Til að hljóta ráðningu og vígslu sem djákni þarf hlutaðeigandi að hafa lokið
viðeigandi prófi ffá guðfræðideild Háskóla íslands og hlotið tilskilda starfsþjálfun á
vegum þjóðkirkjunnar. Hafi umsækjandi um djáknastarf lokið prófi frá erlendum
djáknaskóla skal biskup íslands leita umsagnar guðfræðideildar Háskóla Islands.
Um þjónustu djákna fer nánar eftir ákvæðum í starfsreglum, sbr. 60. gr.
10. Sóknir og prestaköll.
Almennt.
47. gr.
Sóknin er grunneining þjóðkirkjunnar og starfsvettvangur hennar á hverjum
stað. Ein eða fleiri sóknir mynda prestakall.
48. gr.
Kirkjusókn er félag þess fólks innan þjóðkirkjunnar sem býr innan
sóknarmarka.
Kirkjusókn er sjálfstæð fjárhagsleg og félagsleg eining en tengist öðrum
sóknum innan sama prestakalls, ef um það er að ræða, með samstarfi sbr. 57. gr. eða á
annan hátt sem héraðsfundur kann að mæla fyrir um eða einstakar sóknamefhdir
52