Gerðir kirkjuþings - 1997, Qupperneq 59
1997
AUKA-KIRKJUÞrNG
1. mál
stofna til. Þá tengjast kirkjusóknir öðrum sóknum innan prófastsdæmis með
sameiginlegum héraðsfundi.
Sóknarmenn eru allir þeir sem lögheimili eiga í sókn, miðað við 1. desember
næstliðinn, hafa hlotið skím og eru skráðir í þjóðkirkjuna. Um skráningu óskírðra í
þjóðkirkjunni fer að öðm leyti eftir ákvörðun laga um trúfélög nr. 18/1975.
Sóknarmenn eiga rétt á kirkjulegri þjónustu í sókn sinni og bera sameiginlega
skyldur eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum eða með lögmæltum ákvörðunum.
Skipan sókna, prestakalla og prófastsdœma.
49. gr.
Kirkjuþing setur starfsreglur skv. 60. gr. um skipan sókna, prestakalla og
prófastsdæma. í umræddum starfsreglum skulu m.a. vera reglur varðandi skiptingu
kirkjusóknar, sameiningu sókna og um sóknarmörk, svo og um niðurlagningu kirkju
eða tilfærslu.
50. gr.
Þingvallaprestakalli gegni prestur er ráðherra skipar til fimm ára í senn að
fengnum tillögum biskups og Þingvallanefndar.
Safnaðarfundir.
51. gr.
Aðalsafnaðarfund skal að jafnaði halda fyrir maílok ár hvert. Þar skulu
rædd málefhi sóknarinnar, þar á meðal þau mál, sem lögmælt er að undir fundinn séu
borin, svo og þau mál sem héraðsfundur, sóknarprestur, prófastur, biskup íslands eða
kirkjumálaráðherra skýtur þangað. Aðalsafnaðarfundur er vettvangur starfsskila og
reikningsskila af hendi sóknamefndar og einstakra nefhda innan sóknarinnar.
Aðalsafnaðarfundur fer með ákvörðunarvald innan sóknarinnar í málum þeim
sem undir fundinn heyra samkvæmt lögum eða lögmæltum ákvörðunum.
Aðra safnaðarfundi skal halda ef meiri hluti sóknamefndar óskar þess eða einn
fjórði hluti sóknarmanna sem atkvæðisrétt eiga á safhaðarfundum.
Sóknarmenn njóta kosningarréttar og kjörgengis á safnaðarfundum þegar þeir
em fullra sextán ára.
Skipun, störf og starfshættir sóknarnefhda.
Almennt.
52. gr.
I hverri kirkjusókn er sóknamefnd sem annast rekstur og framkvæmdir á
vegum sóknarinnar og styður kirkjulegt starf í sókninni ásamt sóknarpresti og
starfsmönnum sóknarinnar.
Sóknamefnd skal kosin til fjögurra ára í senn.
Sóknamefndarmenn eru þrír í sóknum þar sem sóknarmenn em færri en 300,
en ella fimm, þó svo að þegar sóknarmenn em 1.000 hið fæsta mega
sóknamefhdarmenn vera sjö og níu ef sóknarmenn em 4.000 eða fleiri, allt miðað við
1. desember næstliðinn. Fjölga skal sóknamefndarmönnum, ef því er að skipta, á
næsta aðalsafnaðarfundi þegar kjör sóknamefndarmanna á fram að fara, eftir að þeir
verða 1.000 eða 4.000 hið fæsta. Nú fækkar sóknarmönnum niður fyrir greind mörk
og ákveður aðalsafnaðarfundur þá hvort fækka skuli sóknamefndarmönnum.
53