Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 67

Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 67
1997 AUKA-KIRKJUÞING 2. mál Greinargerð. Árið 1992, þann 25. febrúar var viðræðunefnd kirkjunnar um kirkjueignir þannig skipuð: Séra Þórhallur Höskuldsson, formaður, séra Jón Einarsson, séra Þorbjörn Hlynur Árnason og séra Þórir Stephensen. Haustið 1995, við fráfall séra Þórhalls Höskuldssonar, og séra Jóns Einarssonar, var séra Halldór Gunnarsson skipaður í nefndina og séra Þorbjörn Hlynur Árnason tók við sæti formanns . í viðræðunefnd ríkisins hafa starfað ráðuneytisstjórarnir Þorsteinn Geirsson, formaður, Magnús Þétursson og Sveinbjörn Dagfinnsson. í byrjun þessa máls verður gerð nokkur grein fyrir starfi viðræðunefnda ríkis og kirkju, frá haustþingi 1995. Séra Þórhallur Höskuldsson hafði unnið drög að frumvarpi til laga um kirkjueignir og launasjóð þjóðkirkjunnar. Meginatriði frumvarpsins var, að stofnaður yrði launasjóður þjóðkirkjunnar. Launasjóðurinn átti að njóta framlaga úr ríkissjóði, kristnisjóði, kirkjugarðasjóði og prestssetrasjóði. Gert var ráð fyrir því, að á bak við framlag ríkisins, sem trygging og endurgjald, stæði arður af kirkjujörðum og andvirði óseldra og seldra kirkjujarða og ítaka eftir gildistöku laga nr. 46/1907. Þetta meginatriði var samþykkt afstaða kirkjueignanefndarinnar. Frumvörp og greinargerðir þær er séra Þórhallur lét eftir sig eru merk og mikilsverð vinna í þágu þeirra viðræðna er stofnað var til árið 1992. Hér er um að ræða tugi blaðsíðna í formi frumvarpa og greinargerða, er taka til prestslauna, kirkjujarða, prestssetursjarða, Kristsfjárjarða og annarra kirkjueigna. Séra Þórhallur vann að þessu verki fram á síðasta dag ævi sinnar. Eftir andlát séra Þórhalls ákvað kirkjueignanefndin að leggja fyrir viðræðunefnd ríkisins tillögu að bókun, eða sameiginlegri niðurstöðu. Segja má, að bókunin hafi geymt öll þau efnisatriði er lágu fyrir í verki séra Þórhalls. Tillagan var lögð fyrir Þorstein Geirsson, formann viðræðunefndar ríkisins þann 12. október 1995 og var þannig: „Viðræðunefnd kirkjunnar hefur lagt fram tillögu í formi frumvarps til laga um kirkjueignir og launasjóð þjóðkirkjunnar. Frumvarpið felur í sér, að stofnaður verði launasjóður þjóðkirkjunnar, er standi straum af launum þeirra embætta þjóðkirkjunnar er lög nr. 62/1990 mæla fyrir um. Gert er ráð fyrir því, að kirkjujarðir og þær jarðir, ásamt ftökum og öðrum eignum tengdum þeim, sem seldar hafa verið eftir gildistöku laga um sölu kirkjujarða nr. 46/1907, standi sem höfuðstóll á bak við launasjóðinn. Staða kristnisjóðs verði tryggð með ákveðnu framlagi. Gert er ráð fyrir því, að prestssetur verði í umsjá prestssetrasjóðs og að ákveðnar kirkjujarðir verði ekki seldar nema að fengnu samþykki kirkjuþings og héraðsfunda. Efni frumvarpsins er í samræmi við þá meginniðurstöðu er kirkjueignanefnd kynnti á kirkjuþingi 1994 og fjárhagsnefnd þingsins tók undir.“ 61

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.