Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 68

Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 68
1997 AUKA-KIRKJUÞING 2. mál Kirkjueignanefndin óskaði eftir viðbrögðum eða gagntillögum viðræðunefndar ríkisins sem fyrst. Leið nú og beið, og ekki reyndist unnt að halda fund nefndanna fyrr en þann 29. febrúar. Á þeim fundi var farið yfir tillögurnar og þær ræddar fram og til baka. Viðræðunefnd kirkjunnar gerði viðræðunefnd ríkisins það Ijóst, að niðurstaða í þessar viðræður yrði að fást sem fyrst. Það viðhorf var einnig kynnt dóms- og kirkjumálaráðherra. Viðræðunefnd ríkisins óskaði eftir fresti til að móta viðbrögð sín og gagntillögur; á það var fallist og var fundur ákveðinn 10. apríl. Þegar nær dró óskaði formaður viðræðunefndar ríkisins eftir fresti, þar sem ekki hefði verið unnt að vinna í málinu. Það var svo ekki fyrr en þann 20. september síðastliðinn, að sameiginlegur fundur var haldinn. Þá kom á daginn, að viðræðunefnd ríkisins hafði ekki enn mótað skýrar gagntillögur. Enn var því fjallað um tillögu viðræðunefndar kirkjunnar; við hana gerði viðræðunefnd ríkisins margvíslegar athugasemdir. í fundarlok var óskað eftir því, að viðræðunefnd ríkisins kæmi nú fram með áþreifanlegar gagntillögur á grundvelli þeirrar forsendu, að prestlaun verði í framtíðinni tengd með einhverjum hætti þeim höfuðstól sem kirkjujarðirnar eru og voru, sbr. löggjöfina frá 1907. Á fundinum var því heitið að ríkisnefndin legði fram tillögur á sameiginlegum fundi sem ákveðinn var þann lO.október. Lögð var á það áhersla af hálfu viðræðunefndar kirkjunnar, að brýnt væri að nefndirnar næðu saman um bókun, sem hægt væri að leggja fyrir kirkjuþing í október, og þá einnig hlutaðeigandi ráðherra. í framhaldi af því væri hugsanlegt að leggja í þá vinnu, að útfæra hugmyndirnar í formi lagafrumvarpa. Á fundi þann 10. október sl. lagði viðræðunefnd rfkisins fram drög að samkomulagi um launagreiðslur presta, starfsmenn biskupsembættisins og kirkjujarðir. Á fundinum var fjallað um þessi drög og var þegar ákveðið, að funda aftur þann 8. nóvember næstkomandi. Segja má, að tillaga ríkisnefndarinnar hafi að miklu leyti verið í samhljóðan við við þá bókun eða tillögu er viðræðunefnd kirkjunnar hafði áður lagt fram (12.okt 95, sbr. hér að ofan). Gert var ráð fyrir að kirkjujarðir yrðu eign íslenska ríkisins og í staðinn skuldbindi ríkið sig til að standa skil á launum presta þjóðkirkjunnar, prófasta, vígslubiskupa, biskups og starfsmanna biskupsembættisins. Samkomulagið átti að gilda í ákveðinn árafjölda (áratugi) og skyldi þá koma til endurskoðunar. Þetta var meginefni tillögu ríkisnefndarinnar. Samkomulag frá 10. janúar 1997 Samningaviðræðum lyktaði með niðurstöðu er undirrituð var þann 10. þessa mánaðar. í þessari greinargerð verður ekki rakin frekar atburðarás samningaviðræðnanna. Formaður kirkjueignanefndar er hins vegar reiðubúinn að skýra gang viðræðnanna frekar, á fundum með nefndum þingsins, svo og einstök atriði samkomulagsins, sem ekki er unnt að fjalla um ítarlegar í greinargerð þessari. Verður nú vikið að meginatriðum samkomulagsins. í fyrstu og annarri grein koma fram meginatriði samkomulagsins. íslenska ríkið verður eigandi kirkjujarðanna. Eignaafhendingin undaskilur prestsetursjarðir, og það sem þeim fylgir. Kristfjárjarðir og jarðir í fátækra eigu eru einnig undanskildar í þessu 62

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.