Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 80
1997
AUKA-KIRKJUÞING
3. mál
Greinargerð.
í lögum um biskupskosningu nr. 96/1980 er m.a. mælt fyrir um hveijir eigi
kosningarrétt við biskupskjör, sem og við vígslubiskupskjör, sbr. 43. gr. laga um
skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju íslands. nr. 62/1990.
Á undanfömum árum hefur fjölgað prestvígðum mönnum sem ekki eru ráðnir
til starfa af kirkjulegum yfirvöldum. Á þetta einkum við sérþjónustupresta á
sjúkrastofnunum. Prestar þessir em í langflestum tilvikum ráðnir til starfa af
viðkomandi stofnun og em laun þeirra greidd af sama aðila. Álitaefni hafa komið upp
hvort þessir prestar eigi að lögum kosningarrétt við biskupskjör og vígslubiskupskjör.
Við vígslubiskupskjör 1994 vom þeir ekki teknir á kjörskrá og höfðu því ekki
kosningarrétt. í kjölfarið kvörtuðu tveir sjúkrahúsaprestar undan þeirri meðferð til
umboðsmanns Alþingis sem lét í ljós það álit að sjúkrahúsaprestar ættu skv. gildandi
lögum kosningarrétt við biskupskjör og vígslubiskupskjör, sbr. álit hans í máli nr.
1105/1994. Rétt þykir að eyða öllum vafa varðandi þetta atriði og tr>rggja þeim
sérþjónustuprestum sem ráðnir em til starfa af sjúkrastofnunum kosningarrétt við
biskupskjör og vígslubiskupskjör, enda lúti þeir yfirstjóm kirkjulegra stjómvalda í
kirkjulegum efnum.
Sú breyting sem lögð er til með frumvarpi þessu er í fyrsta lagi að tryggja
framangreindum sérþjónustuprestum kosningarrétt við biskupskjör og þar með
jafnframt kosningarrétt við kjör vígslubiskupa. í öðm lagi er lagt til að
aðstoðarprestum, sem ráðnir em af sóknamefndum, verði tryggður sami réttur, en
hann hafa þeir ekki samkvæmt gildandi lögum. í þriðja lagi er lagt til að rektor
Skálholtsskóla verði skipað við hlið kennara guðfræðideildar Háskólans, og
guðfræðikandídötum á biskupsstofu við hlið biskupsritara. Em breytingartillögur
þessar bomar frarn til að taka af öll tvímæli um kosningarrétt þessara starfsmanna
kirkjunnar. Breytingamar miða að öðm leyti að því að gera ákvæði laganna skýrari að
því er varðar kosningarrétt presta og annarra guðffæðinga.
Þá er lagt til að 3. tl. 2. gr. laganna um biskupskosningu þar sem fjallað er um
kjör leikmanna verði breytt í samræmi við skiptingu Reykjavíkurprófastsdæmis í tvö
prófastsdæmi.
Fyrirhugað er að leggja ffam á yfirstandandi þingi ffumvarp til laga um stöðu,
stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar. í því ffumvarpi er gert ráð fyrir að kirkjuþing
setji reglur um biskupskosningu. Verði það ffumvarp samþykkt er gert ráð fyrir að
þegar kirkjuþing hafi sett reglur um biskupskosningu falli lögin um biskupskosningu
úr gildi. í ljósi þess að ekki er víst hver afdrif þess ffumvarps verða á yfirstandandi
þingi, auk þess sem ekki er miðað við að þær breytingar sem þar em lagðar til öðlist
þegar gildi, er nauðsynlegt að breyta gildandi lögum um biskupskosningu nú til að
tryggja sérþjónustuprestum sem ráðnir em til starfa á sjúkrastofhunum og
aðstoðarprestum sem ráðnir em af sóknamefndum umræddan kosningarrétt, svo og
taka af önnur tvímæli um kosningarrétt einstakra starfsmanna kirkjunnar, en gert er
ráð fyrir að biskupskjör fari ffam á árinu.
17.1.1997
74