Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Qupperneq 2
Fréttir DV
2 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007
Reyndi að stela
buxum
Tvær fjórtán ára stúlkur voru
teknar fyrir þjófnað í verslun í
Smáralind fyrir helgi. Önnur stal
snyrtivörum en hin stal galla-
buxum. f tilkynningu frá lög-
reglunni á höfúðborgarsvæðinu
segir að slíkar uppákomur séu
orðnar nokkuð algengar. Stúlkan
sem reyndi að stela gallabuxun-
um fékk að máta tvennar slík-
ar í verslun í Smáralind. Þegar
starfsmaður verslunarinnar kom
inn í mátunarklefann eftir að
stúlkan var farin, sá hann að hún
hafði skilið eftir gamlar buxur en
stungið þeim nýju ofan í poka.
Stúlkan náðist í næstu verslun og
var hún flutt á lögreglustöð.
Stal bensíni
ogfékk dóm
Kristinn Friðbjöm Birgisson,
25 ára, var á föstudag dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir þjófnað. Kristinn
var sakfelldur fyrir að hafa
dælt bensíni á bifreið sína fyrir
upphæð að verðmæti 6.261
krónu 14. mars í fyrra án þess
að greiða fyrir það. Kristinn
hefúr áður verið dæmdur fyrir
hegningarlagabrot. Honum var
gert að greiða upphæðina afúir til
baka til Olíufélagsins. Fangavistin
er skilorðsbundin til tveggja ára.
Sýknaður
afölvunarakstri
Hæstiréttur sýknaði fyrir
helgi mann af ákæru þess efnis
að hafa verið ölvaður undir stýri
þegar lögregla hafði afskipta af
honum 20. ágúst 2006. Honum
var gefið að sök að hafa ekið
ölvaður á bifreiðastæði við
Frakkastíg í Reykjavík. Hann
neitaði að hafa ekið bifr eiðinni
og kvaðst aðeins hafa ætlað að
sofa og spara sér hótelkostnað.
Vimi bám að þau hefðu séð
bifreiðina hreyfast úr stað þegar
henni var lagt í stæðið. Þegar
iögregla kom á vettvang var
kveikt á útvarpi bifreiðarinnar
og vél og púströr vom heit
Dóminum þóttí ósannað að
hann hafði ekið bifr eiðinni.
Maðurinn hafði áður verið
dæmdur í Héraðsdómi til
greiðslu hundrað þúsund króna
sektar.
Frídagur
neytenda
Hinn alþjóðlegi Kauptu ekk-
ert dagur var haldinn hátíðlegur
á laugardaginn, en hugmyndin
að deginum er að hann sé nokk-
urs konar frídagur neytenda. Það
vom aðgerðasinnar í Kanada
sem komu Kauptu ekkert deg-
inum á fót, en þeir mótmæltu
neysluvæðingunni með því að
hvetja fólk til
þess að kaupa
ekkert þenn-
an dag. 1 Evr-
ópu er venjan
að síðasti
laugardagur-
inn í nóvem-
ber sé nokk-
urs konar
upphafsdagur jólavertíðarinnar
í verslunum. Neytendasamtökin
hvöttu neytendur til að taka frí
frá innkaupum í tilefni dagsins.
Jólahlaðborð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum vekur spurningar hjá veitingafólki í
einkarekstri sem telur samkeppnina óeðlilega. Bolli Thoroddsen er fylgjandi því að
slik þjónusta sé boðin út. Forstöðumaður garðsins segir jólahlaðborð garðsins ekki
niðurgreitt af borgarbúum.
Jólamaturinn Reykjavíkurborg
keppir við veitingastaði borgarinnar
um viðskiptavini með því að bjóða
upp á jólahlaðborð í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum.
B0RGINISAMKEPPNI
UM JÓLAHLAÐBORÐIN
ERLA HLYNSDOTTIR
blaðamaður skrifar: erlawdv.is
„Okkur finnst ekki eðlilegt að borgin
sé í samkeppni við einstaklinga í veit-
ingarekstri," segir Helga Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri Geysis Bistro &
Bar í Aðalstræti. Á veitingastaðnum
verður boðið upp á jólahlaðborð frá
30. nóvember.
Undanfarin ár hefur Fjölskyldu-
og húsdýragarðurinn boðið upp
á jólahlaðborð í veitingahúsi sínu
og er engin undantekning á því
í ár. Veislan hefur verið auglýst
undanfarið þar sem fram kemur að
Grýla og Leppalúði séu veislugestir.
Ýmsir veitíngamenn hafa sett
spurningamerki við það vegna þess
að garðurinn er algjörlega í eigu
Reykjavíkurborgar og er borgin
því sögð í beinni samkeppni við
einkaaðila í veitingarekstri um gesti
ájólahlaðborð.
Hluti af almennri þjónustu
Tómas Úskar Guðjónsson,
forstöðumaður Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins, segist ekki hafa
heyrt af gagnrýni á að í garðinum
bjóði borgin upp á jólahlaðborð í
samkeppni við einkaaðila. „Við lítum
á þetta sem þjónustu við okkar gestí.
Sumir settu spurningamerki við það
þegar almenn veitíngasala byrjaði
hér í garðinum en það var stuttu eftir
að hann var opnaður fyrir sautján
árum," segir hann. Þá var farið að
selja þar kaffl og léttan mat fyrir gestí
og gangandi. „Þetta var ekki bein
gagnrýni. Fólk velti því einfaldlega
upp hvort eðlilegra væri að við byðum
þetta út eða seldum veitingarnar sjálf.
Við lítum á veitíngasölu sem þjónustu
við okkar gesti," segir Óskar.
Fylgjandi útboði
Bolli Thoroddsen, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, situr í stjórn
íþrótta- og tómstundaráðs sem Fjöl-
skyldugarðurinn heyrir undir. Hann
er fylgjandi því að þjónusta sem þessi
sé boðin út og finnst almennt ekki gott
að opinberir aðilar séu í samkeppni
við einkaaðila. „Þegar opinberir
aðilar bjóða þjónustu í samkeppni
við einkaaðila verða þeir að gæta þess
að allur tilkosmaður, bæði fastur og
„Við höfum prófað
báðar leiðir og það er
áberandi ódýrara fyr-
irkomulag að sjá um
þettasjálf."
breytilegur, sé settur inn í verðið. Að
öðrum kostí er verið að niðurgreiða
þjónustuna með opinberu fé. Ef,
að uppfylltu þessu skilyrði, verð
einkaaðila er hærra, sé ég ekkert því
til fyrirstöðu að opinberir aðilar sjái
sjálfir um verkið," segir Bolli.
Ekki niðurgreiddar veitingar
Aðspurður segir Tómas að reynt
hafi verið að bjóða veitingaþjónustu
garðsins út. „Við höfum prófað báðar
leiðir og það er áberandi ódýrara
fyrirkomulag að sjá um þetta sjálf.
Markmiðið er ekki annað en að þetta
standi undir sér. Hugmyndin er ekki
að veitingar séu niðurgreiddar af
borgarbúum. Það gengi aldrei upp,"
segir hann.
Jólahlaðborð hjá Geysi Bistro &
Hlynntur útboði BolliThoroddsen er
almennt á móti því að opinberir aðilar
séu í samkeppni við einkaaðila.
Bar kostar 4.900 krónur sem er með
því ódýrara sem gerist fyrir þessi
jólin en jólahlaðborð í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum kostar 3.600 krónur
fyrir fullorðna.
Thomas Malakauskas, einn þriggja sem hlutu dóm í líkfundarmálinu, er í gæsluvarðhaldi:
Lambhúshettumaðurinn ífangelsi
Malakauskas í dómsal Þegar réttað varyfir þremenningunum í líkfundarmálinu
gætti Malakauskas þess alltaf að andlit hans sæist ekki og bar meðal annars
lambhúshettu (þeim tilgangi.
Litháinn Thomas Malakauskas,
einn þriggja manna sem fengu hver
um sig tveggja ára og sex mánaða
fangelsisdóm í líkfundarmálinu
svokallaða, hefur aftur verið
hnepptur í fangelsi hér á landi.
„Við höfðum grun um að hann
væri hér og hófum að honum leit.
Hann var í félagi með öðrum þegar
hann fannst en á þeim fundust um
hundrað grömm af ætluðu amfet-
amíni, "segir Jón Bjartmarz, yfirlög-
regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra.
Lögreglan hneppti Thomas í kjöl-
farið í gæsluvarðhald. Með komu
sinni til landsins braut Thomas
endurkomubann, sem hann var
dæmdur í fyrir hálfu þriðja ári.
Thomas var í Iok apríl 2005
dæmdur til til fangelsisvistar
fyrir brot á lögum um ávana- og
fíkniefni, brot gegn lífi og lfkama
og fyrir ósæmilega meðferð á líki.
Thomas var einn þeirra sem sökkti
líki Vaidasar Jucivivius í höfnina
í Neskaupstað í byrjun árs 2005.
Grétar Sigurðarson og Jónas Ingi
Ragnarsson voru einnig dæmdir til
fangelsisvistar fyrir athæfið.
Þegar Thomas var handtekinn á
dögunum reyndi hann að villa á sér
heimildir. Þegar réttað var í máli
mannanna þriggja gætti Thom-
as þess alltaf að ekki sæist í andlit
hans. Hann huldi andlit sitt ávallt
með lambhúshettu og bar jafn-
vel fyrir sig möppur eða skjöl til
að tryggja að enginn þekkti hann í
sjón.
Jón segir málið í höndum
rannsóknarlögreglunnar. „Fyrst
hann var með fíkniefni á sér fór
málið til rannsóknarlögreglu en að
öðrum kosti hefði alþjóðalögreglan
komið að málinu," segir Jón. Hann
útilokar ekki að Thomas þurfi að
sitja af sér dóm hér á landi áður en
hann heldur til síns heima. baldur@