Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Page 10
10 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007
Sport DV
Sport
íslenska landsliðið í knattspyrnu lenti í níunda riðli þegar dregið var
í undankeppni HM. íslenska liðið mun því aðeins leika átta leiki á
rúmum tveimur árum. Æfingarleikir eru því enn mikilvægari fyrir
landsliðið. Vel hægt að gera góða hluti ef rétt er haldið á spöðunum.
ÍÞRÓTTAMOLAR
HAGLABYSSAN GUNNAR
Gunnar Nelson gerði sér lltiö fyrir og
gjörsigraði Hollendinginn Niek
Tromp 11. lotu í
Cage of Truth:
Battle of the Bay-
mótinu. Þetta var
aöalbardagi
kvöldsins (
blönduðum
bardagalistum en
Hollendingurinn
hafði ekki tapað
bardaga í tvö og
hálft ár. Tromp er að fara að berjast
um Evrópumeistaratitil Shooto 15.
desember og þvl Ijóst að afrek
Gunnars er mikið. Gunnar skellti
andstæðingi slnum I gólfið strax I
byrjun bardagans, náði þar
yfirburðastöðu, svokölluðu„mount“,
og lét höggunum rigna yfir Tromp.
Að sögn þeirra sem á horfðu virtist
Hollendingurinn detta út rétt
augnablik undan höggum Gunnars
en gaf slðan merki um uppgjöf I
sama mund og dómarlnn stöövaði
bardagann. Það sem vakti ekki slst
athygli er að NiekTromp er
sérfræðingur I gólfgllmu og hafði
unnið14af15 sigrum slnum á
ferlinum á I gólfinu, langflesta I
fyrstu lotu, en einu tvö töpin hans á
ferlinum koma til eftir
dómaraúrskurð. Hann hafði því
aldrei áður verið sleginn út eða þurft
að gefast upp I bardaga. Gunnar
hefur því eflaust komið
Hollendingnum vel á óvart með þvl
aö fara beint með bardagann I gólfið
þarsemTromperbesturen hann
hefur sennllega ekki gert sér grein
fyrir því aö (slendingurinn er
einfaldlega bestur þar llka. Einn af
þjálfurum keppanda lýsti
bardaganum þannig á
veraldarvefnum að það hefðl verið
llkt og (slendingurinn ungi hefði
verið að hlaða haglabyssu I hvert
skipti sem hann lét höggin dynja á
andstæðingi slnum svo nákvæm og
kraftmikil heföu höggin verið.
ISLENDINGAR ERLENDIS
Eiöur Smári Guðjohnsen var I
byrjunarliöi Barcelona sem vann
Recreativo Huelva
3-0. Eiður Smári
léká miðjunni og
átti nokkra góða
spretti en var
slðan tekinn út af
eftir klukkutíma
leikog kom
ungstirnið Bojan
Krkic inn á og
skoraði annað
mark Barcelona I leiknum. Eggert
Gunnþór Jónsson var I byrjunarliði
Hearts sem gerði 1-1 jafntefli við
Gretna á útivelli I skosku
úrvaldsdeildinni (gær. Eggertvará
miðjunni, nældi sér I gult spjald I
leiknum og var slöan skipt út af á
lokamínútu leiksins. Grétar Rafn
Steinsson var I byrjunarliöi AZ
Alkmar sem vann Willem II 2-0 á
laugardag. Alkmarer nú láttunda
sæti deildarinnar meö 18 stlg eftlr
tólf leiki. Emil Hallfreðsson lékallan
leiklnn ijafntefli Reggina gegn
Fiorentian i Seriu A (gær. Nýr stjóri
tók við liðinu og hefur stjórnað þvi (
siðustu þremur leikjum og hefur
Reggina unnið einn og gert tvö
jafntefli.
fslenska landsliðið í knattspyrnu
lenti í fimm liða riðli þegar dregið
var í riðla fyrir undankeppni HM.
Liðið getur vel staðið sig vel ef rétt
er haldið á spöðunum. Ekki þarf að
huga að löngum, erfiðum og leið-
inlegum ferðalögum til landa sem
sum hver eru á hjara veraldar.
Með íslenska liðinu í riðli eru
Hollendingar, Skotar, frændur vorir
Norðmenn og Makedónar. Fylli fs-
lendingar Laugardalsvöllinn gegn
Hollendingum er vel hægt að ná í
stig. Eins og Hermann Hreiðars-
son sagði í helgarviðtali DV síðasta
föstudag: „Þegar er virkilega góð
stemning í Laugardalnum skilar
það sér afltaf. Þá labbar maður inn
á völlinn og veit að maður er ekkert
að fara að tapa. Ég get nefnt ftalíu
þar sem mættu 20 þúsund manns
og einnig Frakkana og Spánverja.
Það stendur alltaf upp úr þegar það
er frábær stemning á Laugardals-
velli og við stöndum okkur á móti
stærri liðunum," sagði Hermann.
Ef KSÍ sér sóma sinn í því að stilla
miðaverði í hóf má búast við fullum
Laugardalsvelli enda í hollenska lið-
inu margar stórstjörnur.
Það verður frábært að fá Skota
aftur til Reykjavíkur. Síðast þegar
liðið spilaði hér á landi var rífandi
stemning, sér í lagi kvöldið fyrir leik
þar sem Skotar máluðu miðborgina
rauða. Þá sungu Skotarnir að
stuðningsmenn íslands kynnu
aðeins eitt lag, en með komu
tólfunnar verður gaman að sjá
hvað þeir syngja nú. Verði fullur
Lagardalsvöllur er aldrei að vita
nema úrslitin falli okkar mönnum í
hag. Okkar menn eiga við ramman
reip að draga á Hampden og ekki
líklegt að stig komi í hús þar.
Norðmenn eru óþolandi í fót-
bolta. Beita löngum boltum allan
tímann þar sem John Arne Riise fer
fremstur meðal jafningja. Liðið leik-
ur einfalda taktík, boltinn fer aldrei í
gegnum miðjuna og því ætti að vera
góður möguleiki á að ná góðum úr-
slitum heima og að heiman.
Makedónar eru það lið sem við
verðum að vinna hér á Fróni og að
ná stigi á útivelli. Gerist þetta, er
allt hægt. Hins vegar hefur íslenska
landsliðið reglulega valdið þjóðinni
vonbrigðum og ekki á vísan að róa
um árangur þegar landsliðið í knatt-
spyrnu er annars vegar. Með nýjum
þjálfara er hins vegar allt hægt og
raunhæft að vera bjartsýnn á fram-
haldið.
Landsliðið mun aðeins spila átta
landsleiki á tveimur árum, því verð-
ur KSf að útvega liðinu sem flesta
æfingarleiki.
ólafi líst vel á riðlana
„Égerbaranokkuð ánægður, mér
finnst þetta fínn riðill en ég hefði nú
reyndar viljað fá sex liða riðil en mér
Ólafur á bak við stórlaxana
Ólafur Jóhannesson er hér á bak við
Marco Van Basten og Alex McLeish.
Emirafp
líst ljómandi vel á þetta," sagði Ól-
afur Jóhannesson landsliðsþjálfari
þegar DV náði í skottið á honum í
Durban í Suður-Afríku.
„Hollendingar eru náttúrulega
stórþjóð í fótbolta og við höfum ekki
riðið feitum hesti frá leikjum gegn þeim
en það er gaman að fá að mæta svona
stórþjóð. Svo eru það hinar þjóðimar,
Noregur og Skotland, sem hafa verið
svona upp og niður. Norðmenn og
Skotar vom reyndar nálægt því að
komast áfram núna á EM en ég held
að leikstíll þeirra henti okkur ágætlega.
Makedómumenn þekki ég ekki þannig
að ég get lítið sagt um þá en það hefúr
oft reynst okkur erfitt að spila gegn
þessum þjóðum sem koma frá Austur-
Evrópu og þeir em eflaust engin
undantekning þar frá."
Ólafúr var sáttur við að sleppa við
löng ferðalög. „Þetta em mjög þægileg
ferðalög fyrir alla okkar Ieikmenn
þannig að það er mjög jákvætt."
Varðandi æfingarleiki sem landsliðið
hefúr þurft sagði Ólafúr að reynt yrði
að fá leiki á þeim leikdögum sem í boði
em. „Við munum reyna að fá leiki á
öllum þeim dögum sem möguleiki er,
þaðeralvegljóst."
Marco van Basten, landsliðsþjálfari
Hollands, sagðist glaður að geta farið
til Skotlands. „Ég fer til Skotlands til
að spila golf, það verður magnað að
fara til Skotíands að spila fótbolta.
Skotamir em sterkir, þeir hafa sýnt það
að undanfömu og þetta verður ekkert
auðvelt"
Riðlar í forkeppni HM 2010
Riðilll: Pólland Armenía Riðill 8
Norður-Irland Eistland
Slóvakia, Slóvenia
San Marínó
Portúgal
Sviþjóð
Danmörk
Ungverjaland
Albanía
Malta
Riðill 2:
Grikkland
Israel
Sviss
Moldovía
Lettland
Lúxemborg
Riðill 3:
Tékkland
Riðill 4:
Þýskaland
Rússland
Finnland
Wales
Aserbaidsjan
Liechtenstein
Riðill 5:
Spánn
Tyrkland
Belgia
Bosnía
Riðill 6:
Króatia
England
Úkraina
Hvíta-Rússland
Kasakstan
Andorra
Riðill 7:
Frakkland
Rúmenia
Serbia
Litháen
Austurriki
Færeyjar
ftalia
Búlgaria
Irland
Kýpur
Georgia
Svartfjallaland
Riðill 9:
Holland
Skotland
Noregur
Makedónia
Island
HK er úr leik í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik eftir 36-24 ósigur gegn FCK:
Steinar Ege aflífaði HK
Steinar Ege, markvörður FCK
Hándbold, varði á þriðja tug skota
þegar FCK sigraði HK 36-24 í
seinni leik liðanna í Evrópukeppni
félagsliða í handknattleik í gær. HK
er þar með úr leik í keppninni en
FCK vann líka fyrri leik liðanna 24-
26. Leikurinn var jafn framan af en
í lokin brotnaði HK-liðið saman og
Danirnirunnuöruggansigur.Gunnar
Magnússon, aðstoðarþjálfari HK,
sagði lokatölurnar ekki gefa rétta
mynd af gangi leiksins. „Steinar Ege
var ótrúlegur. Staðan í hálfleik var
14-11 og þá hafði hann varið þrjú
vítaköst. Hann varði sex víti í röð,
annað eins af dauðafærum, alls um
þrjátíu skot og hreinlega tók okkur
af lífi. Leikurinn var í járnum fýrstu
40 mínúturnar en leikmenn okkar
höndluðu ekki mótlætið nógu vel
og brotnuðu saman. Það eru okkur
vonbrigði að tapa með tólf marka
mun því við spiluðum betur en
úrslitin gefa til kynna. Við vorum
sex eða sjö mörkum undir þegar
korter var eftir en í stað þess að við
minnkuðum muninn juku Danirnir
hann um helming. Við förum samt
heim reynslunni ríkari."
Það gladdi Gunnar að sjá um
eitt hundrað stuðningsmenn HK í
höllinni í Kaupmannahöfn. „Ég hef
aldrei upplifað annan eins stuðning
á útivelli. HK-stuðningsmennirnir
voru syngjandi og trallandi í rúmlega
sextíu mínútur. Þetta var eins og við
værum á heimavelli. FCK var með
miklu betra handboltalið en við með
miklu betra stuðningslið." -CG
Eins og að spila á heimavelli Um eltt hundrað stuðningsmenn HK studdu liðið I
Kaupmannahöfn.