Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Page 11
PREMIER
LEAGUE
Robert Green var hetja West Ham þegar hann varði víti Jermaines
Defoeá lokasekúndum viðureignar West Ham ogTottenham.
BOLTINN
Áhorfendur létu
óánægju sína í Ijós
um helgina:
BAULAÐÁ
ENSKA
Enskir landsliðsmenn áttu
ekki sjö dagana sæla um helgina.
Hvort sem þeir voru á heima- eða
útivöllum var baulað á þá fyrir
að komast ekki í lokakeppni EM.
St James’ Park baulaði á Steven
Gerrard, Scott Carson og Gareth
Barry fengu að kenna á því á
Riverside á móti Middlesbrough
og landsliðsmenn Chelsea fengu
það óþvegið frá Pride Park gegn
Derby og þá fékk Rio Ferdinand
einnig að finna til tevatnsins á
Reebook-vellinum gegn Bolton.
Ekki var baulað á Arsenal enda
liðið ekki skipað neinum enskum
landsliðsmanni.
Óvæntustu tíðindi helgarinnar
kom á Reebook-vellinum þar sem
Manchester United laut í gras gegn
Bolton. Hver segir svo að enski bolt-
inn sé fyrirsjáanlegur og að litlu
liðin geti ekki strítt þeim stóru?
Everton vann Sunderland 7-1 í
ótrúlegum leik.
Baráttan á toppnum harðnaði
mjög um helgina, Arsenal, Man.
Utd, Liverpool og Chelsea eru öll í
einum hnapp en Arsenal hefur smá
forskot á hin liðin.
vördur
lceland Express
vodafone
VEXTIR FRA
AÐEINS
Þannig er má
með vexti ...
... að það er
hægt að létta
greiðslubyrðina
FRjÁLSI
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 24.7.2007.