Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007
Umræða DV
WMlffnofcJoKtltaUt'
v ^ 1V \J wultlmorgenthtíler.corr
By Mlkael Wulff & Anders Morgenthaler
Þú ert dæmdur til 2 ára dvalar í steininum.
Nýttu tímann til að hugsa þinn gang.
Við hin njótum frelsins á meðan.
Fangelsi fyrir
páfagauka
HVAÐ BAR HÆSTIVIKUNNI?
Rithöfundar í svörtum
jakkafötum
„{ vikunni sem leið las ég eina fyndnustu
bók ársins, Konur eru ekki hamingjusamar
því þær eru með svo litlan heila - og karlar
rosalega pirrandi. Þetta eru að mínu mati
spútnikhöfimdar þessarar vertíðar, ekki
bara orðheppnir og fyndnir heldur iíka vel
klæddir (komu til mín í svörtum jakkafötum
sem er afar óvenjulegt á meðal rithöfunda)
og gátu sjálfir skammlaust skrifað reikninga
fyrir bókinni. Úr pólitíkinni ber hæst
frekari lækkun Seltjarnarnesbæjar á
útsvari og fasteignagjöldum sem nú eru
þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu.Ef ég
læt eitthvað persónulegt flakka, þá var
maðurinn minn að ljúka síðustu prófunum
í HR núna í vikunni og er á lokaspretti í
ritgerðarsmíð. Það sérþví fyrir endann á
viðskiptafræðinámi því sem hann hefur
sinnt með fullri vinnu og sístækkandi
fjölskyldu undanfarin þrjú og hálft ár."
Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri
Slysið á Vesturgötu
„Að mínu mati er það þetta sorglega
banaslys sem átti sér stað um síðustu helgi.
Ég bý í Reykjanesbæ og bjó meðal annars
um tíma þarna á Vesturgötunni þar sem
slysið varð. Tengdafaðir minn bjó einnig
þarna í nokkur ár. Það fyrsta sem hann
sagði þegar slysið varð var að honum þætti
það með ólíkindum að þarna hefði eldd
orðið alvarlegt slys fyrr. Honum krossbrá
þegar hann flutti þangað því keyrslan er
ofboðsleg. Þetta var alveg hörmulegt slys.
Svo vöktu líka athygli forstjóraskiptin í
FL Group og að Baugur skuli vera orðinn
stærsti hluthafinn. Maður fylgist með þessu
úr fjarlægð og reynir að átta sig á því hvað
er að eiga sér stað. Svo voru niðurstöðurnar
úr PISA-könnuninni athyglisverðar þar sem
staða íslenskra barna virðist ekki vera allt of
góð. Ég held að fslendingar ættu ekki að ör-
vænta því ég held að íslensk böm séu mjög
klár. Annars hef ég fulla trú á Þorgerði Katr-
ínu til að laga það sem aflaga hefur farið."
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Stóra femínistamálið
„f mínum huga er það náttúrulega
stóra femínistamálið sem stendur upp úr
í vikunni. Ég hef staðið í ströngu vegna
ummæla í fréttum lidu fféttastofunnar
minnar sem ég held úti á vefnum," segir
Egill Einarsson. Ummælin sem Egill ræðir
hér um lutu að nokkrum nafngreindum
konum sem barist hafa fyrir réttindum
kvenna á ýmsum sviðum. Drífa Snædal,
ffamkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, kærði
ummælin til lögreglu.
„Steininn tók svo úr þegar sagt var í
blöðum að ég hefði sagt að þessar konur
ættu skilið kynferðislegt ofbeldi. Hér var
verið að tala um kynlíf en ekki ofbeldi og
það er mikilvægt að gera greinarmun á
þessu." Egill segir að lögregla hafi ekki enn
haft samband við hann vegna ummælanna
og hann hyggst halda ró sinni. „Nú erÁsgeir
Kolbeinsson líka orðinn brjálaður út af
þessu og ég þarf að róa hann niður einhvern
veginn."
Egill Einarsson, vaxtarræktarfrömuður
Viðburðarík fjármálavika
„Maður á það til að horfa til þess sem
stendur manni næst. Enn ffekaii niðursveifla
og neikvæð þróun fjánnálamarkaðarins
hefur haldið athygli minni þessa vikuna.
Þó svo að breytingar á FL Group hafi
verið famar að spyrjast út var uppstokkun
fyrirtækisins án efa tíðindi vikunnar.
Ég get líka nefnt lækkun á lánshæfismati
FITCH á fyrirtækinu NIBC, fyrirtæki sem
Kaupþing keyptí ekki alls fyrir löngu. Aðrar
neikvæðar fféttir snúa að því að íslensk
fyrirtæki geta ekki byrjað að skrá hlutabréf
sín í evrum fyrr en um mitt næsta ár og
slæmar fféttir af þorskstofninum glöddu
ekki mikið. Mér finnst gaman að sjá að
hagtölur benda til þess að hagkerfið hafi
náð betra jafnvægi en verið hefur og að
viðskiptahalli sé að skreppa hratt saman.
Hröð aukning gjaldeyristekna af erlendum
ferðamönnum voru einnig góðar fréttír í
vikunni en á fyrstu 9 mánuðum ársins voru
tekjur okkar 45 milljarðar króna."
Ingólfur Bender, forstöðumaður
mRmim
Verðdæmi
Leðursófasett éður 239,000 kr
Nú 119,900 kr
Hornsofar tau áður 198,000 kr
Nú 103,000 kr
Hornsófar leður áður 249,000 kr
Nv Nú frá 159,000 kr
Leðursófasett LnJLUJ&ví
Hornsófasett
Sófasett með ínnbyggðum skemli
Borðstofuborð og stólar n
Sófaborð [\ JjJj ffSjf ^
Eldhúsborð V,
Rúmgaflar
Rúm í ýmsum stærðum og gerðum