Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 26
Matjurtir
./-Vc
* X
„Abgenglleg, falleg,
fróbleg og sfbast en ekkl
síst skemmtileg bók -
alvöru hvatning fyrlr
hörbustu innipúka til ab
laumast út á svalir eba f
garblnn slnn og prófa ab
rækta eigib graenmetl!"
Bryntlís Loftsdóttir
Vtíntstlúrl Eymurutsson
lkiknbúo Miils ox mennlnxar
SUMAR HÚSIÐ
RSGardurinn
Síbumúla 15,108 Reykjavík
Sími 586 800}, www.rit.is
úmsrunofíHúsia
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
HPI Savage X 4,6
fjarstýrður torfœru trukkur.
Öflugasta útgáfan til þessa.
saHftEC
lýsa allt að 30 daga samfleytt.
CJ
Á leiði
í garðinn Reykjalundur
sími 5301700 / www.rp.is Dælurehf.
lífjHjll
lím
26 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2007
Helgarblað PV
HIN HLIÐIN
v f
SIGRÍÐUR THORLACIUS ER SÖNGKONA ( HLJÓMSVEITINNI HJALTALÍN EN SVEITIN SENDI Á
DÖGUNUM FRÁ SÉR SÍNA FYRSTU BREIÐSKÍFU SEM NEFNIST SLEEPDRUNK SEASONS.
Nafn og kyn?
„Sigríður Thorlacius, kven-
kyn."
Atvinna?
„Söngkona og tónlistarnemi."
Hjúskaparstaða?
„Á í fullu fangi með sjálfa
mig."
Fjöldi bama?
„Ætli ég sé ekki sjálf mesta
barnið í mínu lífi?"
Átt þú gæludýr?
„Ég á tvo gullfiska. Þeir heita
Addi Palli og Bergþóra og þeir
eru úr plasti."
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„Tónleika Sinfómuhljóm-
sveitar Islands þar sem flutt
voru verk eftir Stravinsky og
Thomas Adés."
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Nei, ég er mjög löghlýðin og
hlýðin almennt."
Hver er uppáhaldsflíkin þín
ogafhveiju?
„Svört ullarslá, því hún er
bæði hlý og falleg."
Hefur þú farið í megrun?
„Já, já, það hefur verið reynt
á það. Ég er bara of góð við
sjálfa mig dl að nenna því al-
mennilega."
Grætur þú yfir minningar-
greinum um ókunnuga?
„Já, já, oft. Ég er rosalega mik-
ill skælari og það þarf oft ansi
lítíðtíl."
Trúir þú á ffamhaldslíf?
„Já, í einhverri mynd."
Hvaða lag skammast þú þín
mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Ég skammast mín bara ekki
neitt fyrir tónlistarsmekk
minn, hvorki fyrr né nú. Við-
urkenni samt að hann hefur
tekið allnokkrum breyting-
um í áranna rás. Er til dæmis
löngu hætt að hlusta á Ace of
Base og Haddaway."
Hvers hlakkar þú mest til?
„Að komast í jólafrí með öllu
tilheyrandi."
Spilar þú á hljóðfæri?
„Ég spila á hálsinn minn,
röddina og svo mættí segja að
ég glamri á píanó, en spilað get
ég ekki."
Styður þú ríkisstjórnina?
„I sumu, ekki öllu."
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Að eiga gott fólk í kringum sig
og að geta látíð sér og öðrum
líða vel."
Hvaða fræga einstakling
myndir þú helst vilja hitta og af
hverju?
„Ég veit það bara ekki. En það
hefði nú kannski verið gaman
að spjalla aðeins við Elvis."
Hvaðabókviltu fáí jólagjöf?
„Bíbí, eftirVigdísi Grímsdóttur."
Ertu með tattú?
„Nei, mér hefur oft dottið það í
hug en aldrei látíð verða af því.
Ég hugsa að ég fengi nóg af því
á fyrsta degi."
Hefur þú ort ljóð?
„Já, bara svona mjög
vandræðaleg unglingaljóð sem
ég myndi aldrei sýna nokkrum
manni."
Ert þú með einhverja leynda
hæfileika?
„Ég er rosalega góð í tetris."
Af hverju stafar mannkyninu
mest hætta?
„Ja, allavega ekki af mér."
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Mér líður rosalega vel heima
hjá méryfirleitt, en sakna þess
oft að búa ekki niðri í bæ. Það er
eitthvað við miðbæinn sem mér
þykir svo rosalega vænt um. Það
er líka svo gaman að skoða allt
hitt fólkið. Ég held ég verði að
segja miðbær Reykjavíkur."
Afrekvikunnar?
„Nýútkomin, gullfalleg plata
hljómsveitarinnar Hjaltalín,
Sleepdrunk Seasons."
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Stjörnuspáin bregst aldrei."