Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 43
DV ÆttfræBi FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 43 IFRETTUM VAR ÞETTA HELST... tESEMBER 1937 HILLI Á blaðamannafundinum boðaði borgarstjórinn því þau gleðitíðindi að hafist yrði handa með hitaveitu- firamkvæmdir í marsmánuði árið 1938. Reykvíkingar sáu því fram á aukna atvinnu og ódýran húshitun- arkost. Fyrst Ljósafossvirkjun... Þrátt fyrir kreppu, atvinnuleysi og lamandi haftastefnu ríkisins var ótrúlegur framkvæmdahugur í þeim sjálfstæðismönnum sem mynduðu meirihlutabæjarstjórnarReykjavíkur á fjórða áratugnum. Reykjavíkurbær hóf framkvæmdir við langstærstu virkjun landsins, Ljósafossvirkjun í Soginu, árið 1935, og veturinn 1937 fjórfaldaðist rafmagnsframleiðsla Reykvíkinga er virkjunin var tekin í notkun. Virkjunarframkvæmdimar höfðu veitt fjölda manns atvinnu á þessum atvinnuleysistímum og aukin rafmagnsnotkun heimila og fyrirtækj a var þj óðhagslega hagkvæm þar sem hún dró mjög úr eftirspurn eftir kolum og minnkaði þar með loftmengun. ...síðan hitaveita Aðeins örfáum vikum eftir að Ljósafossvirkjun tók til starfa, blés borgarstjórinn í Reykjavík, Pétur Halldórsson, til nýrrar sóknar á blaðamannafundinum sem getið er um hér að framan. Nú skyldi ráðist í hitaveitu - þá fýrstu í heiminum. Framkvæmdir við hana myndu veita fjölda manns atvinnu, íslensk orka leystí þá kolin enn frekar af hólmi, drægi auk þess ennfremur úr loftmengun yfir Reykjavík, færði Reykvíkingum húshitunarkost sem yrði miklu ódýrari en áður þekktist en yrði jafnframt traustur tekjustofn fyrir sveitarfélagið. Allar boranir og rannsóknir að Reykjum í Mosfellsdal lofuðu góðu, Helgi Sigurðsson, verkfræðingur og síðan fyrsti hitaveitustjórinn, hafði lokið við áætlunargerð fyrir fram- kvæmdirnar og Reykvíkingum var ekkert að vanbúnaði að hefja stór- kostlegustu og sérstæðustu opin- beru framkvæmdir fslandssögunnar. Fram til þessa hafði einungis skort lánsfé til framkvæmdanna. En nú virtist það í höfn. Lánssamningur pólitískt afrek Á þessum atvinnuleysis- og krepputímum var sérstaklega erfitt að fá erlent lánsfé til stórframkvæmda. Ekki bætti úr skák að hér var um að ræða framkvæmdir sem ekki áttu sinn líka né nein fordæmi í veröldinni - hitaveitu fýrir heilt bæjarfélag. Ríkisstjórnin gat ekki gengið í ábyrgð fyrir láninu enda hafði ver- ið lokað fyrir allt erlent lánstraust hennar í þrjú ár. Með þetta allt í huga virtíst lánssamningur borgarstjórans vera pólitískt afrek. NDIRHITAVE EITU Hitaveituskurður á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis Á striðsárunum voru götur og gangstéttir í Reykjavik sundur- grafnar af sllkum skurður um allan bæ. mm.f . -. Knud Zimsen Verkfræðingur var borgarstjóri 1914-1933. Verkfræðiborgarstjórar Pétur Halldórsson var fjórði borgarstjóri Reykjavíkur, frá 1935 til dauðadags 1940. Á undan honum hafði Jón Þorláksson verið borgar- stjóri frá 1933 og til dauðadags 1935. Hann var verkfræðingur, hafði lengi verið landsverkffæðingur, forsæt- isráðherra 1926-1927 og var fýrstí for- maður Sjálfstæðisflokksins. Á undan Framkvæmdir við Hitaveitu Reykjavíkur á árunum 1939 eða 1940 Hitaveitu- stokkur lagður upp í Mosfellssveit. Vinnubrögðin þættu fornfáleg í dag. Jón Þorláksson Verkfræðingur var borgarstjóri 1933-1935. Jóni var Knud Zimsen borgarstjóri á árunum 1914-1933. Hann var einn- ig verkfræðingur og kom, ásamt Jóni, mikið við sögu allra stórffamkvæmda Reykjavíkur, s.s. vamsveitunnar, hafn- argerðarinnar, virkjunar Elliðaánna og Sogsins og loks að málefnum hitaveitunnar. Það er í raun ótrúleg slembilukka að annar og þriðji borg- arstjóri Reykjavíkur skuli báðir hafa verið í ffernsm röð fyrstu kynslóðar verkffæðinga hér á landi. Líklega er ekki á neinn hallað þótt því sé hald- ið ffam að Guðmundur Björnsson landlæknir og verkff æðingarnir Knud Zimsen og Jón Þorláksson hafi öllum öðrum ffemur lagt grunninn að for- ystuhlutverki Reykjavíkur á 20. öld. Pétur Halldórsson borgarstjóri Pétur Halldórsson var ekki verk- fræðingur eins og forverar hans. En hann var mikill fjármála- og fram- kvæmdamaður og feikilega áhuga- samur um opinberar framkvæmdir bæjarins á þessum árum. Hann var Reykvíkingur í húð og hár, fæddur í Reykjavík 1887 en lést á besta aldri 1940. Pétur lauk stúdentsprófi 1907, hóf síðan lögfræðinám við Kaup- mannahafnarháskóla en hvarf frá námi eftir einn vetur, festi kaup á Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar og starfrækti hana til æviloka. Þá var hann alþingismaður á árun- um 1932-1940. Pétur Halldórsson Forstjóri var borgarstjóri 1935-1940. Faðir Péturs var Halldór Jónsson, bróðir Valgerðar, konu Þórhalls Bjarn- arsonar, biskups og alþingismanns. Systkinabörn við Pémr voru því Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra og Dóra Þórhallsdóttir, forsetaffú og tengdamóðir Gunnars Thoroddsen, borgarstjóra og forsætisráðherra. Móðir Pémrs var Kristjana, dóttir Péturs Guðjohnsen alþingismanns, af ætt Guðjohnsen- og Knudsenætt Þórólfs Ámasonar, fyrrv. borgarstjóra. Meðal barna Pémrs var Halldór teikn- ari. Lánið sem aldrei var tekið Skemmst er ffá að segja að ekki gekk eftír með enska iánið sem Pétur borgarstjóri taldi sig hafa samið um fyrir hitaveimna, enda unnu ffammá- menn í Framsóknarflokknum á þess- um árum með oddi og egg gegn því að Reykvíkingar gætu hafið sínar hita- veituffamkvæmdir. Af því er löng og ljót saga sem ekki verður tíunduð hér. Það var því ekki fyrr en í ársbyrj- un 1939 sem danska fyrirtækið Höj- gaard & Schultz tók að sér hitaveitu- framkvæmdimar og lánaði auk þess fé tíl verksins, ásamt Handelsbanken í Kaupmannahöfri. Danskt lán og heimsstyrjöld Skrifað var undir láns- og verk- takasamninginn í júní 1939 en þá var orðið stutt í síðari heimsstyrjöldina sem einnig settí strik í reikninginn. OM( MánudagslcvöldiðO 6. desember 1937 hélt Pétur Halldórsson borgarstjóri blaða- mannafund til að flytja Reylcvíkingum gleði- tíðindi: Hann hafði náð samlcomulagi við breskt fjármálafyrir- tælci um hagstætt fram- lcvæmdalán vegna fyr- irhugaðrar hitaveitu fyrir Reykjavík. Lánið hljóðaði upp á 215.000 sterlingspund sem þá jafngilti 4.760.000 íslenslcum lcrónum. Það var fyrirtækið Power Securities Corporation sem hugðist veita lánið eftir að ráðgefandi verlc- fræðingafyrirtælci, Meik & Halcrow, hafði lcynnt sér gerð hitaveitunnar og lolcið milclu lofsorði á störf reykvískra verlcfræðinga sem að áætluninni lcomu. Helgi Sigurðsson Verkfræðingur gerði áætlun um hitaveituna að Reykjum og hitaveitulögnina til bæjarins 1937 og var fyrsti hitaveitustjórinn til 1962. Einungis einn skipsfarmur af efni til ffamkvæmdanna náði tíl landsins frá Evrópu áður en styrjöldin skall á og ekki fékkst undanþága fyrir frekari slíkum flumingum. Hitaveimframkvæmdirnar hóf- ust í ágústmánuði 1939 en styrjöldin skall á 1. september. Árið 1941 stöðv- aðist verkið vegna efnisskorts. Að lok- um fékkst það efni sem á vantaði frá Bandaríkjunum en þó ekki átakalaust því tveimur skipum með hitaveitu- farm hingað til lands var sökkt á leið- inni. Verkinu miðaði þó áffarn, þrátt fyrir öll ljónin í veginum og 1. desem- ber 1943 var hleypt heim vami á fyrsta húsið sem fékk vatn ff á þessum ff am- kvæmdum. Það var Hnitbjörg, lista- safn Einars Jónssonar á Skólavörðu- hæð. Hitaveita Reykjavíkur var frá upphafi þjóðþrifafyrirtæki sem vís- aði fjölda annarra sveitarfélaga veg- inn í húshitun. Hún hefur sparað viðsldptavinum sínum mgi, ef ekki hundmð milljarða í himnarkosmað, losaði Reykvíkinga við kolareykinn og lagði grunninn að mannauði Orku- veim Reykjavíkur. Enn í dag eigum við því mikið að þakka kempum á borð við Knud Zimsen, Jón Þorláksson og Pémr Halldórsson, - mönnum sem tóku almannahagsmuni Reykvíkinga ffam yfir eiginhagsmunapot og vom óhræddir við áhættu og erfiðleika.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.