Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007
Helgarblað PV
ía stjörnurnar til fyrirmyndar
i, það er ekki hægt að keppa við
þvi saman helstu æfingaleiðir
jafnar.
Pilates Geysivinsælt
hjá stjörnunum.
Jessica Alba púlar (leikjatölvunni
Leikkonan unga Jessica Alba segist nota
Wii-leikjatölvuna til þess að halda sér í
formi. Þar getur hún spilað íþróttir á
borð við hafnabolta, tennis og keilu,
með tilheyrandi svita og púli. Hópur
lækna í Bretlandi komst að þvi á
dögunum að þeir krakkar sem spiluðu
Wii brenndu margfalt fleiri hitaeinginum
en þeir sem nota aðrar leikjatölvur.
Kúrinn kallast Wii-kúrinn, en yrði
sjálfsagt ekki samþykktur af hvaða
heimilislækni sem er.
Alvöru herþjálfun fyrir Jessicu
Jessica Simpson hefur ávallt verið í góðu
llkamlegu formi. Hins vegar þurfti hún
að gera enn beturfyrir hlutverk sitt í
myndinni Major Movie Star sem er
væntanleg á næsta ári. Jessica fór í
herþjálfun, þar sem hún þurfti að klifra i
gegnum dekk og yfir veggi í fullum
herklæðum. Þá segist hún passa sig að
borða nóg af hollum kolvetnum. Mikið af
hýðishrisgrjónum, kjúklingi og fiski.Til
þess að seðja sætustu langanirfær hún
sér sykurlaust hlaup.
2000 ára gamalt leyndarmál
Margar stjörnur hafa tekið upp á því að
nota rússneskar ketilbjöllurtil þess að að
hjálpa sér að komast (form. Bjöllurnar
eru aldagömul tækni, níðþung og
hálffrumstæð lóð sem hjálpa öllum
líkamanum að styrkjast. Meðal þeirra
sem notaö hafa ketilbjöllurtil þess að
koma sér í form eru Jennifer Lopez,
Penelope Cruz og Kryddstúlkan Geri
Halliwell. Þeim sem hafa áhuga á
ketilbjöllum er bent á heimaslðuna
kettlebells.is, sem býður upp á hóptíma
og einnig bjöllurtil sölu.
Hleypur 19 kílómetra á dag
Leikarinn og rapparinn LL Cool J var
þekktur fyrir að vera nokkuð þéttur á
velli. Rapparinn lét sig svo hverfa fyrir
nokkrum árum og kom til baka í
vaxtarræktarformi.
LL hleypur 12 mílur á dag, sem eru rúmir
19 kílómetrar. Þá leggur hann einnig
stund á hnefaleika samhliða rosalegum
lyftingaæfingum. Ketilbjöllur, frjáls lóð,
armbeygjur og upphífingar eru það sem
virkarfyrir rapparann.
Angelina Jolie fer i öfgarnar
Þrátt fyrir að Angelina Jolle eigi í fullu
fangi með börn sín, móðurmissinn og
nýjan kærasta (dag, hefur hún löngum
verið þekkt fyrir að vera (góðu formi.
Áður en leikkonan lék (Tomb Raider-
kvikmyndunum fór hún á sérsakt
próteinmataræði, þar sem hún borðaði
næstum eingöngu kjöt og sardínur. Hún
æfði sparkbox af mikilli hörku, kafaði,
æfði aðrar bardagalistir og hljóp eins og
vindurinn um allar trissur. Jóga, lyftingar
og jafnvel ballett. Angelina kallar ekki
allt ömmu s(na.
Budokon virkar fyrir Aniston
Jennifer Aniston stundar nú af kappi
sjálfstyrkingaræfingar að hætti budokon,
sem er úr smiðju Kkamsræktarfrömuðar-
ins Cameron Shayne. Budokon er
sambland af íhugun, teygjuæfingum,,
jóga, bardagalistum og öðrum kúnstum,
sem mynda svo kerfi sem á að færa
iðkendum þessa vellíðan á diski. (
budokon á fólk bæði að geta lært að
verja sig og einnig hreinsað hugann eftir
amstur dagsins. Margir efast um virkni
og gildi Budokons, en fáir efast um
þokkann sem Aniston gefur frá sér þessa
dagana.
Usher heldur því náttúrulegu
R&b-söngvarinn Usherer líklega með
stinnustu magavöðva sem sést hafa í
Hollywood. Usher Kkar ekki að nota
nýjustu tæki og tól til þess að halda sér í
formi, heldur gerir hann æfingarnar
heimafyrir. Usher gerir um 1000
magaæfingar á dag og þar að auki tekur
hann 40 mínútna æfingu á hverjum degi
sem hann kallar„fjörutíu mínúturaf
fönki." Þar teygir hann, sippar og gerir
aðrar eróbikkæfingar. Þá gætir hann sin
á því að borða nóg af fiski, kjúklingi
ávöxtum og grænmeti. Á meðan hann
stillir neyslunni á hrísgrjónum, pasta og
kartöflum í hóf.
Damon boxar
Leikarinn Matt Damon þurfti að koma
sér (gott líkamlegt form fyrir Bourne-
myndirnar. Matt ákvað í stað þess að
svitna í tækjasalnum að æfa hnefaleika.
Margir hafa sagt iþróttina vera eina þá
erfiðustu (heimi, en í hnefaleikaæfing-
um er púlað alveg rosalega. Matt er (
besta formi lífs síns, nóg er af stöðum
sem kenna hnefaleika á Islandi.
Geysivinsælt pilates
Pilates-jóga hefurfarið sigurför um
heiminn, en ferðalagið hófst einhvers
staðar í Hollywood. Meðal þeirra sem
stunda pilates eru Sharon Stone og Julia
Roberts. Julia er sögð hafa misst öll sín
aukakíló sem komu eftir óléttuna með
aðstoð pilates-tækninnar.
Heilsufríkið Madonna
Madonna er kannski nógu gömul til þess
að vera amma, en það sést ekki á henni
að hún sé að nálgast fimmtugt.
Söngkonan stundar mikið af ashtanga-
jóga, sem er einstaklega erfitt. Hún fer í
líkamsræktina og segja menn að hún
hjóli þangað, sem sagt tvær æfingar i
einni. Hún snertir ekki við ruslmat og
borðar aðeins náttúrulegar og óunnar
vörur. Mikið heilhveiti og mikið af
grænmeti. Með þess háttar klókindum er
hægt að sigrast á tímanum.
Púlaði til þess að líta út eins og
morðingi
Daniel Craig þurfti að gangast undir
djöfullegt æfingaprógram fyrir hlutverk
sitt sem James Bond í myndinni Casino
Royal.„Ég hætti að reykja og æfði fimm
daga vikunnar, um helgar át ég og drakk
að vild. Æfingarnar foru flestar aðeins 45
minútur, en afar vægðarlausar. Við
notuðum stöðvaþjálfun, frjáls lóð og
mikið af upþhífingum. Nú get ég tekið
mína eigin líkamsþyngd (bekkpressu. Ég
sagði við einkaþjálfarann minn, ég verð
að líta út fyrir að geta drepið einhvern
þegar ég fer úr skyrtunni," segir Craig.
Gwyneth heldur því fjölbreyttu
Leikkonan Gwyneth Paltrow æfir jóga
eða pilates á hverjum degi. Hún segist
púla nóg við að eltast við börn sín Apple
og Moses, en skellir sér stöku sinnum í
ræktina vilji hún svitna almennilega.
Áður fyrr borðaði Gwyneth eingöngu
makróbíótískan mat, en hefur hætt því
síðan hún varð móðir. Nú reynir hún að
sneiða framhjá öllum óþarfa sykri og
mjólkurvörum. Borðar lífrænt ræktað
grænmeti, mikið heilhveiti og mikið af
linsubaunum og þess háttar.