Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
Fréttir DV
F
FRETTIR
& Nvioauooi óíi fB
Glæsibílabruni
enn óupplýstur
Lögreglan á Suðurnesjum hef-
ur enn ekki haft hendur í hári þess
sem kveikti í tíu glæsibifreiðum
við höfnina í Vogum á Vatnsleysu-
strönd, árla morguns sunnudag-
inn 9. desember. Rannsóknin
stendur enn yfir og treysti rann-
sóknardeild lögreglunnar sér ekki
til þess að gefa nánari upplýsingar
um framvinduna.
Bflarnir voru í eigu Ragnars
Magnússonar veitingamanns sem
sagðist hafa ætíað að dekra við
bflana tíu með aðstoð vinar síns
Annþórs Karlssonar, sem þekktur
er fyrir ofbeldisverk.
Fimm þúsund
tonn þorsks
Guðmundur í Nesi og Venus
fengu úthlutað hæstu þorsk-
aflaheimildunum í norskri og
rússneskri lögsögu. Fiskistofa
sér um að úthluta heimildun-
um og úthlutaði samanlagt
rúmum fimm þúsund tonnum,
þrjú þúsund tonnum í norskri
og tvö þúsund tonnum í rúss-
neskri lögsögu.
Guðmundur í Nesi fær
samanlagt rúmlega 800 tonna
aflaheimildir og Venus hátt í
700 tonn.
Árni rökstyður
ráðningu
Arni Mathiesen rökstyður
ráðningu Þorsteins Davíðs-
sonar í embætti héraðsdóm-
ara við Héraðsdóm Norð-
urlands
eystra,
meðal ann-
ars með
því að Þor-
steinn
hafi gegnt
veigamikl-
um nefnd-
arstörfum
hjáhinu opinbera. Guðmund-
ur Kristjánsson og Pétur Dam
Leifsson höfðu sótt um starf
héraðsdómara. Þorsteini er
talið til tekna að hafa setið í
dómnefnd bókmenntaverð-
iauna Tómasar Guðmunds-
sonar. Þá er bent á starf hans
sem aðstoðarmaður ráðherra.
Rökþrota
ráðherra
Ragnheiður Jónsdóttir,
lögmaður og einn umsækj-
enda um starf héraðsdómara,
segir að rökstuðningur Árna
sýni í hvers konar þrot Árni
Mathiesen er kominn. Ragn-
heiður hefur sex ára reynslu
frá Héraðs-
dómi Norð-
urlands
eystra en
hún hef-
ur starfað
fyrir sýslu-
manns-
embættið
á Húsavík
undanfarin ár. Sjálf segist hún
hafa átt von á að Guðmundur
Kristjánsson hæstaréttarlög-
maður yrði fyrir valinu. Hann
hefur verið í lögmennsku í
35 ár. Þorsteinn Davíðsson
útskrifaðist úr lögfræðí áfið
1999 og hlaut réttindi til mál-
flutnings fyrir héraðsdómi
árið 2005.
Fyrrverandi sambýlismaður og 17 ára fóstursonur erlendrar konu sem býr við Nes-
haga í Reykjavík eru báðir grunaðir um að hafa kveikt í ibúð hennar um síðustu
helgi. Orðiö er ljóst að um íkveikju er að ræða.
"Pj
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadur skrifar: trausti@dv.is ■HL.
Ljóst er orðið að kveikt var í íbúð í
fjölbýlishúsi á Neshaga aðfaranótt
þrettándans. Þar býr kona af er-
lendum uppruna og eru fyrrverandi
sambýlismaður og 17 ára fóstur-
sonur hennar grunaðir um verkn-
aðinn.
Konan býr í húsinu með tveim-
ur sonum sínum en þau voru stödd
í heimalandi sínu þegar bruninn
varð, laust fyrir klukkan eitt aðfara-
nótt sunnudagsins 6. janúar. Fjöl-
skyldan hefur leigt íbúð á fyrstu
hæð blokkarinnar í rúm tvö ár. Veg-
farandi varð eldsins var og gerði
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
viðvart. Eldur skíðlogaði í íbúðinni
þegar slökkviliðið kom á staðinn
og mildi þykir að hann náði ekki að
breiðast út til nærliggjandi fbúða.
Grunuð um vændi
Konan er ekkja eftir fslending og
fóstursonurinn er sonur hins látna
eiginmanns. Hún hefur sjálf verið
til skoðunar hjá kynferðisbrotadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu, grunuð um vændisstarfsemi og
vanrækslu barna sinna. Það var fyrr-
verandi sambýlismaður konunnar
sem tilkynnti hana til lögreglu og
bar því við að hagur barnanna væri
í húfi. Hann er nú í þeirri stöðu að
vera grunaður um íkveikjuna.
Samkvæmt heimildum DV hef-
ur tekist að færa sönnur á að konan
stundi vændisstarfsemi án þess að
frekar verði aðhafst í þeim efnum.
Hér á landi telst hvorki refsivert að
stunda vændi né kaupa slíka þjón-
ustu, aðeins er von á refsingu hafi
einstaklingur milligöngu um slík
viðskipti í hagnaðarskyni. Hins veg-
ar er hugsanlegt að háttalag móð-
urinnar brjóti gegn barnaverndar-
lögum.
Innsigluð íbúð
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem reynt
er að kveikja í þessari íbúð því í ágúst
2006 var bensínsprengju kastað þar
inn. Þá var fjölskyldan einnig stödd
erlendis og fékk fréttímar í gegnum
lögregluna. Lögreglan telur víst að
íkveikjumar tengist og eru hinir gmn-
uðu, sambýlismaðurinn fyrrverandi
og fóstursonurinn, grunaðir um hvort
tveggja.
Lögregla hefur innsiglað íbúðina á
meðan rannsókn stendur yfir. Leigu-
sali konunnar hefur ítrekað reynt að
ná í hana í útíöndum en fram tíl þessa
hefur það ekki borið árangur. Það er
því óvíst hvort hún viti nokkuð um
brunann, ef sú vimeskja hefúr borist
henni er það í gegnum tflraunir lög-
reglunnar til að hafa uppi á henni í
heimalandi hennar. Aðspurður segir
leigusalinn tíklegt að gera þurfi breyt-
ingar á leiguhaldinu í ljósi þess að tví-
vegis hefur verið kveikt í íbúðinni á
innan við tveimur árum.
Fór eftir fyrri brunann
Sverrir Kristján Einarsson, fyrr-
verandi íbúi í fjölbýlishúsinu, bjó þar
þegar kveikt var í íbúðinni með bens-
ínsprengjunni árið 2006. Hann segist
hafa sett íbúðina á sölu í kjölfar fyrri
brunans. „Ég var vakandi þegar kveikt
var í í fyrra skiptíð og áttí ég ekki von
á neinu svona löguðu. Skyndilega
fór ég að finna reykjarlykt og þá var
kviknað í íbúðinni. Brennuvargurinn
kom að blokkinni með stiga og kast-
aði bensínsprengjunni inn í íbúðina,"
segir Sverrir.
„Þetta var klárlega íkveikja þeg-
ar ég bjó þarna og ég held að löggan
hafi verið í hörkueltíngaleik í leit að
brennuvarginum. Ég var búinn að
vera að hugsa um að flytja þegar að
þessu kom. Þegar kveilú var í íbúð-
inni með þessum hætti var ekki erf-
itt að ákveða sig endanlega því ekki
hafði ég áhuga á að vera þarna áfram
eigandi á hættu að aftur yrði kveikt í í
framtíðinni."
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir ætlar aö leita til umboðsmanns Alþingis:
Osátt við rök ráðherra
„Ég kem örugglega til með að fara
með málið alla leið," segir Ragnheið-
ur I. Þórarinsdóttir aðstoðarorku-
málastjóri. Össur Skarphéðinsson
iðnaðaráðherra sendi Ragnheiði í
gær röksmðning fyrir skipun doktors
Guðna A. Jóhannessonar í embætti
orkumálastjóra um áramótin.
Ragnheiður, sem sótti einnig um
starfið, var ósátt við ráðningu Guðna
og óskaði eftir rökstuðningi sem
barst í gær. Þar segir Össur meðal
annars að Guðni hafi ágæta reynslu
af stjórnun og rekstri auk þess að
hafa birt fjölda vísinda- og fræði-
greina í tímarimm tengdum orku-
og auðlindamálum. Ragnheiður seg-
ist ósátt við röksemdir Össurar og að
þær séu ekki fulinægjandi að henn-
ar mati. Hún gagnrýnir að svo virðist
sem auglýsingin um starfið hafi ekki
verið höfð til hliðsjónar við ráðn-
inguna. „Hann tilgreinir að hann
hafi meiri menntun þó ég til dæm-
is hafa aðra gráðu heldur en hann.
Það er gert lítíð úr MBA-gráðunni og
lítið gert úr þeim þátmm sem koma
fram í auglýsingunni um reynslu af
stjórnun og rekstri. Það er mjög lítið
minnst á stjórnsýsluþættí og þekk-
ingu á orkugeiranum hér á landi. Það
eru ótal þættir sem ég set spurninga-
merki við."
Meðal þess sem Guðna var talið til
tekna var staða hans sem prófessor í
Konunglega verkffæðiháskólanum í
Stokkhólmi auk þess að hafa gefið út
fjölda fræðigreina. „Ég hef einnig gef-
ið út margar ritrýndar greinar á mín-
um ferli. Eg hef einnig verið leiðbein-
andi í meistara- og doktorsritgerðum
og hef góð alþjóðleg tengsl. Það verð-
ur ekki tekið af Guðna að hann hefur
staðið sig vel sem prófessor. En mað-
ur spyr sig hvaða þættir hafi
verið lagðir til gmndvallar
við ráðninguna."
Ragnheiður segist ekki
vera farin að hugleiða
framtíð sína og segist ætía
að taka eitt skref fyrir í
einu. Hún ætíar að leita tíl
umboðsmanns Alþingis
varðandi ráðninguna og
segist ætía að fara með
málið alla leið. „Ef menn
em heilir í sínu fer allt vel að
lokum," segir Ragnheiður.
Saman í Alþýðubandalaginu Ragnheiður
er ósátt við skipun Össurar á Guðna A.
Jóhannessyrii. Hún spyr hvaða þættir hafi
verið lagðirtil grundvallar viö ráðninguna.