Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
Frittir DV
Fengu á þriðju
milljón í styrki
Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra afhenti
MND-félaginu styrk til rekstrar
starfsemi sinnar í fyrradag.
Ráðherrann afhenti Guðjóni
Sigurðssyni, formanni félagsins,
um 500 þúsund krónur.
Við sama tækifæri afhentu
Grímur Sæmundsen,
forstjóri Bláa lónsins, og
Suðurnesjamennirnir Ásmundur
Friðriksson og Axel Jónsson
MND-félaginu tvær milljónir
króna. Þeir beittu sér, ásamt
forsvarsmönnum Bláa lónsins,
fyrir söfnun fjárins meðal gesta
í hátíðarkvöldverði sem haldinn
var í Bláa lóninu í samstarfi við
Sparisjóðinn í Keflavík og Bláa
lónið fyrir skemmstu.
Kanna kostnað
við nagladekk
Umhverfisráð Reykjavík-
urborgar samþykkti á fundi
sínum í gær að láta kanna
hversu mikið nagladekk kosta
borgarbúana. Markmiðið er
að fá á hreint hversu miklum
skemmdum nagladekkvalda
á umferðaræðum og hversu
mikið kostar að lagfæra þær
skemmdir. Þar að auki á að
kanna kostnað af tjöruaustri
og neikvæðum áhrifum svif-
ryks og þann kostnað sem það
hefur í för með sér.
rværvikuríað
Syrgismálið skýrist
Tvær vikur eru í að fr egna megi
vænta af rannsókn á kynferðis-
brotum í Byrgismálinu svokall-
aða. Ríkissaksóknaraembættið
fer með rannsókn málsins en átta
konur hafa lagt fram kæru vegna
kynferðisbrota á hendur Guð-
mundi Jónssyni, fyrrverandi for-
stöðumanni Byrgisins. Rúmt ár er
síðan málið komst í hámæli.
Efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra rannsakar skattahluta
Byrgismálsins og auðgunarbrota-
hluta. Þar fengust þær upplýsingar
að rannsókn væri í fullum gangi og
nokkuð í að henni lyki. Ekki er ljóst
hvort ákærur verða gefnar út.
Tvö og hálft
skeyti á mann
Alls voru 830 þúsund smá-
skilaboð send aðfaranótt ný-
ársdags, samkvæmt upplýsing-
um frá Símanum. Þar er um að
ræða 30 prósenta aukningu á
milli ára. Ef miðað er við tölur
frá Hagstofu tslands yfir mann-
fjölda á íslandi voru íslending-
ar rétt tæplega 313 þúsund 1.
desember. Því má reikna með
að hver íslendingur hafi sent
um 2,65 skeyti eftir að nýtt ár
gekkígarð.
Samkvæmt upplýsingum
frá Símanum má sjá mikla
fjölgun smáskilaboð á milli
ára. Á gamlársdag jókst um-
ferð skilaboðanna jafnt og þétt
fram yfir miðnætti þegar álag á
kerfi Símans var hvað mest.
Landgræðsla ríkisins hefur rifið niður eina af fasteignum sinum að Gunnarsholti þar
sem Götusmiðjan hafði áður aðsetur. Það var gert þrátt fyrir að tvö kauptilboð lægju fyr-
ir, annað þeirra upp á 60 milljónir króna. Áhugasamir kaupendur skilja ekki hvers vegna
tilboð þeirra voru hundsuð og ihuga að leita réttar sins.
Götusmiðjan Unglingaheimilið var áður
starfrækt í Gunnarsholti. Mummi
forstöðumaður segir súrt að horfa á eftir
gömlu höfuðstöðvunum sinum.
fl fí
. - I
4$ U 4
‘>í/
ii
* . JOkffl v
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaöamaöur skrifar: traustmdv.is
Búið er að rífa húsið sem áður hýsti
Götusmiðjuna í Gunnarsholti. Það
var rifið í desember þrátt fyrir að
kauptilboð hefðu borist í húsnæðið.
Það var metið ónýtt af yfirvöldum og
ekki talið svara kostnaði að gera end-
urbætur á því.
Húsið var nærri 1.000 fermetrar
að gólffleti. Það var fært undir vernd-
arvæng Landgræðslu ríkisins í fyrra
er unglingaheimilið var flutt á Efri-
Brú, þar sem áður var meðferðar-
heimilið Byrgið. Húsið var reist árið
1955 og þar var fyrstu árin embættis-
mannabústaður. Síðar stoftiaði heil-
brigðisráðuneytið vistheimili fyrir
drykkjusjúklinga í Gunnarsholti og
var það starfrækt til ársins 2003. Eftir
að heimilið var lagt niður fékk Götu-
smiðjan að leigja húsið undir starf-
semi sína. Hin síðari ár hafði viðhaldi
hússins verið verulega ábótavant og á
endanum var svo komið að það veitti
„Aftur á móti veit ég til
þess að gerð voru tvö
peningatiiboð í húsið
en samt var það rifíð."
varia lengur skjól fyrir veðri og vind-
um.
Búið að ganga frá öllu
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri segir ekkert annað hafa komið
til greina en að rífa húsið. Hann bend-
ir á að ýmsar eftirlitsstofnanir hafi um
árabil gert athugasemdir við ástand
húsnæðisins. „Niðurrifinu er lokið og
búið að ganga frá að öllu leyti. Kröf-
ur um brunavamir og heilbrigðismál
gerðu það að verkum að útilokað var
að reka þar starfsemi. Það var talið
gríðarlega dýrt að gera við húsið og
því var best að rífa það. Til þess feng-
um við leyfi ffá fjármálaráðuneytinu
og unnum þetta í góðu samstarfi við
tilheyrandi yfirvöld," segir Sveinn.
Guðmundur Týr Þórarinsson, for-
stöðumaður Götusmiðjunnar, horfir
svekktur á eftir húsnæðinu og skilur
ekki hvers vegna það var rifið. „Mér
finnst dapurt að húsið skuli hafa ver-
ið rifið. Það er blóðugt að sjá hvernig
eignir ríkisins hafa grotnað niður. Aft-
ur á móti veit ég til þess að gerð voru
tvö peningatilboð í húsið en samt var
það rifið. Það skil ég ekki því þetta eru
verðmæti landsmanna. Þó að húsið
hafi verið orðið lélegt er súrt að horfa
á eftir því," segir Guðmundur.
Göfug markmið
Lúvís Pétursson, meðferðarfúlltrúi
í Götusmiðjunni, leiðir hóp sem
lagði ffam 60 milljóna króna tilboð í
húsnæðið. Hann undrast hvers vegna
húsið hafi verið rifið þrátt fyrir áhuga
á endurbótum á því. „Við fengum
þau svör að fyrir löngu væri búið að
ákveða að rífa húsið. Mér finnst skrítið
að ekki hafi verið hægt að endurskoða
þá ákvörðun í ljósi þess að kauptilboð
lágu fyrir," segir Lúvís.
„Sjálfur starfaði ég í Götusmiðj-
unni á sínum tíma og sá not fyr-
ir húsið. í höndunum hef ég tilboð
í viðgerð á því sem hljóðaði upp á
a
<■■ *
Fengu leyfi Landrækt ríkisins
fékk leyfi frá fjármálaráðuneyt-
inu til þess að rífa húsið.
miklu minni fjárhæðir en ríkið held-
ur fram. Við æduðum að setja á fót
meðferðarheimili fyrir unglinga sem
hvergi eiga athvarf og leiðst hafa út
í afbrot og neyslu. Vandinn var sá
að þeir vildu hreinlega ekki fá neina
starfsemi þarna aftur, það skiptí
ekki máli hversu göfug markmið við
höfðum um framtíð hússins."
Umhverfisráðherra skipar nefnd til þess að kljást við fríblöð og ruslpóst:
Ötgefendur beri ábyrgð á óumbeðnum dagblöðum
Þórunn Sveinbjamardóttir um-
hverfisráðherra hefur skipað nefnd
sem á að athuga hvort hægt sé að
minnka úrgang af völdum fríblaða
og auglýsingapósts. Nefndin á meðal
annars að athuga leiðir til þess að inn-
leiða svokallaða framleiðendaábyrgð.
„Hugsunin er sú að þeir sem fram-
leiða og dreifa fríblöðum og fjölpósti
beri ábyrgð á þessum vörum alla leið-
ina í endurvinnsluna," segir Sigur-
björg Sæmundsdóttir, deildarstjóri í
umhverfisráðuneytínu og formaður
nefndarinnar.
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla,
sem gefa út Fréttablaðið, á sætí í
nefndinni. „Þetta snýst ekki um
að auka skattíagningu á þennan
atvinnureksmr frekar en aðra," segir
hann og bætir við að hann telji að
framleiðendaábyrgðin komi tíl með
að snerta bæði útgefendur fríblaða
sem og áskriftarbiaða. „Það verður
auðvitað verkefni fyrir okkur að finna
hagkvæmustu leiðimar tíl þess að
ná þessum markmiðum," segir hann
spurður um kostnað fyritækja við
að skila óumbeðnum dagblöðum til
endurvinnslu.
Ari bendir á að Fréttablaðið og
dreifingaraðilinn, Pósthúsið, hafi
þegar komið upp kössum
fyrir afgangsblöð þar
sem Fréttablaðinu er
dreift í stórum stíl.
Dreifingaraðilinn
sjái svo til þess að
þessi blöð fari til
endurvinnslu. „Að-
alatriðið er að ná
pappímum til endur-
vinnslu þannig að hann
flokkist frá venjulega
sorpi," segir Ari.
Þess em dæmi
frá Norðurlöndunum að
Dagblöð Nálægt200
þúsund eintökum af
fríblöðum er dreift til
landsmanna daglega.
útgefendur fríblaða
beri ábyrgð á úrgangi
sem útgáfan skapar.
Sigurbjörg segir að þetta
eigi jafrtvel við um fleiri
vömflokka. „Það hefúr orðið
gríðarleg þróun í þessum efnum á
Forstjóri 365 Ari Edwald
segir að mikilvægast sé að
blöðin komist í endurvinnslu.
síðustu árum, jafrivel þótt við séum
rétt að byrja. Ég mun kalla nefndina
til starfa á næstu dögum og hún mun
kafa í málið. Það er allt eins líklegt að
niðurstöður nefndarinnar muni kalla
á einhveijar lagabreytíngar þegar upp
er staðið," segir Sigurbjörg. sigtryggur@