Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Side 7
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008 7
Maðurinn sem grunaður er um að hafa ekið á íjögurra ára dreng í Keflavík með þeim afleiðingum að hann lést
verður áfram í farbanni. Lögreglan telur að hann hafi talað við vitni, fengið þau til þess að samræma framburð og
spillt þannig rannsókn málsins. Fulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir að rannsókn málsins sé á lokastigi.
I farbanni Maðurinn sem grunaður er um að
hafa banaö fjögurra ára dreng gengur út úr
dómssal í Hafnarfirði í gær. Hann þarf að láta
lögreglu vita um ferðir sínar einu sinni á dag.
SPILLTIFRAMBURÐIVITNANNA
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON I
bladamadurskrifor: sigtryggur^dv.is
Farbann yfir Pólverja á fertugsaldri
sem grunaður er um að hafa ekið á
Kristin Veigar Sigurðsson, fjögurra
ára, með þeim afleiðingum að
hann lést, var í gær framlengt til
29. janúar. Maðurinn hefur verið í
farbanni frá því að gæsluvarðhald
yfir honum rann út fyrrihluta
desembermánaðar.
Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi hjá
lögreglunni á Suðurnesjum, segir
rannsókn málsins nærri lokið. Vitn-
um að atburðinum ber í dag sam-
„Við erum farin að sjá
fyrir endann á þessu."
an um það sem átti sér stað, en þau
voru áður ósamhljóða. Talið er að
hinn grunaði hafi ráðfært sig við
vitnin og spillt rannsókn málsins.
„Við erum farin að sjá fyrir endann
á þessu," segir Eyjólfur.
Samræmdu vitnisburðinn
Jóhann R. Benediktsson,
lögreglustjóri á Suðurnesjum, hefur
þegar lýst vonbrigðum sínum yfir
því að Héraðsdómur Reykjaness
hafi sett hinn meinta ökumann í
farbann í stað þess að framlengja
gæsluvarðhald. Litlu hafi breytt
þótt Hæstiréttur hafi verið sammála
héraðsdómara því skaðinn hafi
þegar verið skeður.
Heimildamenn innan
lögreglunnar benda á að hinn
grunaði hafi haft ráðrúm til þess
að samræma framburð vitnanna
fjögurra strax eftir að ekið var á litla
drenginn. Atburðurinn hafi átt sér
stað föstudaginn 30. nóvember og
fyrstu handtökurnar ekki fyrr en
rúmum sólarhring síðar.
Mistökin ekki lögreglunnar
Lögreglan vill ekki meina að mis-
tök hafi orðið við rannsókn málsins.
Niðurstöðu héraðsdómara um að
sleppa manninum lausum hafi orð-
ið að hlíta. Sömu aðilar fara með
rannsókn málsins og í upphafi, og
ekki er ráðgert að skipta út rann-
sóknarlögreglumönnum.
Sjálfur hefur maðurinn staðfast-
lega neitað sök alveg frá upphafi.
Fjöldi fólks var yfirheyrður vegna
málsins í byrjun desembermánaðar.
Tvær bifreiðar óku strax í kjölfar bíls
hins grunaða, en enginn þeirra sem
komu að slysinu gat gert skýra grein
fyrir atburðarásinni.
Sorg og reiði
Ákeyrslan átti sér stað í
síðdegisrökkri 30. nóvember á
mótum Vesturgötu og Birkiteigs í
Keflavík. Ökumaðurinn ók óhikað
af vettvangi. Kristinn Veigar hlaut
alvarlega áverka, meðal annars á
höfði, og er talið að hliðarspegill
hafi valdið höfuðáverkunum. Litla
drengnum var haldið sofandi á
gjörgæslu og lést hann af áverkum
kvöldið eftir. Fljótlega beindist
grunur að eiganda dökkrar skutbif-
reiðar, en trefjar úr fötum drengsins
fundust á henni.
Sorg og reiði ríktu vegna málsins
og sýndu íbúar hluttekningu sína
með því að tendra á kertum á slysstað
og fjölmenna til minningarathafnar
um Kristin. Fyrst eftir atburðinn bar
nokkuð á andúð í garð útlendinga í
Reykjanesbæ.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
Kópavogur aðhefst ekki meira vegna ásakana um einelti:
Eineltismáli á bókasafni lokið
Kannabisplöntur
á Akureyri
Lögreglan á Akureyri lagði
hald á fimm kannabisplöntur
í íbúð í bænum í síðustu viku.
Lögregluna grunaði að þar
færi ff am kannabisræktim en
auk kannabisplantnanna lagði
lögreglan hald á fimm hitalampa
og annan búnað sem notaður
var við ræktunina. Tveir menn á
þrítugsaldri voru handteknir og
viðurkenndu við yfirheyrslu að hafa
staðið fyrir ræktuninni. í íbúðinni
fannst einnig þýfi úr innbroti í
veitingahúsið Strikið á Akureyri.
Annar mannanna viðurkenndi að
hafa brotist inn á staðinn.
„Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa
formlega lokið ágreiningsmáli um
stjórnunarhætti bæjarbókavarðar.
Honum og kæranda var formlega til-
kynnt um niðurstöðuna," segir Þór
Jónsson, forstöðumaður almanna-
tengsla Kópavogsbæjar.
DV greindi frá því í gær að nú-
verandi og fyrrverandi starfsmenn
Bókasafns Kópavogsbæjar lýsa eft-
ir formlegri niðurstöðu í kærumáli
á hendur bæjarbókaverði Kópa-
vogs frá árinu 2005. í samtölum við
DV undrast flestir viðmælendurnir
hvers vegna forstöðumaður bóka-
safnsins hafi hvorki verið hreinsaður
af ásökununum né áminntur í kjölfar
kærunnar.
Þórbendiráaðóháðir sálfræðingar
hafi rannsakað málið og komist að
þeirri niðurstöðu að ekki reynist fótur
fýrir ásökunum um einelti af hálfu
bæjarbókavarðarins. Hann segir litið
alvarlegum augum á fullyrðingar Kópavogsbæjar sæti einelti og heldur
þess sem lagði fram kæruna um ekkiaðþeirséubornirröngumsökum
eineltistilburði forstöðumannsins. um að stunda einelti," segir Þór.
„Ekki er liðið að starfsmenn trausti@dv.is
Bókasafn Kópavogs Fyrrverandi
og núverandi starfsmenn hafa lýst
eftirformlegri niöurstöðu en
bæjaryfirvöld segja málinu lokið.