Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Blaðsíða 9
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008 9
sina
Nicolas Sarkozy Tilkynnti um
alvarleika sambands síns og Cörlu
Bruni á blaðamannafundi í gær.
Bandaríkin. Þó hann hafi verið and-
vígur innrás þeirra í írak hefur hann
ekki farið í launkofa með skoðun
sínaádeilu vesturveldanna við írani
vegna kjamorkuáætlana þeirra síð-
amefiidu. Ef eitthvað er hefur hann
tekið dýpra í árinni en Bandaríkja-
menn um hættuna sem heimsfriðn-
,lrn stafar af írönum. Gekk Sarkozy
: að Kínverjum að leggja blessun
yfir hertar refsiaðgerðir gagn-
vart Irönum vegna þess, en gaf sér
þó tíma til að stofna til dýrmætra og
mikilvægra viðskiptasambanda við
kínversk stjómvöld.
Gmnnt hefur verið á því góða í
sambandi Frakka við fýrrverandi
nýlendu þeirra, Alsír. í opinberri
heimsókn til Alsírs tókst Sarkozy að
bera klæði á vopnin, að meira leyti
en fyrr hafði tekist.
Skilnaðurog ástkona
Þann 18. október 2007 var til-
kynnt að Sarkozy og Cécilia, eigin-
kona hans, hefðu skilið í fiillri vin-
semd. Sambúð þeirra undanfarin
ár hafði ekki einkennst af sam-
heldni, heldur þvert á móti, og um
mitt ár 2005 flutti Cécilia frá honum
og bjó með áðumefndum Attias og
almannarómur sagði að Sarkozy
hefði sjálfur verið í sambandi við
blaðakonuna Anne Fulda.
f upphafi árs 2006 komust á sætt-
ir og tilkynnt var að hjónin hefðu
flutt saman á ný, en það var skamm-
góður vermir og auðséð að brestir
þeir sem komnir vom í hjónaband-
ið yrðu ekki lagaðir. Eftir skilnað-
inn hefur líf Sarkozys dregið dám
af lífi glaumgosa og finnst Frökk-
um mörgum hverjum nóg komið
af lúxusferðalögum forsetans og nú
síðast af ástamálum hans.
Alvarlegt samband
Á sama tfma og Frakkar voru
orðnir langeygir eftir þeim efna-
hagslegu umbótum sem Sarkozy
hafði lofað fóm að berast myndir af
honum í fylgd fyrirsæmnnar fýrr-
verandi og söngkonunnar Cörlu
Bruni. Þetta kom mörgum í opna
skjöldu, því aldrei hafði verið til-
kynnt opinberlega um samband
þeirra. Um jólin vom hjónaleysin
saman í Egyptalandi og birtust af
þeim myndir frá því þar sem þau
héldust í hendur.
Á fréttafundi í gær sagði Sarkozy
að samband hans og Cörlu Bruni
væri alvarlegt, en hvort og hvenær
þau gengju í hjónaband yrði ekki
ákveðið af Journal du Dimanche
eða nokkru öðm dagblaði. Hann
sagði ekki loku fyrir það skotið að
blöðin fréttu af hjónabandi þeirra
eftirá.
Vinsældir Sarkozys hafa dal-
að sem nemur sautján prósent-
um síðan á sumarmánuðum og á
meðan þjóðin bíður eftir betri tíð
með blóm í haga tilkynnir Christ-
ine Lagarde fjármálaráðherra að
franska þjóðin standi frammi fyrir
verðbólgu sem muni frekar vaxa
en hitt.
Ekki er talin ástæöa til bjartsýni vegna heimsóknar Bush til ísraels:
Ólga vegna
heimsóknar Bush
Tveimur sprengjum var skotið
frá Líbanon og sprungu þær í Norð-
ur-ísrael í gær og að sögn ísraelska
hersins er það hluti aukins ofbeld-
is í undanfara heimsóknar George
W. Bush Bandaríkjaforseta til Isra-
els sem hefst í dag. fbúar sögðu að
um þrjár flaugar hefði verið að ræða
en herinn staðfesti aðeins tvær. Ekki
urðu slys á fólki.
Önnur flaugin lenti á verönd
húss í bænum Shlomi og sagði eig-
andi hússins að hávaðinn hefði ver-
ið ærandi og gat komið á einn út-
vegg hússins. Árásin í gær er önnur
árás Líbanons á fsrael síðan sumar-
ið 2006. Þá átti ísrael í stríði við líb-
anska Hisbolla-skæruliða og hátt
í fjögur þúsund flaugum var skot-
ið á ísrael. Átökin kostuðu fjölda
mannslífa. Fjörutíu óbreyttir ísrael-
ar létu lífið og eitt hundrað og nítján
ísraelskir hermenn, en stærsti hluti
fórnarlamba átakanna var óbreyttir
líbanskir borgara, því fleiri en eitt-
þúsund þeirra lágu í valnum.
Umdeildar landnemabyggðir
Palestínumenn á Gaza hafa sak-
að ísraela um að herða tökin á her-
numdu svæðunum nú þegar nær
,-vrrEU STA TE^
Flugvél Bandaríkjaforseta, Airforce One
Erfitt verkefni bíður forsetans þegar hann
stígurfrá borði ((srael.
heimsókn Bandaríkjaforseta dreg-
ur. Nabil Abu Rudeina, talsmaður
Mahmouds Abbas, leiðtoga Palest-
ínumanna, sagði að Palestínumenn
væntu þess að Bush bæði ísraels-
menn að láta af landnemabyggð á
umdeildu svæði í austurhluta Jerús-
alem, en þær framkvæmdir hafa far-
ið verulega fyrir brjóstið á Palestínu-
mönnum.
Vonir embættismanna eru að
heimsókn Bush hnykki á þeim ár-
angri sem náðist á friðarráðstefn-
unni í Annapolis í Maryland í nóv-
ember síðastliðnum. En það er ekki
mikil ástæða til bjartsýni því friðar-
viðræður milli Palestínumanna og
fsraela hafa nú þegar siglt í strand og
menn óttast að ástandið á svæðinu
eigi eftir að versna til mikilla muna.
Sonur Benazir Bhutto treystir ekki rannsókn stjórnvalda:
Vill Sameinuðu þjóðirnar í málið
Ekki eru öll kurl komin til grafar
vegna morðsins á Benazir Bhutto
í lok síðasta árs. Þrátt fyrir að liðs-
menn bresku rannsóknarlögregl-
unnar Scotland Yard hafi kom-
ið til Pakistan að beiðni þarlendra
stjórnvafda, er Bilawal Bhutto Zard-
ari, sonur Benazir, ekki sáttur. Hann
hefur nú farið fram á að Sameinuðu
þjóðirnar fari fyrir í rannsókn máls-
ins. Að hans sögn er nú þegar búið
að spilla stórum hluta sönnunar-
gagna í málinu.
Þó Bilawal sé ungur að árum
hefur hann verið nefndur sem
eftirmaður móður sinnar sem
formaður Alþýðuflolcks Pakistans
og lýsti því yfir að hann væri hvergi
smeykur við að takast á við það
verkefni. „Jafnvel þótt mig skorti
nú reynslu, skortir mig ekki vilja til
að tileinka mér nýja hluti og læra,"
sagði hann.
Benazir einni að kenna
Pervez Musharraf, forseti Pakist-
Léstígassprengingu
Níu ára stúlka lenti undir vegg sem
hrundi og lést þegar gassprenging
varð í einbýlishúsi í Plymouth,
Englandi í morgun. Stúlkan, sem
hefur verið nafngreind sem Stephanie
Hammacott, var fótgangandi á leið
í skólann þegar hún gekk fram hjá
húsinu sem spralck. Stúlkan festist
undir rústum veggjarins og lést á
sjúkrahúsi skömmu síðar.
Femt slasaðist við sprenginguna.
Kona, sem talið er að sé móðir
stúlkunnar, var færð á sjúlaahús
vegna minniháttar meiðsla og áfalls.
íbúar hússins, eldri hjón, hlutu einnig
minniháttar meiðsl og reykeitrtm.
Gaslykt fannst í nágrenni við svæðið
áður en sprengingin varð.
Bilawal Bhutto Zardari, fyrir miðju
Er nefndur sem eftirmaður móður sinnar.
ans, hefur ekki farið leynt með þá
skoðun sína að tilræðið við Benazir
skuli eingöngu skrifast á hana sjálfa.
Hann sagði þó að einhugur væri um
það hjá stjórnvöldum að komast
að sannleikanum í málinu og sjá til
þess að tilræðismennirnir hljóti við-
eigandi refsingu. Stuðningsmenn
Benazir Bhutto eru mjög tortryggn-
ir út í stjórnvöld og efast um heilindi
þeirra í málinu. Benazir Bhutto var
andstæðingur Musharrafs forseta og
þrátt fyrir að þau hefðu gert með sér
samkomulag um að deila völdum fór
Benazir ekki leynt með þá ákvörðun
sína að beijast gegn honum í kosn-
ingunum sem núhefur verið frestað.
Lík Benazir var ekki krufið, því eigin-
maður hennar gaf ekki leyfi til þess;
hann sagði dánarorsök ljósa, en þar
fór hann viilur vega því enn er mörg-
um spumingum ósvarað.
Akaeftireyranu
Almenningi í Frakklandi og þarlendum
stjórnvöldum líst en meira en svo á blikuna.
I Ijós hefur komið að bílstjórar flutningabif-
reiða hafa tamið sér þann ósið að horfa á
sjónvarp og spila töivuleiki til að berjast gegn
þeim leiða sem ásækir þá er þeir bruna um
þjóðvegi landsins á m'utíu kílómetra hraða á
klukkusmnd. Það er ekki aðeins sjónvarps-
glápið sem veldur áhyggjum heldur einnig
sú staðreynd að þeir stilla hraðastillinn, setja
fæturna upp á mælaborðið, láta fara vel um
sig og aka eftir evranu.
Minnistöflur
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
FOSFOSER
MEMORY Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finntandi