Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
Fréttir DV
Kærasti Elísabetar Rósu Elínborgardóttur fann á sér að eitthvað væri að stuttu fyrir eldinn. Sjálf taldi Elísabet
að hann væri bara stressaður að óþörfu. Stuttu síðar kviknaði í fjölbýlishúsi sem þau búa í við Jórufell 4.
Ekkert manntjón varð. Grunur leikur á íkveikju. Þetta er þriðji bruninn á örstuttum tíma í Reykjavík.
. , 'V, vnv/
Elísabet Rósa Elínborgardóttir
með syni sínum Theodóri Davíð
Kærasti Elísabetar fékk á tilfinning-
una að það væri eitthvað að.
FEKK HUGBOÐ UM ELDSVOÐA
VALUR GRETTISSON
blaðamaður skrifar: valur(p)dv.is
„Kærastinn minn var alltaf að kíkja
í dyragatið á undan, honum fannst
eins og hann hefði orðið var við ein-
hvern umgang," segir Elísabet Rósa
Elínborgardóttir en hún þurftí að flýja
eldtungur þegar það kviknaði í heim-
ili hennar að Jórufelli 4 í gær. Kærast-
inn hennar var órólegur nokkru áður
og hafði á tilfinningunni að það væri
eitthvað undarlegt á seyði. Síðar korh
í ljós að tilfinning hans var á rökum
reist því eldur kviknaði á stigangin-
um og úr varð allnokkur eldur. Bjarga
þurftí fjölda manns með aðstoð
körfubfls, flestír voru útí á svölunum
í íbúð sinni.
Undarleg tilfinning
„Ég skildi ekkert í honum," segir
Elísabet um aðdraganda eldsins en
þá var kærastínn hennar mjög óró-
„Þegar ég opnaði dyrn-
ar fram á gang mætti
mér þvílíkt reykjarkóf."
legur og kíktí ítrekað út um hurðar-
gatið. Aldrei sá hann neitt og seg-
ist Elísabet hafa gert grín að honum
fyrir að vera svona stressaður að því
virtíst að ástæðulausu. Nokkru síðar,
um hádegisbilið, varð hún einnig vör
við eitthvað undarlegt. í þetta skiptið
reyndist eitthvað raunverulega að.
„Þegar ég opnaði dyrnar fram á
gang mættí mér þvflíkt reykjarkóf,"
segir hún og bætír við að reykurinn
hafi verið sótsvartur.
Skýring fundinn
Þá sýndi Elísabet snarræði og sóttí
son sinn og dóttur. Þau hlupu út og
stuttu síðar var slökkviliðið mætt á
svæðið. Með henni var fimm ára göm-
ul dóttír hennar sem hafði ekki verið í
skólanum þennan dag vegna veikinda.
Þegar fjölskyldan hennar var kom-
in í öryggi fyrir utan húsið segir Elísa-
bet að kærastinn hafi litíð á hana.
„Þá sagði hann mér að þetta hefði
verið það sem væri að sér. Það var
bara búið að kveikja í," segir Elísabet
þegar skýring kom á undarlegri til-
finningu kærastans. Sjálf er Elísabet
þakklát að hafa sloppið út með fjöl-
skyldu sína heila á húfi.
önnur íkveikjan á sama
stigagangi
„Þetta er annar bruninn minn á
rúmu einu ári," segir Elísabet en á
gamlárskvöldi fyrir ári kviknaði einn-
ig í stígaganginum heima hjá henni.
Hún segir Breiðholtíð frægt fyrir
flcveikjur og það hafi verið sama sag-
an í fimmtán ár. Hún segist ekki skilja
hvað mönnum gangi tfl en stutt frá
lést Hilmar Ragnarsson í eldsvoða,
aðeins degi áður en kviknaði í hjá
Elísabetu.
„Þetta er pottþétt íkveika," segir
hún spurð um tíldrög eldsins.
Kviknaði í frá rusli
Lögreglan rannsakar upptök elds-
ins og er talið að kviknað hafi í út frá
rusli. Þá er sterkur grunur um að ein-
hver hafi lagt eld að ruslinu. Þetta er
þriðja málið á örstuttum tíma þar
sem eldur kemur upp í fjölbýlishúsi.
Fyrst var kveikt í stígagangi á Neshaga
en feðgar komust út úr húsinu án telj-
andi meiðsla. örstuttu síðar kviknar í
í Tunguseli en þar lést Hilmar Ragn-
arsson eftír að hafa bjargað fjölskyldu
sinni. Aðeins degi síðar blossaði upp
eldur í stígaganginum hjá Elísabetu,
en ekkert manntjón varð. Einn ein-
staklingur var sendur á spítala tíl
aðhlynningar vegna hugsanlegrar
reykeitrunar. Ljóst er að tjón vegna
eldsvoðanna undanfarið er grfðar-
legt.
Gagnrýna,
ráðningu Ólafar
Ráðning Ólafar Ýrar
Atladóttur í embætti
ferðamálastjóra er algjörlega á
skjön við þróun
íslenskrar
ferðaþjónustu
undanfarin
ár og ekki í
taktvið þarfir
greinarinnar.
Þetta er mat
Félags háskóla-
menntaðra
ferðamála-
ffæðinga. f tílkynningu sem
félagið sendi frá sér í gær segir
að auglýst hafi verið eftir fólki
með menntun sem nýttist í
starfi og þekkingu á íslenskri
ferðaþjónustu. Meðal umsækj-
enda voru sjö með sérhæfða
háskólamenntun á sviði
ferðamála auk reynslu í greininni.
„Þetta er viðurkenning sem
fer alveg örugglega á ferilskrána,"
segir dr. Yngvi Björnsson, dósent
við tölvunarfræðideild Háskólans í
Reykjavík. Yngvi hlaut á dögunum
viðurkenningu frá hinu virta
vísindatímariti Science Magazine
fyrir eina af uppgötvunum
ársins 2007. Yngvi var hluti
rannsóknarteymis sem fann hina
fullkomnu lausn á því hvernig
spila ætti dammtafl án þess að
eiga möguleika á að tapa leiknum.
Verkefnið var leitt af háskólanum í
Alberta í Kanada og kom Yngvi að
þróun hugbúnaðarins sem gerir það
að verkum að með bestu mögulegu
spilamennsku beggja leikmanna í
dammtafli verður niðurstaðan alltaf
jafntefli.
„Þetta verkefni var búið að vera í
gangi í nokkur ár en niðurstöðurnar
voru birtar í sumar. Það að við höfum
fundið þessa fullkomnu lausn hefur í
sjálfu sér ekki mikið vísindalegt gildi.
Það sem vaktí athygli var að það er
raunverulega hægt að finna lausn á
svona stóru vandamáli því við erum
að tala um fimm hundruð milljarða
milljarða möguleika," segir Yngvi,
en það er fjöldi þeirra staða sem
upp geta komið í dammtafli. Það er
stærð sem býður upp á milljón sinn-
um fleiri möguleika en leyst hafa
verið ffam að þessu. „Þessi lausn
sýndi fram á að það er hægt að leysa
svona gríðarlega stór vandamál með
tölvum og að mati tímaritsins þótti
hún marka ákveðin þáttaskil í gervi-
greindartækni. Alls valdi tímaritið
tíu uppgötvanir en ein þeirra þótti
skara fram úr öðrum. Hún var um
erfðamengi mannsins en ekki var
gert upp á milli hinna níu sem voru á
listanum. „Það er mjög skemmtílegt
að fá svona viðurkenningu og hún
Doktor Yngvi Björnsson fékk viðurkenningu frá Science Magazine á dögunum:
Ein af uppgötvunum ársins
Yngvi Björnsson Tók þátt í að
finna hinn fullkomna dammleik.
f > ÞMIMHDIH—MMIIHilHI
kom mér mátulega á óvart. Það eru ast á hverjum degi sem menn finna
skemmtílegir tímar innan tölvunar- upp nýja hluti. Þetta er hvaming til
fræðinar um þessar mundir og nán- enn betri verka," segir dr. Yngvi.