Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Flreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason
FULLTRÚIRITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins á stafrænu
formi og f gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaösins eru hljóðrituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SAI\»KOKIV
■ Sjálfstæðismenn í Reykjavík
dreifðu í gær kynningarriti um
árangur borgarstjómarflokks
síns til borg-
arbúa. Þar
varundir
forystugrein
Vilhjálms
Þ. Vil-
hjálmsson-
ar oddvita
farið fögmm
orðumum
góðan árangur reykvískra sjálf-
stæðismanna á fyrstu sextán
mánuðum þessa lq'örtímabils
sem endaði með þeirri skelf-
ingu að vinstriflokkarnir komust
til valda. Þar vom líka kynntar
áherslur borgarstjórnarflokksins
til að gera Reykjavík að enn betri
borg til að búa í. Það vakti þó at-
hygli sumra að forsíðumyndin,
af borgarstjómarflokki reykvískra
sjálfstæðismanna, var tekin í
Hveragerði. Hvað svo sem má
lesa úr því.
■ Gleðigjaflnn Gissur Sigurðs-
son fréttamaður á Bylgjunni er
með skemmtilegri sýn og túlkun
á mannlíf en
margur. Að
vanda mætti
hann í morg-
unþáttinn í
bítið í gær-
morgun þar
sem hæst
barslakt
gengi Hill-
ary Clinton forsetaframbjóð-
anda sem virðist vera að missa
fótanna í keppninni við Barack
Obama. Gissuri var nokkuð niðri
fyrir þá hann sagði að Hillary
hefði verið klökk. Hann hnykkti
svo á þeim tíðindum með því að
gefa Hillary þá einkunn að hún
væri enginn pappakassi.
■ Nokkur óvissa ríkir um það
hvað auðjöfúrinn Magnús Þor-
steinsson muni taka sér fyrir
hendur eftir að hann lét af stjórn-
arformennsku í Hf. Eimskipa-
félagi íslands. Magnús er ásamt
Björgólfi Thor Björgólfssyni og
Björgólfi Guðmundssyni einn
þeirra þriggja sem stóðu að Sam-
son i upphafi. Hann hafði uppi
stór áform um að gera Eimskip
að stórveldi á lofti, láði og legi.
Um áramótin var flugreksturinn
seldur út úr félaginu og draum-
urinnvarformlegaallur. Nú
heyrist að Björgólfur eldri muni
taka yfir hlutinn í Eimskipi. Velta
menn fyrir sér hvort leiðir hafi þá
skilið milli þeirra félaganna.
■ Skakki tuminn, blað um vísindi
fyrir alla í ritstjóm Illuga Jökuls-
sonar, er væntanlegt um miðjan
febrúar. Illugi
ritstýrir einn-
igSögunni
allri og hefur
undanfar-
ið stjómað
bókafor-
laginu Skugga
sem kom
ágætlega út
úr jólavertíðinni. Nú hefur Elín
Ragnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Birtíngs og DV bætt Skugga
undir regnhlíf sína og stjómar
forlaginu sem stefiiir hátt á þessu
ári í grjóthörðum slag við Forlagið,
Veröld og aðra bókarisa. Helsta
tromp Skugga um nýliðin jól var
bók Hrafiis Jökulssonar, Þar sem
vegurinn endar.
LEIÐARI
Samíylking á jarðsprengjusvæði
REVNIR TRAUSTASON RITSTJÓRISKRIFAR.
Sjálfstœdisflokkiirinn er lantaðw afiwiri ileilum og ásökiinum um spillingu.
Samfylking þarf að vara sig á því að fá ekki á sig stimpil
frændhygli eða annarrar spillingar. Eftir að landslag ís-
lenskra stjórnmála hefur verið nánast eins um áratuga-
skeið eru loksins líkur á því að íleiri flokkar en Sjálfstæð-
isflokkurinn eigi þess möguleika að vera stærsti flokkur Iandsins
og þannig leiðandi afl. Samfylking hefur átt í ákveðinni fylgis-
kreppu frá því flokkurinn varð til við samruna Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks og Kvennalista þegar draumur um sameinaða
fylkingu vinstrimanna virtist vera að rætast. En fylkingin rofnaði
þegar vinstri grænir urðu til upp úr Alþýðubandalaginu og síðan
hefúr Samfylking lengst af átt í tilvistarkreppu. Þegar núverandi
ríkisstjórn komst á koppinn vænkaðist heldur hagurinn. Sam-
fyllcingarfólk var með hreina ímynd hvað varðar spillingu eftir
áralanga veru í stjórnarandstöðu. Augu almennings hafa aftur
á móti beinst að ýmsum gjörðum Sjálfstæðisflokksins sem þyk-
ir sýna fádæma ósvífni í stöðuveitingum og við að úthluta gæð-
um sem áður voru ríkiseign. Sjálfstæðisflokkurinn er lamaður af
innri deilum og ásökunum um spillingu. Á meðan hefur sam-
starfsflokkurinn verið ráðandi í stjórnarsamstarfinu. Afleiðingin
er sú að í fyrsta sinn í sögunni á Samfylking raunhæfa möguleika
í næstu kosningum til að verða sterkasta aflið. En þetta verður
ekki að veruleika ef flokkurinn fellur í þá gryfju að láta annar-
lega hagsmuni ráða við stöðuveitingar. Allur almenningur fylgist
með framgöngu forystumanna flokksins og ef þeim verður fóta-
skortur mun allt hrökkva í sama gamla farið. Örlög Samfylkingar j
verða þau sömu og Alþýðuflokks og Framsóknarflokks áður sem
vesluðust upp í samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Samfylking |
er á jarðsprengjusvæði og það væri lýðræðinu hollt að leiðtogar
flokksins gættu fóta sinna.
B0NSAI-B0RGIN
Svarthöfði hefur kaldhæðnis-
legan áhuga á fólki sem reynir
hvað það getur að láta gott af
sér leiða en veldur tómum skaða.
Svona eins og Lenny í Mýs og menn,
sem strauk músunum svo fast í alúð
sinni að þær drápust. Þannig eru
Torfúsamtökin líka.
*
Iæsku átti Svarthöfði vin sem
var ofvemdaður. Foreldr-
ar hans plöntuðu í hann
ótta við breytingar. Allt átti
að vera eins. Hann þorði
varla út og þegar Svarthöfði
kom í heimsókn léku þeir
sér með bein. Allt þetta varð
auðvitað til þess að barnið
sem átti að vemda gegn breyt-
ingum þroskaðist ekki, snarsturlaðist
og varð fullorðinn fáráðlingur. Svona
er Reykjavflcurborg. Hún er frík. En
það er ekki henni að kenna.
Ekki nóg með það að borgin
hefur verið ofvernduð, heldur
hefur hún verið reyrð eins og
hausinn á inkabami þannig að hún
vaxi sem undarlegast. Þannig spretta
fram kýli hér og þar í borginni, þar
sem hún reynir að vaxa eftir að hafa
verið reyrð fyrir miðju. Miðbæjar-
byggð í Bryggjuhverfi, í faðmi iðnað-
arhverfis, umferðaræðar og steypu-
stöðvar, er dæmi um handstýrða
hörmungina sem sprettur af kæfingu
miðbæjarins. Lfldega hefði borgin
orðið fallegri efyfirvöld hefðu látið
nægja að skipuleggja gamakerfi og
Nýjasta barátta hippanna í
Torfusamtökunum er björg-
un kofaræksnanna á Lauga-
vegi 4 og 6. Svarthöfði fylltist hreint
hryllingi þegar hann áttaði sig á því
hvers kyns húsnæði þeir vilja vemda
og hvers vegna. Þetta em einnar
hæðar hús sem þeir vilja bjarga til
að halda götumyndinni. En einmitt
þarna er götumyndin hvað ljómst við
Laugaveginn. Hún er nánast ljótari
en götumyndin var við Austurstræti,
þar sem nú em brunarústir. Lauga-
vegur 4 og 6 mynda sár í götumynd-
ina, því húsin em mun lægri en nær-
liggjandi hús. Víða í borginni em slflc
sár, þar sem maður sér á gluggalaus-
um húsgöflum að gert hefúr verið
ráð fyrir hærri byggingu við hliðina.
Hefúr enginn dokað við og horft á
gaflinn á húsi bókabúðarinn-
ar Eymundsson, þar sem sárið
endar? Meira að segja þegar borgin
er blessuð með kofabmna, sem býð-
ur upp á nýtt upphaf, koma menn-
irnir og eyðileggja fyrir henni. Nánar
til tekið Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
fyrrverandi borgarstjóri.
Ofvemdunin er að drepa mið-
borgina og hún er rótin að
því að í Reykjavík stendur ein
ljótasta og dreifðasta borgin norðan
Alpafjalla. Hún er þakin sárum eftir
ofverndunarhippana sem reyndu að
koma í veg fyrir þroska hennar. Lidir,
velviljaðir en stórhættulegir Lenny-
ar. Það erfiðasta er að hippamir em
svo háværir að þegar þeir segja nýja
borgarstjóranum að hoppa spyr
hann: „Hversu hátt?" Hann vill líka
öllum vel en hlustar bara á
þá hávæmstu.
Hipparnir vilja vel en þeir
em heimsldr. Oft em
þeir vinstri grænir og
vilja vernda náttúmna. En á sama
tíma og þeir hindra þéttingu byggðar
valda þeir mengun. Því byggðin verð-
ur að þéttast til þess að fólk getí geng-
ið til vinnu og til þess að almennings-
samgöngur getí styrkst. Þeir vilja hins
vegar að Reykjavík verði svona eins
og bonsai-tré, sem er reyrt í þeim til-
gangi að það haldist lítíð og sætt.
Það er ekki hægt að rökræða við
hippana. Rök þeirra em tilfinn-
ingaleg. Þeir stoppa útí á götu,
benda á kofaræksnin og segja hýrri
röddu: „Ohhh, en sætt hús." Hvernig
getur maður svarað því? Nei, það er
lítíð og ljótt.
SVARTIIÖIIH
DOMSTOLL GOTUIVIVAR
I INNST l»ÉR RÉTT Al) ÚTHÝSA OI'BELDISMÖNNUIVI AP IJÖRUM?
„Mér finnst það í góðu lagi. Þarna er án
efa um varasama menn að ræöa."
Ingi Guðmundsson,
75 ára eliilífeyrisþegi
„Já, ég þyrði ekki inn á bar ef ég ætti
von á að vera lamin. Ástandið verður
sifellt hættulegra."
Ólafía Haraldsdóttir,
rúmlega 60 ára heimavinnandi
húsmóðir
„Einhvers staðar verða þessi grey að
vera. En ég erauövitað ekki hlynntur
ofbeldi."
Friðrik Ingi Höskuldsson,
60 ára endurskoðandi
„Ég hef þá skoðun að það megi úthýsa
þeim alls staðar. Ofbeldi er mér ekki
þóknanlegt."
Bragi Finnbogason,
63 ára leigubflstjóri