Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
ALVES NÚ A LEIÐ TIL CITY EÐA FEN-
ERBACHE
Brasilíski framherjinn hjá Heerenveen,
Afonso Alves, segir nú líklegast að hann
gangi til liðs við Manchester City. Þrátt
fyrir að hafa verið
markahæsti
leikmaður
hollensku
úrvalsdeildarinnar
(fyrra og hafa
skorað að vild
þegar hann hefur
spilaðíárerljóst
að hann er að fara
frá Heerenveen.
Lið Grétars Rafns Steinssonar, AZ
Alkmaar, var búið að tryggja sér
þjónustu Alves en vandamál kom upp á
(samningaviðræðum liðanna og á
tfmabili virtist hann ætla til Middles-
brough. Hann segir nú á heimasíðu
sinni að hann muni klára félagaskiptin
bráðlega og annaðhvort verði það
Manchester City eða tyrkneska liðið
Fenerbache sem verði ofan á.
DERBY AÐ FÁ SAVAGE OG ROBERT
Derby virðast ætla að gera það sem það
getur til að koma sér úr þeirri
ómögulegu stöðu sem það er komið (á
botni
úrvalsdeildarinnar.
Þeireru nú þegar
búnir að fá til s(n
argent(skan
framherja og ætla
nú að bæta við á
miðjuna.Tilboði
Derby (Robbie
Savage hefur verið
tekið og mun
hann ræða við Derby um kaup og kjör
s(n (kjölfarið. Hinn leikmaðurinn sem
Derby nálgast er hinn litríki franski
vængmaður, Laurent Robert. Robert
sem spilaði með Newcastle fyrir
fáeinum árum virðist nú ætla að koma
aftur (úrvalsdeildina en honum gekk
afar vel á reynslutímabili sínu með
Derby.
JUSSI jAAskeláinen með mörg
JÁRNfELDINUM
Það eru mörg lið á eftirfinnska
landsliösmarkverðinum Jussi
Jááskelainen þessa
dagana. Jussi, sem
vill fá betri
samning hjá
Bolton, er undír
smásjá margra liða
(Evróþu.Þará
meðal eru bæði
liðin frá Mílanó, AC
og Inter, og
tyrknesku liðin
Galatasaray og Fenerbah<;e. Það lið sem
sem fylgist þó mest með ferðum Jussa
þessa dagana er Barcelona. Spænsku
risarnir hafa verið (þó nokkurn t(ma að
skoða Finnann knáa og svo gæti farið
að seinagangur þeirra verði til þess að
Arsenal næli (markvörðinn fyrir framan
nefið á þeim. Aðrar fréttir herma svo af
Jááskeláinen að hann sé tilbúinn að
hjálpa Bolton (baráttunni en þurfi til
þess stærri samning.
CHELSEA ÆTLAR SÉR ANELKA
Bolton Wanderers hafnaði tilboði
Chelsea upp á 11 milljónir punda í
franska framherjann Nicolas Anelka.
Hins vegar er vilji meðal beggja félaga
að ná samkomulagi sem hentar báðum
aöilum. Talið er að Chelsea sé tilbúlð að
bjóða 12 milljónir punda en Bolton vilji
fá 15 milljónir punda fyrir kappann.
Anelka hefur leikið afar vel það sem af
er leiktíðar og skorað ellefu mörk það
sem af ertímabilinu og hann hefur
gefið það út aö hann vllji spila (
meistaradeildinni. Anelka er 28 ára og
kom frá Fenerbache fyrir 8 mllljónir
punda árið 2006.
Sean Whrigt Philips skoraði eitt mark og átti stóran þátt i öðru þegar Chelsea lagði
Everton i fyrri leik undanúrslita enska deildarbikarsins.
LITILL TRYGGÐI
STÓRAN SIGUR
VIÐAR GUÐJÓNSSON
bladamodur skrifar: vidaraodv.is
Chelsea sigraði Everton 2-1 í
undanúrslitum enska deildarbik-
arsins í knattspyrnu á Stamford
Bridge. Hetja Chelsea í leiknum var
Sean Whrigt Phillips sem skoraði eitt
mark og átti stóran þátt í öðru þegar
hann stökk yfir Jolean Lescott sem er
nær tvöfalt stærri en Phillips.
Leikurinn var fremur harður strax
frá upphafi. Lee Carsley hefði get-
að verið búinn að fá tvö gul spjöld á
áttundu mínútu en dómarinn ákvað
að gefa honum ekki gult spjald þegar
hann fór með sólann á móti Phillips.
Chelsea komst yfir á 27. mínútu
þegar Sean Wright Phillips var einn á
auðum sjó eftir sendingu frá Malouda
og renndi knettinum laglega í hornið
fjær.
Chelsea var mun betra í fyrri
hálfleik og ljóst að erfiður róður var
fram undan hjá Everton.
Fjörlegur síðari hálfleikur
Síðari hálfleikur var skemmtilegur
á að horfa. Chelsea var með yfirhönd-
ina og Perúmaðurinn Pizzarro fékk
fi'nt færi til þess að skora annað mark
Chelsea.
Leikurinn tók stakkaskiptum á
55. mínúm þegar Jon Obi Mikel fékk
umdeilt rautt spjald fyrir brot á Phil
Neville á miðju vallarins. Vissulega
var brotið gróft, en ekki var um að
ræða svokailaða tveggja fóta tæklingu
eins og dómarar hafa verið gjarnir á að
gefa brottvísun fyrir að undanfömu.
Eftir markið kom Everton bet-
ur inn í leikinn og liðið sótti nokkuð
næstu mínútur. Sú sókn bar árangur
á 64. mínútu þegar Nígeríumaður-
inn Yakubu jafnaði leikinn með góðu
skoti í teignum eftir að Yobo hafði lagt
boltann út í teig.
Everton var komið á bragðið og
hélt áfram sókn sinni. Stuttu eftir jöfn-
unarmarkið fékk Everton gullið tæki-
færi til að skora. James McFadden
„klobbaði" Carvalho og skaut knett-
inum síðan í stöng úr þröngu færi.
í stað þess að sækja áfram dró Ev-
erton lið sitt til baka síðasta korter
leiksins. Chelsea gekk á lagið og ein-
um færri setti það pressu að marki
Everton. Fátt var um færi þó leikur-
inn væri nokkuð harður og gul spjöld
vom oft á lofti. Phil Neville slapp vel
að fá ekki sitt annað gula spjald þeg-
ar hann braut á Pizzarro en dómarinn
ákvað að sleppa kappanum að þessu
sinni.
Á lokamínútu leiksins sóttu Chels-
ea-menn upp vinstri vængin. Ballack
gaf háa sendingu fyrir markið þar sem
aðvífandi kom Sean Wright Phillips á
fullri ferð og stökk upp í skallaeinvígi
við Lescott. Þau viðskipti enduðu
með því að Lescott skallaði boltann
í eigið net. Lescott hefði að ósekju
mátt gera betur enda er Phillips mun
minni en Lescott. Lescott fékk gullið
tækifæri til þess að bæta upp fyrir
mistökin í næstu sókn, en Hillario
varði frá honum úr upplögðu færi á
lokasekúndunum.
Leikar enduðu því 2-1 og Chelsea
er í góðri stöðu fyrir síðari leikinn
á Goodison Park sem fram fer 23.
janúar næstkomandi.
Sýnir liðsandann
Sean Wright Phillips var í skýjun-
um efdr leikinn. „Þessi úrslit sýndu
vel hve vel við getum unnið saman þó
á móti blási. Everton-menn em harðir
í horn að taka og inn á milli em mjög
góðir leikmenn." Phillips er sann-
færður um að hann hafi átt markið
þrátt fyrir að myndatökur segi annað.
„Auðvitað snerti ég boltann og ég vil
fá markið skráð á mig," segir Phillips.
David Moyes, framkvæmdastjóri
Everton, var að vonum vonsvikinn.
„Þetta er erfiður biti að kyngja. Þú
verður að halda út allt til enda í stóm
leikjunum og ég verð að segja að
Chelsea er með mjög gott lið. Við eig-
um þó enn möguleika." Moyes vildi
meina að brotið hafði verið á Lescott
í lokamarkinu. „Mér fannst Phillips
jafnvel halda honum niðri sem ger-
ir það að verkum að hann getur ekki
stokkið upp," segir Moyes.
Sam Allardyce. framkvæmdastjóri Newcastle, telur álag á leikmönnum of mikið:
Leikmenn munu lögsækja
Sam Allardyce, framkvæmdastjóri
Newcastle United, telur að félög,
enska knattspyrnusambandið eða
skipuleggjendurenskuúrvalsdeildar-
innar gætu átt von á lögsóknum frá
fyrrverandi leikmönnum sem eru
örkumlaðir eftir mikið álag á ferli
sínum.
Álag á leikmönnum í ensku
knattspymunni er með því mesta
sem gerist í heiminum og sérstaklega
er krefjandi að komast í gegnum
jólatörnina meiðslalaus en þá leika
mörg liðin fjóra leild á átta dögum. „Ég
held að það komi að því að leikmaður
muni fara í mál við einhvern af þessum
aðilum fyrr eða síðar. Ég veit ekki hver
það ætti að vera eða hvort stofnun
eða félag verður lögsótt, en ef einhver
lendir í því að bæklast til frambúðar
vergna álags í fótboltanum tel ég víst
að við geturm átt von á lögsóknum,"
segir Allardyce.
Allardyce segir að kröfumar verði
sífellt meiri á leikmenn. „Ég hef
áhyggjur af framtíð leikmanna, því
þótt þeir njóti kannski fjárhagslegs
stöðugleika eftir ferilinn, getur verið
að þeir geti ekld notið framtíðarinnar.
Hvers virði em fjármunir ef þú nýtur
ekki góðrar heilsu?
Þegar ég var að spila spiluðu menn
með flensu. En slíkur tíðarandi á ekki
að ríkja enn í dag. Kröfumar sem gerðar
em á leikmenn em ómannlegar. Allir
þurfa að hlaða rafhlöðumar, jafnvel
vélar á borð við farsíma. Þú hleður
farsímannþinn með reglulegu millibili,
ekki satt? Hvemig á leikmaður þá að
geta spilað fjóra leiki á átta dögum?"
segirÁllardyce.
Fleiri framkvæmdastjórar taka
undir með Allardyce og margir
hverjir vilja að hlé verði gert á
deildarkeppninni í kringum jólin.
Allardyce telur að álag geti komið í veg
fyrir að menn sýni sitt besta. „Ef litið er
á feril Michaels Owen má sjá að hann
er búinn að vera atvinnumaður í 11
ár. Stóran hluta þess tíma hefur hann
verið meiddur og það má rekja til þess
að hann er í mesta lagi búinn að fá
einn mánuð í frí allan þennan tíma,"
segirAllardyce. vidar@dv.is