Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Síða 23
DV Heilsublað
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008 23
Matarfíkn er vaxandi vandamál í nútímasamfélagi. Margir glíma
við ofneyslu matar án þess að átta sig á að um sjúkdóm geti verið
að ræða. GSA-samtökin bjóða þeim sem þjást af matarfíkn lausn
á vandanum.
Matarfíkn,
Það er til lausn
GSA eru samtök fólks sem
glímir við matarfíkn og/eða
átraskanir og hefur fundið
lausn á vanda sínum. Þeir
sem hafa árangurslaust reynt hinar
ýmsu megrunaraðferðir, borða jaftivel
þegar þeir vilja ekki borða, borða til að
takast á við erfiða líðan, geta ekki hætt
að borða sykur eða ýmsan sterkjurík-
an mat og finnst þeir hafa reynt allt til
þess að ná tökum á neyslu sinni gætu
hugsanlega verið haldnir matarfíkn.
GSA (Greysheeters anonymous) er
félagsskapur karla og kvenna sem
samhæfa reynslu sína, styrk og vonir
svo að þau megi leysa sameiginlegt
vandamál sitt og séu fær um að hjálpa
öðrum til að losna frá hömlulausu
ofáti.
Félagar í GSA fara eftir Gráu síðunni
og 12 spora kerfi AA-samtakanna til
þess að ná og viðhalda GSA-fráhaldi.
Til þess að gerast GSA-félagi þarf
aðeins eitt, löngun til að hætta
hömlulausu ofáti.
Meðlimir GSA hafa það að markmiði
að vera f fráhaldi og styðja aðra
matarfíkla til hins sama. Fráhaldið er
skilgreint sem þrjár vigtaðar og
mældar máltíðir á dag, ekkert á milli
mála nema svart kaffi, te, sykurlaust
gos eða sykurlaust tyggjó.
Fráhald er án undantekninga og
meðlimir vigta matinn sinn jafnt heima
sem og í boðum, á veitingahúsum, á
ferðalögum og svo framvegis.
Gráa síðan er aðeins afhent þeim sem
eru viljugir að vinna með matarspons-
or til að ná fráhaldi og frelsi frá
hömlulausu ofáti.
Hægt er að fá matarsponsor á
fundum hjá samtökunum. Þeir sem
ekki komast á fundi geta sent
tölvupóst á gsa@gsa.is.
FUNDIR
Allir sem telja sig eiga í vanda hvað
mat snertir eru velkomnir á fundi hjá
GSA-samtökunum. (Reykjavík eru þrír
fundir í hverri viku og auk þess er
GSA-deild á (safirði, nánari upplýsing-
ar um hana má fá með því að senda
tölvupóst til samtakanna.
Mánudagar - kl. 20.30-21.301
safnaðarheimili Vfdalínskirkju,
Garðabæ.
Þriðjudagar - kl. 20.00-21.00 í Fella-
og Hólakirkju, Efra-Breiðholti.
Fimmtudögum - kl. 20.30-21.30 á
Tjarnargötu 20,1 hæð.
GSA-samtökin hafa nú starfað hér á
(slandi f 8 ár og í tilefni af því verður
opinn afmælis- og kynningarfundur
laugardaginn 26. janúar klukkan
14.00-16.30 ÍVÍdalfnskirkju f
Garðabæ. Öllum er velkomið að
koma og kynna sér matarffkn og
starfsemi samtakanna.
Fleiri reynslusögur og nánari
upplýsingar um samtökin má finna á
gsa.is og greysheet.org og hægt er
að hafa samband við landsþjónustu
samtakanna með því að senda
tölvupóst á gsa@gsa.is.
'fouhoatiok miniriQM
Myoplex Diet máltídardrykkur
Uppbyggjandi og grennandi máltid hlaðin
næringarefnum sem vinna að sama
markmiði og þú - að ná árangri1
• 25gr. hágæða prótein
• 25 vítamín og steinefní
• Aðeins 206 hitaeiningar
i Myoplex Diet máltíðarstong
Útvegar somu næringarefni og fást. úr
hollum máltíðum. Léttur og Ijúffengur
máltíöarbiti serit auðveldar þér aö borða
rétt.
)• lSgr. hágæða 'prótein
• 24 vítamín og steinefni
• Aðems 240 hitaeiningar
Precision Burner Light
orku/fitubrennsludrykkur
Svalandi óg grennandi orkudrykkur sem
gerir þér kíéíft að ná fram meiri afkostum í
baráttunrii við aukakilóin.
• Hámarks magn af karnitíni og koffíni
• Kalk, B6ogBl2 vítamin, tárín og ginseng
• Aðems 13 hitaemingar í floskunm
'cnocmMt-oKAtic.1
Ö? Prolein
EAS heitsuvörurnar fást í öllum betri matvöruverslunum, bensínstöðvum og heilsuræktarstöðvum
Nánari upplýsingar um EAS fást í síma 5552S66 og á www.eas.is.
. ,*p V *• .... '!L '.. . í/
1
hfip7L , "J
jHm '•“ ****'•,'"*.,
i V J r,:
K? ^ vaniiia i m
* I ffl £
B- *■.•»'•■