Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
HeilsublaO DV
Iris Huld Einbeita sér að Qölbreyttum
skemmtilegum æfingum fyrir krakka.
og
Heilsuakademían í Egilshöll býður upp á námskeið fyrir krakka á aldrinum níu til tólf ára og er stílað inn á
krakka yfir kjörþyngd eða þá sem ekki hafa fundið sig almennilega í hópíþróttum.
Engin kvöð,
bara skemmtun!
í Heilsuakademíunni er boðið
upp á námskeið sem kallast Eitt líf. Að
sögn Irisar Huldar Guðmundsdóttur
er námskeiðið fyrir krakka á
aldrinum níu til tólf ára og stflað er
inn á þá sem eru yfir kjörþyngd eða
hafa ekki fundið sig almennilega í
hópíþróttum og hafa jafnvel lítinn
áhuga á annarri hreyfingu en
skólaíþróttunum. „Það eru stelpur og
strákar saman á námskeiðinu og við
hittumst tvisvar í viku, á mánudögum
og miðvikudögum. Þetta er þriðja
önnin sem við bjóðum upp á þetta
námskeið og það er nokkurn veginn
sami kjarninn sem hefur alltaf
haldist. Þessi hópur er búinn að
finna sig í þessu námskeiði og þetta
virðist oftast vera eina líkamsræktin
sem hann stundar utan skólatíma,"
segir Iris.
Krakkarnir koma sjálfir með
hugmyndir
„Við einbeitum okkur svolítið að
því að krakkarnir fái sem fjölbreytt-
asta þjálfun á námskeiðinu. Við
erum til dæmis með sal sem kallast
Tarzan-salurinn þar sem er hægt að
prfla og hoppa og skoppa um allt og
það sem gerir tímana líka svolítið
skemmtilega er að krakkarnir fá að
stjórna tímunum svolítið sjálfir. Þau
koma með hugmyndir að leikjum og
einhverju skemmtilegu að gera í tím-
unum svo þetta verður aldrei nein
kvöð, heldur bara skemmtun."
íris Huld segir að fræðslunni
sé svo hálfpartinn komið inn
bakdyramegin. „Þá líður krökkunum
ekki eins og þeir séu bara í einhverri
brjálaðri kennslu sem þeir tengja
meira við skólann. Heldur erum við
frekar með spjall um mataræði og
hvort það sé einn nammidagur í viku
og slíkt. Svo hafa krakkarnir haldið
matardagbók bara svo við fáum inn-
sýn í hvemig og hvað þeir borða."
Fylgjast með líðan krakkanna
Iris segir að krakkarnir séu ekki
vigtaðir og mældir því þeir séu enn
að styrkjast og taka út þroska. „Við
emm frekar að fylgjast með líðan
krakkanna og þótt við ræðum það
aldrei beint em krakkarnir alveg
meðvitaðir um það sjálfir að þeir
séu yfir kjörþyngd og koma alveg og
láta okkur vita hvernig þeim gengur
og að þeir séu kannski búnir að
missa kfló eða eitthvað í þeim dúr.
Því þótt við mælum ekki eða vigtum
á námskeiðinu, em krakkarnir
dálítið duglegir að fylgjast bara með
árangrinum sjálfir. Ég held að ég
hafi bara einu sinni heyrt neikvæða
athugasemd í tíma en annars em
bara allir að styðja hver annan
og skemmta sér vel saman. Þetta
snýst náttúmlega líka mikið um
félagsskapinn," segir Iris að lokum.
Námskeiðiðhófstsíðastamánudag
og em enn nokkur pláss laus en á
fullskipuðu námskeiði em fimmtán
til sextán krakkar. Ahugasamir geta
kynnt sér námskeiðið betur á vef
Heilsuakademíunnar, ha.is.
krista@dv.is
ae
|a©[
0 0
ote ]•
0 0 0
styrkur ~ jafnvægi ~ vellíðan
Gummi
Ingibjörg
ashtanga vinyasa jóga - byrjenda og framhaldstímar
endurnærandi jóga
meðgöngujóga
vinyasa jóga - byrjenda og framhaldstímar
yoga nidra - djúpslökun
hatha jóga - mjúkir og rólegir
blessStress . . . .
www.yogashala.is
Engjateig 5, 2.hæð
sími 5530203
Nýir eigendur,
nýiar áherslur
Nýlega urðu breytingar á
Sporthúsinu í Kópavoginun þegar
bræðurnir Þröstur Jón Sigurðson
og Ingi Páll Sigurðson keyptu allan
rekstur Sporthússins. Sporthúsið
var opnað árið 2002 og hefur verið
rekið af Iceland Spa & Fitness frá
þeim tíma. Bræðumir vom fúllir
orku þegar blaðamaður náði tali af
þeim og em þeir greinilega komnir
á fullan snúning. Þrátt fyrir mjög
stuttan aðdraganda að yfirtökunni
segja þeir bræður æðislegt að
finna frábærar móttökur bæði
viðskiptavina og starfsmanna
Sporthússins. Þeir bræður hlakka
mikið til að takast á við það verk-
efni að endurskipuleggja starfsemi
Sporthússins en þeir hafa báðir
mikla reynslu af sambærilegri
starfsemi og hlakka til góðs
samstarfsviðnúverandistarfsmenn
og viðskiptavini stöðvarinnar.
„Við stefrium á miklar breytingar í
rekstri stöðvarinnar, bæði inn á við
og eins gagnvart viðskiptavinum.
Við ætlum satt best að segja að um-
turna stöðinni," segir Þröstur Jón.
„Við munum setja upp ný tæki í
lok vikunnar, halda áfram endur-
bótum á aðstöðu og þegar vorar
verður svo þakið opnað, settir
gluggar, loftin klædd og sett upp
öflugt loftræstikerfi," segja þeir
bræður sem hafa auðheyrilega í
nógu að snúast á næstunni. Margir
strengdu þess heit um áramótin
að bæta heilsuna og fara að hreyfa
sig og að sögn Þrastar og Inga er
trafffldn nú þegar orðin mjög mikil.
„Það er allt komið á fullt hjá okkur
og samt eru auglýsingamar ekki
komnar í gang! Spurning hvort við
þurfum nokkuð að auglýsa," segir
Þröstur og glottir.
Þeir bræður eru fullir bjartsýni
og fullvissir um að sú miída
heilsuvakning sem verið hefur
undanfarin ár sé ekki í nokkrum
rénum.