Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
Heilsublað DV
Næsta þriöjudag hefst splunkunýtt námskeið í Heilsuakademíunni sem nefnist golf-fitness. Æfingarnar eru
sérhugsaöar til að auka styrk, þol og liðleika kylfinga.
Guðrún Elvira Guð-
mundsdóttir einkaþjálf-
ari Hefur gert tilraunir með
styrktaræfingar á sjálfri sér
og séð góðan árangur.
Fyrsta námskeið sinnar tegu-
ndar hérlendis hefst í Heils-
uakademíunni næstkom-
andi þriðjudag en námskeið
þetta nefnist golffltness. „Golffitness
er sérhæfð þjálfun til að auka styrk,
þol og liðleika kylfingsins. Þetta er
sex vikna námskeið sem er sam-
blanda af einkaþjálfun hjá mér í sal
tvisvar í viku, allur hópurinn saman
og hjá progolf-kennara uppi í bás-
um einu sinni í viku til að fara yfir
tæknilegu atriðin," segir Guðrún El-
vira Guðmundsdóttir, einkaþjálfari
í Heilsuakademíunni, oftast ícölluð
Elvira.
„Þetta er búið að vera draum-
ur hjá mér í langan tíma eða alveg
síðan ég fékk þessa golfdellu. Ég
hef verið í íþróttum allt mitt líf og
afreksmaður í íþróttum og þá að-
allega frjálsum. Þetta átti fyrst að
vera bara hobbí hjá mér og mann-
inum mfnum en það dugði mér
ekki, ég þarf að ná árangri í því
sem ég geri og þá fór ég að stúd-
era þetta og komst að því að mér
finnst vanta styrktarþjálfun inn í
golfmenningu Islendinga. Það er
ekki nóg að mæta til kennara úti
á velli, heldur vantar líka tilsögn í
því hvernig kylfingurinn getur bætt
líkamsástandið með því að bæta
sveifluna eða einfaldlega ná betra
spili úti á velli."
Árangurinn greinilegur
Að sögn Elviru eru æfingamar sér-
hæfðar fyrir golfara. „Þú getur nátt-
úrulega farið í tækjasal og gert fullt af
æfingum en það kannski hjálpar þér
ekki í að ná betri sveiflu eða betra spili
sem skilar sér í því að þú sért öflugri
og sterkari á vellinum, með betra þol.
Þetta hjálpar svo kylfingnum að líða
betur úti á vellinum."
Elvíra hefur gert tilraunir á sjálfri
sér með því að gera sérhæfðar æfing-
ar þannig að hún bæti sig og segir hún
árangurinn hafa verið vel greinilegan.
„Mig langar að hjálpa fleirum að ná
árangri með þessum sérhæfðu æfing-
um og eins finnst mér liðleikmn vera
mjög mikilvægur. Góður kylfingur
þarf að búa yfir góðum liðleika, ég vil
gera það að vana hjá kylfingnum að
gera smá liðleikaæfingar fyrir og eft-
ir golf. Því það gefúr líka af sér bætta
spilagetu því ef þú ert með góðan lið-
leika nærðu betri og sterkari sveiflu."
Tæknileg atriði með kennara
Elvira segist hafa kynnt sér styrkt-
arþjálfunaraðferðir kylfinga mjög
mikið, meðal annars úr bókum eftir
bestu golfþjálfara heims. „Ég er sjálf
að æfa golfið á fullu og hef verið að
bíða svolítið eftir því að ég sé tilbúin
líka og mér finnst mjög gaman að geta
gert þetta. Námskeiðið er fyrir byrj-
endur jafnt sem lengra komna. Ef þú
ert byrjandi fylgi ég þér bara í gegnum
æfingamar og við erum hópur saman
í þessu. Svo ferðu yfir tæknilegu atrið-
in með golfkennaranum," segir Elvira
hress að lokum.
Styrktartímamir með Elvim munu
fara fram á þriðjudögum og fimmtu-
dögum inní sal en á miðvikudögum
uppi í básum með progolf-kennaran-
um. Þátttakendur fá auk þess frjálsan
aðgang að tækjasal heilsuakademí-
unnar meðan á námskeiðinu stendur.
Golfverslunin Nevada Bob veitir þátt-
takendum námskeiðsins góð tilboð á
golfbúnaði auk þess sem allir þátttak-
endur fá glaðning frá versluninni.
Nánari upplýsingar um golf-fitn-
ess námskeiðið er að vinna inn á
heimasíðunni ha.is. krista@dv.is
Tony Veizich, gestadanskennari í Listaháskólanum, heldur tólf vikna námskeið í Kramhúsinu:
Slepptu dýrinu lausu
Það verður nóg um að vera
í Kramhúsinu að vanda þessa
vorönnina. Ásamt hinni glæstu og
fjölbreyttu dagskrá sem alltaf er
hægt að ganga að í Kramhúsinu fer
eitt nýtt námskeið af stað. Um er að
ræða dansnámskeið í nútímadansi
en það er gestakennarinn Tony
Veizich frá Nýja-Sjálandi sem kennir.
Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem
þegar hefur dansgrunn. „Ég hef
unnið að því að þróa ákveðna dans-
tækni undanfarin ár sem byggist á
því að verja dansara fyrir alvarlegum
meiðslum íkrefjandi danshreyfingum
niðri við gólfið. Það er nú þannig að
með réttri lfkamsbeitingu verður
dansinn flæðandi og áreynslulaus.
Ég kalla þessa tækni Slepptu dýrinu
lausu, nota gólfið mikið og dansarnir
eru mjög kraftmiklir," segir Tony sem
kom hingað til lands í haust til að
kenna í Listaháskólanum.
Erfitt að fá atvinnuleyfi
Tony hefur búið víðs vegar um
heiminn en lengst af vann hann í
Þýskalandi sem atvinnudansari.
„Undanfarið hefur kennslan þó tekið
yfirhöndina." Það var Karen María
Jónsdóttir, fagstjóri dansnáms við
leiklistardeild Listaháskólans, sem
vann hörðum höndum að því að fá
dansarann hingað tíl lands. „Það er
ekkert grín að fá atvinnuleyfi þegar
maður kemur frá landi sem ekki
tílheyrir Evrópusambandinu. En
þetta hafðist á endanum."
Bryndís Jónsdóttír, verkefriisstjóri
í Kramhúsinu, segir svona danskúrsa
ekki á hverju strái. „Þetta er tilvalið
námskeið fyrir fólk sem hefur góðan
grunn í dansi en hefur af einhveijum
ástæðum hætt." Námskeið Tonys
Vezich hefst næsta fimmtudag.
Þetta er tólf vilcna námskeið sem
verður haldið á þriðjudögum og
fimmtudögum.