Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
Siðasten ekkisíst DV
Ástþór Magnússon
íhugar annað
forsetaframboð:
Topp 5
Ástþór
ÍSLENSK FLUGVÉL
SPRENGD!
22. nóvember 2002
Ástþór sendir 1.200 manns tölvupóst
og segist hafa rökstuddan grun um
að ráðist verði á íslenska flugvél með
flugráni eða sprengjutilræði. Hann er
handtekinn á veitingastað og settur í
gæsluvarðhald. Síðar var hann
sýknaður fyrir dómi, þar sem hann
mætti tvívegis, annað skiptið i
jólasveinabúningi en hitt skiptið
marineraður í tómatsósu. Rökstuddan
grun sinn sagði Ástþór síðan byggja á
innsæi sínu og fréttum utan úr heimi.
BRAUT MYNDAVÉL
September, 2004
Snæfríður Ingadóttir, ritstjóri lceland
Express Inflight Magazine, smellir
mynd af Ástþóri Magnússyni á
Glaumbar. Ástþór bregst óvkæða við
og grýtir myndavélinni í gólfið bak
við barborðið. Síðar er hann sýknaður,
meðal annars á grundvelli þess að
leifarnar af myndavélinni fundust
ekki.„Þeir sem reyna að taka myndir
af mér mega búast viö þessu," sagði
Ástþór af þessu tilefni.
MYNDAÐIINN UM GLUGGA
September, 2004.
Enn mótmælti Ástþór myndatökum á
almannafæri, í þetta skiptið með því
að ganga skrefinu lengra og mynda
inn um glugga á annarri hæð með
hjálp körfubíls sem hann leigði. Ástþór
myndaði meðal annars inn um glugga
á ritstjórnarskrifstofu DV, auk þess sem
hann myndaði llluga Jökulsson
ritstjóra á heimili hans í miðbænum.
LEIKUR BLAÐAK0NU
0G VINNUR í ÚTVARPI
íSSW
fcí
AÐUR
það svona á tilfmningunni að þætt-
irnir falli í góðan jarðveg. Fólki finnst
þetta spennandi og vill fylgjast með
áfram."
Hver eru áhugamál þín?
„Ég starfa við mitt áhugamál. Svo
finnst mér gaman að lesa, hlusta á
góða tónlist, borða og elda góðan mat.
Fara í göngutúra, ferðast og vera með
fólki sem mér þykir vænt um."
Hvaða leikrit heillaði þig síðast?
„Sterkasta sýning síðasta árs var þýsk
sýning sem sett var upp í Borgarleik-
húsinu; Endstation America eftir
Frank Castorf. Það er svo gaman þegar
leikhús kemur manni á óvart."
Átt þú þér einhverja fyrirmynd?
„Fullt af fyrirmyndum. Það er til fullt
af flottum konum úti um víða veröld,
bæði lifandi og dánar. Ég get því ekki
nefht eitt nafn frekar en annað."
Arndís Hrönn Egilsdóttir
leikkona leikur Stínu blaðakonu í
Pressunni - nýrri þáttaröð á Stöð 2.
Karekter Arndísar er töffari. Meðan á
tökum stóð fékk Arndís ekki að fara í
klippingu og mátti lítið hugsa um útlitið.
Hún segir persónusköpunina hafa verið
mjög skemmtilega.
Hvað drífur þig áfram?
„Allt það góða fólk sem er í kringum
mig."
Hvar ólst þú upp?
„Til að byrja með í Vesturbænum. Svo
fluttum við til Svíþjóðar og Ameríku.
Þá bjó ég einnig í Hlíðunum og í Kópa-
vogi. Ég var alltaf á miklum þvælingi
og það hefur mótað mig. Ég hef mikla
þörf fyrir að brjóta munstrið og lít það
jákvæðum augum."
Hver er Arndís Hrönn Egilsdóttir?
„38 ára leikkona sem hefur líka fengist
við dagskrárgerð á RÚV sæl með
lífið."
Hvert fórstu síðast í frí?
„Til Kaupmannahafnar. Ég fór
með manninum mínum á Police-
tónleika. Þetta var gjöf til okkar en það
gleymdist að láta okkur vita af því að
þetta væru útitónleikar. Hljómsveitin
var eins og ljósastaurar í fjarska, ég
var í sumardressinu en Danirnir í
kraftgöllum. Þetta var mikið ævintýri
- mjög skemmtilegt."
Af hverju ert þú stoltust?
„Af því að hafa fylgt hjartanu þegar
það átti við."
Ert þú ánægð með viðtökurnar á
Pressunni?
„Ja, ég heyri ekkert nema gott, en það
er kannski ekkert að marka. En ég hef
Hver er fyrirmyndin að þínum
karakter?
„Ég veit nú ekki nákvæmlega hver hún
er. Óskar [Jónasson, leikstjóri Press-
unnar] var með einhverja týpu í huga
sem ég hef ekld hitt. En ég leik þama
sem sagt mikinn töffara sem er ekki
allra. Hún er hvorki blíð né ljúf í sam-
skiptum, algjörthörkutól."
Var gaman að skapa þennan
karakter?
„Það var mjög gaman. Hún er dálítið
ólík mér þótt við eigum nú kannski
eitthvað sameiginlegt. En ég fékk
aldrei að vera sæt. Allir aðrir voru
heillengi í sminki en ég fékk ekki einu
sinni að fara í klippingu. Var bara alltaf
í gallabuxum og peysudruslu. Einu
sinni skrapp ég heim í stuttri pásu í
múnderingunni. Þá kom stjúpsonur
minn inn og sagði: „Arndís! Ég hef
aldrei séð þig í buxum."
Að hverju ert þú að vinna þessa
dagana?
„Ég er að leika í Hér og nú í Borgar-
leikhúsinu sem er svona nútímasöng-
leikur. Þetta er speglun á tíðarandan-
um sem birtíst okkur í fjölmiðlum. Við
unnum þetta til dæmis upp úr Séð og
heyrt, blogginu og raunveruleikasjón-
varpi. Þetta er spunaverkefni sem fel-
ur í sér stanslaust stuð."
Hvað er fram undan?
„Þáttagerð uppi í útvarpi er næst á
dagskrá og ýmislegt tengt leikhúsinu."
Við mæluin með...
Það er alveg sama hvaða kerlinga-
bækur þú lest um heilsu, næringu,
megrunarkúra eða þjálfun. Ef þú
ert með nokkur aukakíló er málið
afskaplega einfalt, svo ekki sé dýpra
í árinni tekið. Ef þú þarft að léttast
þarftu einfaldlega að brenna fleiri
hitaeiningum en þú innbyrðir. Það
er allur sannleikurinn. Þú getur vel
leyft þér að borða óhollustu endrum
og eins en þú skalt ekki halda að þú
komist hjá því erfiði sem fýlgir því að
brenna súkkulaðistykkinu sem eng-
inn sá þig borða.
Enn er hægt að nálgast miða á Evr-
ópumeistaramótið í handbolta sem
hefst í Noregi 17. janúar. Þú hefur
enn tíma til að kaupa miða, panta
þér hótel og skella þér í eftirminni-
legustu ferð ársins. íslendingar
verða Evrópumeistarar og vanda-
máhn með markvörsluna heyra
sögunni til. Þú munt væla af fögnuði
þegar við leggjum Dani í undanúr-
slitum og tryllast af kætí þegar þú
upplifir með eigin augum sigurinn á
Spánverjum í úrshtum.
Nú þegar verðbólgan nagar okk-
ur sem lús á laufblaði er mikil-
vægt að hugsa um budduna. Ekki
panta þér klippingu nema hringja
á noklaa staði. Símtölin kosta
nokkrar krónur, nema þú sért með
heimasíma hjá Hive, en verðið á
hárgreiðslustofunum er svo mis-
munandi að símtölin munu marg-
borga sig. Það er líka í tísku að vera
meðvitaður viðskiptavinur, hvort
sem þú þarft að láta klippa þig eða
kaupir í matinn.
ELTI FORSETANN Á 150
Júní, 2004.
Ástþór sendirfrá sérfréttatilkynningu
þar sem hann spyr Ólaf Ragnar Gríms-
son forseta hvort hann sé„gunga og
drusla". Hann lýsir því i bréfinu
hvernig hann elti forsetann á 150
kílómetra hraða á Keflavíkurveginum
til að afhenda honum bréf. Að sögn
Ástþórs náði hann Ólafi Ragnari á
skrifstofu hans, og hljóp forsetinn þá
inn og skellti í lás.„Við hvað ertu
hræddur?" spurði hann Ólaf Ragnar.
SPRAUTAR TÓMATSÓSU
Á LJÓSMYNDARA
3. maí, 2005
Æði rennur á Ástþór þegar Ijósmynd-
ari hyggst mynda hann við komuna í
héraðsdóm, þar sem hann svaraði til
saka fyrir að hafa eyðilagt myndavél.
Ljósmyndarar undrast uppátækiö í
Ijósi þess að hann hafði í öðru
dómsmáli tilkynnt Ijósmyndara komu
sína áður en hann mætti i
jólasveinabúningi í mótmælaskyni.
m 3 m