Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Síða 40
Litlar samlokur 399 kr.
+ lítið gosglas 100 kr.
= 499
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
SO DVborgar 2.500 krónurfyrirfréttaskotsem leiðirtil frétta.
Fyr'r fmttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
= Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
in Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
4
4
4
4
4
4
4
4
c*fc
Fíkniefni fyrir
fjárhaginn
Eigandi Snælands vídeós í Mosfellsbæ varð fyrir árás unglinga með felgulykil:
D0TTIR BJARGAÐIF0ÐUR
FRATRYLLTUM UNGLINGUM
Karl Bjarni Guðmundsson, betur
þekktur sem Kalli Bjarni úr Idolinu,
segir að fjárhagsvandræði hafi ráðið
því að hann gerðist burðardýr og
flutti inn tvö kíló af kókaíni sem
selja átti á íslandi. Hann hafi ekki
getað fengið fyrirgreiðslu í banka.
„Ég samþykkti að koma með 700
grömm sem reyndust vera tvö kíló,"
sagði hann í viðtali við Kastljós
Sjónvarpsins í gær. Hann vill enn
ekki upplýsa hver fjármagnaði
kaupin. „Ég hef ekki áhyggjur af
því hverju fólk trúir," sagði hann og
bætti einnig við að það hefði verið
„rosasjokk" að vera tekinn.
Félag á barmi
gjaldþrots
Fjárfestingafélagið Gnúpur
rambar á barmi gjaldþrots, eigið
fé er uppurið og eignir duga
^ ekki fýrir skuldum. Fréttastofa
Ríkissjónvarpsins kveðst hafa
ábyggilegar heimildir fyrir þessu,
jafnvel þótt Kristinn Björnsson,
einn stærstu hluthafanna í Gnúpi,
hafni þessu.
Ekki náðist tal af Magnúsi
Kristinssyni, hinum aðaleiganda
félagsins, en skammt er síðan
annað fýrirtæki Magnúsar, Smá-
ey, leysti til sín fjögurra milljarða
hlut Gnúps í Kaupþingi. Gnúpur
á ennþá tæp flmm prósent í
Kaupþingi.
Urvalsvísitalan lækkaði um
1,18% í gær, en vísitölur hækkuðu
9* víðast hvar erlendis.
Brjálað að gera í
veiðileyfum
„Þetta er langsamlega þyngsti
dagur ársins hjá okkur," segir Har-
aldur Eiríksson, markaðsfulltrúi
Stangaveiðifélags Reykjavíkur, en
frestur til þess að sækja um veiðileyfi
rann út í gær. Haraldur segir að um
þetta leyti berist fáliðaðri skrifstof-
unni þúsundir símtala og gríðarlegt
álag sé einnig á tölvukerfinu.
„Núna tekur úrvinnslan við og
hún er ekki síður flókin," segir Har-
aldur. „Þá blasir við okkur að hringja
þúsundir símtala í félagsmenn til
þess að ganga frá veiðileyfunum."
Styrmir gagnrýndur...
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadur skrifar: traustikPdv.is
„Ég hef það alls ekki nógu gott, eins
og gefur að skilja," segir Guðlaug-
ur Pálsson, eigandi Snælands víd-
eós í Mosfellsbæ, um líðan sína en
hann var laminn illa af ungmennum
á þrettándanum. Ráðist var á hann
með felgulykli þannig að stórsér á
honum og er hann haltur á öðrum
fæti eftir árásina. Hann þakkar dótt-
ur sinni að hafa bjargast úr árásinni.
Tugir ungmenna höfðu safnast
saman nærri vídeóleigunni á þrett-
ándanum og margmenni leitaði inn
fyrir þegar leið á kvöldið. Á endan-
um freistaði Guðlaugur þess að vísa
fjöldanum frá þannig að viðskipta-
vinir verslunarinnar kæmust að.
Ungmennin brugðust illa við því að
vera rekin út og 6 ungir piltar, 17 til
18 ára, sneru til baka í vídeóleiguna,
einnþeirra vopnaðurfelgulykli. Hóp-
urinn réðst á Guðlaug og létu höggin
dynja á honum, bæði með hnefum
og felgulyklinum. Hann var töluvert
laskaður eftir barsmíðarnar og þurfti
að leita sér aðstoðar á slysadeild.
(hugar kæru
„Þetta er hræðileg upplifun.
Maður er að reyna stunda sinn rekst-
ur og gerir þarna heiðarlega tilraun
til að koma fjölda ungmenna út hjá
sér. Niðurstaðan var sú að ráðist var
á mig," segir Guðlaugur.
Guðlaugur íhugar nú hvort
hann kæri piltana fýrir líkamsárás.
í höndunum hefur hann áverka-
vottorð eftir árásina. „Ég náði að
halda vel í við þá en fékk samt slatta
af höggum. Það kemur bara í ljós
hvort ég kæri þetta eða ekki, vissu-
Fólskuleg árás 6 ungir piltar réðust
gegn Guðlaugi eftir að hann vísaði þeim
útúr Snæland video í Mosfellsbæ.
Myndin tengist ekki efni fréttarinnar.
lega erum við að hugsa málið," segir
Guðlaugur.
Nóg að gera Þriðji eldsvoðinn á nokkrum dögum varð í Jórufelli 4 í gær. Slökkviliðið brást skjótt við og náði að koma í veg fyrir
útbreiðslu eldsins. Elísabet Rósa Elínborgardóttir, íbúi í húsinu, segist hafa mætt reykjarkófi skömmu eftir að kærasti hennar hafði
fengið hugboð um að eldurværi í aðsigi. Sjá nánará blaðsíðu 10. DV-myndStefán
Jón Viðar Jónsson segir Styrmi Gunnarsson hljóta að fara alla leið:
Mogginn hlýtur þá að borga allt
Morgunblaðið hlýtur að ætla að
borga fýrir allt það sem blaðið gagn-
rýnir, hvort sem það eru leiklistarsýn-
ingar eða bækur í jólaflóðinu. Þetta
segir Jón Viðar Jónsson, leiklistar-
gagnrýnandi DV að Morgunblað-
ið hljóti að gera ætli Styrmir Gunn-
arsson, ritstjóri Morgunblaðsins og
stjórnarmaður í Leikfélagi Reykjavík-
ur, að vera sjálfum sér samkvæmur.
Styrmir sagði í DV í fýrradag að
það kæmi til greina að fjölmiðlar
greiddu alltaf fyrir fulltrúa sína
á viðburði, hvort sem væru
tónleikar, leiksýningar eða aðrir
menningarviðburðir. „Það er orðið
úrelt og gamaldags að fjölmiðlar þiggi
ókeypis miða," lét Styrmir falla þegar
borin var undir hann sú ákvörðun
Guðjóns Pedersen, leikhússtjóra
Borgarleikhússins, að taka Jón Viðar
af boðslista leiklistargagnrýnenda
vegna gagnrýni hans.
„Það var gott að heyra að
Mogginn er nógu ríkur til að
borga fýrir aðgangsmiða handa
gagnrýnendum sínum og ekki að efa
að listaiðnaðurinn í landinu mun
taka mikinn kipp við þá yfirlýsingu
Styrmis ritstjóra sem birtist hér í
mánudagsblaðinu," segir Jón Viðar.
„En ef ritstjórinn ætlar að vera
sjálfum sér samkvæmur, hlýtur
sú ákvörðun ekki aðeins að ná til
leiksýninga, bíómynda, tónleika,
myndlistarsýninga eða annarra slíkra
viðburða sem við þurfum flest okkar
að punga út fyrir. Það er ljóst að hér
eftir mun þá Mogginn líka borga fýrir
allar bækur sem hann fjallar um, öll
Hlýtur að borga allt Jón Vlðar segir að
Morgunblaðið hljóti að borga fyrir
bækur og biöferðir ætli Styrmir að vera
sjálfum sér samkvæmur.
tímarit, alla mynddiska, hljómdiska
og svo framvegis. Og mun þá
ugglaust ekki falast eftir með neinum
afsláttarkjörum heldur borga með
glöðu geði sama prís og þau Jón og
Gunna þurfa að gera." brynjolfur@dv.is
Dóttirin bjargaði málunum
Aðspurður segist Guðlaugur hafa
rekið verslunina síðustu 8 ár án þess
að hafa lent í nokkru þessu líku og
er ekki viss hvort hann hafi áhuga á
áframhaldandi rekstri á staðnum.
Dóttir hans varð einnig fýrir bar-
smíðum er hún kom föður sínum til
aðstoðar. „Þetta eru strákar úr hverf-
inu sem hafa lengið verið að sniglast
þarna í kring, þeir eru komnir á bíl og
reyna að krækja í yngri stelpur þarna.
Þegar dóttir mín skarst í leikinn réð-
ust stelpurnar á hana og börðu," seg-
ir Guðlaugur.
„Eftir svona árás hugsar maður
sér til hreyfings. Ég væri ekki
uppistandandi ef dóttir mín hefði
ekki hjálpað mér og ég þakka henni
að ekki fór verr. Það var ekkert grín
að sjá piltinn vopnaðan felgulykli og
ég tel mig heppinn að það var ekkert
annað vopn í bílnum hjá þeim."
Utangátta
ökumenn
Tæplega þrítugur karlmað-
ur hringdi í lögregluna í gær og
tilkynnti að bílnum hans hefði
verið stolið í Ármúlanum. Eft-
ir að lögregla hóf rannsókn á
málinu hringdi maðurinn hins
vegar aftur og sagði bílinn vera
kominn í leitirnar. Bílnum hafði
alls ekki verið stolið, heldur hafði
maðurinn gleymt hvar hann
lagði honum. Annar maður kom
á lögreglustöðina og fann held-
ur ekki bíl sinn, en hann mundi
síðar að hann hafði lánað vin-
konu bifreiðina. Svipað var uppi
á teningnum skömmu fýrir ára-
mót, þegar útlendingur leitaði til
lögreglu eftir að hafa steingleymt
hvar hann lagði bílaleigubílnum
sínum og talið hann stolinn.
Sló manníhöfuð
með straujárni
24 ára karlmaður, Stefán Hafberg
Sigurðsson, var dæmdur í tíu mán-
aða fangelsi fýrir hættulega líkams-
árás. Stefán réðst að manni í íbúð í
Grafarvogi í mars 2006 og sló hann
ítrekað í höfuðið með straujárni.
Maðurinn hlaut meðal annars mar
á heila, heilahristing og tvo skurði
á höfuð. Stefáni var gert að greiða
fórnarlambinu tæpar 320 þúsund
krónur og rúmar 900 þúsund krónur
í málskostnað.
Árásarmaðurinn sagði fórnar-
lambið hafa gefið systur hans vímu-
efni og látið hana ánetjast fíkniefn-
um. Dómurinn taldi að hending ein
hefði valdið því að fórnarlambið
slasaðist ekki alvarlega.
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4