Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
Cibeles-tískusýningin hófst i Madrid á
Spáni á mánudaginn. Nú hafa þrjár
sýningarstúlkur verið sendar til síns
heima eftir að hafa verið úrskurðaðar
of horaðar til að taka þátt. Á sýning-
unni er þeim meinuð þátttaka sem eru
með líkamsþyngdarstuðul (BMI) undir
18, en þyngdarstuðull stúlknanna var
undir 16.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeiniwdv.is
Enn einu sinni láta Spánverjar að
sér kveða í umræðunni sem kennd
er við stærð núll. Forráðamenn
Cibeles-sýningarinnar í Madríd
gáfu út þá yfirlýsingu að einung-
is sýningarstúlkur sem hefðu til að
bera heilbrigt útlit fengju að taka
þátt í sýningunni. Nú þegar hafa
þrjár stúlkur verið sendar til síns
heima eftir að í ljós kom að lík-
amsþyngdarstuðull þeirra mæld-
ist (BMI) undir 16. Viðmiðið sem
stúlkurnar þurfa að standast er 18
samkvæmt þeim stuðli.
Næringarfræðingurinn Susana
Monereo, sem sá um að vigta þær
sjötíu stúlkur sem taka munu þátt
í sýningunni, sagði að líkams-
þyngdarstuðull 16 væri afar lágur:
„Heilsa þeirra er kannski í lagi, en
þær eru afskaplega horaðar," sagði
Monereo. Skipuleggjendur sýning-
arinnar neituðu að gefa upp nöfn
stúlknanna, en báru til baka um-
mæli Monereo sem hafði sagt að
þær væru breskar. Þeir sögðu að
hún hefði dregið þá ályktun eftir að
hafa heyrt þær tala ensku. „I raun
eru þær franskar, ítalskar og pólsk-
ar,“ sagði talsmaður sýningarinnar.
Ekki í fyrsta sinn
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Cibeles-sýningin grípur til þessa
ráðs. f september 2006 var of hor-
uðum sýningarstúlkum meinað-
ur aðgangur að sýningarpöllum
sýningarinnar. í Mflanó og víðar
var farið að fordæmi skipuleggj-
enda Cibeles-sýningarinnar sem
höfðu heilbrigði sýningarstúlkna
að leiðarljósi og einnig áhyggjur
af því að útlit þeirra væri hvati að
lystarstoli meðal unglingsstúlkna.
Nokkrar sýningarstúlkur dóu úr
hor árið 2006 í Brasilíu og Úrúgvæ
og í kjölfarið varð hávær umræða
um holdafar þeirra og næringu eða
næringarleysi.
Nú hafa skipuleggjendur Tísku-
vikunnar í Lundúnum verið hvattir
til að fara að fordæmi Spánverja. En
þar á bæ eru menn ekki reiðubún-
ir að grípa til slíkra örþrifaráða enn
sem komið er. Margir í breska tísku-
geiranum óttast landflótta sýning-
arstúlkna ef þær verða neyddar til
að stíga á vigtina eða bæta á sig ein-
hverjum grömmum til að fá leyfi til
að stíga á pall.
Bresku tískusamtökin lögðu í
september til nokkrar tillögur og
meðal þeirra var að stúlkum und-
ir sextán ára aldri yrði bannað að
taka þátt í tískusýningum. Frá og
með september á næsta ári verður
sýningarstúlkum skylt að reiða fram
heilbrigðisvottorð góðri heilsu sinni
til staðfestu. Samkvæmt skilgrein-
ingu Heilbrigðisstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (WHO), er sá of
horaður sem er með líkamsþyngd-
arstuðul undir 18,5.
Sporgöngumenn á Spáni
Fyrir ári ákváðu stjórnvöld á
Spáni að ekki væri nóg gert í for-
vörnum vegna lystarstols. Sam-
fara ákvörðun tískugeirans um að
standa fyrir aðgerðum til að berj-
ast gegn lystarstoli gerðu stjórnvöld
og stórar tískukeðjur með sér sam-
komulag um að fita þyrfti gínur í
gluggum verslana og þær klæddar
fötum af stærð 38 eða stærri.
Á næstu árum verður grindhor-
uðum gínum í verslunargluggum
skipt út fyrir gínur sem geta borið
fatastærð 38.
i**§asi
/
Enn fremur var ákveðið að stærð
46 yrði flokkuð sem eðlileg stærð til
að taka meira tillit til raunverulegr-
ar fatastærðar viðskiptavina. Elena
Saigado, heilbrigðisráðherra Spán-
ar, fagnaði samkomulagi síðasta árs
og sagði það sigur á þeim viðhorf-
um sem tískuiðnaðurinn ýtti und-
ir og hefðu í för með sér að stúlk-
ur sæktust eftir holdafari sem væri
blátt áfram hættulegt heilsu þeirra.
Ef forvfgismenn fleiri tískusýn-
inga tileinkuðu sér viðhorf Cibel-
es-sýningarinnar er hætt við að eft-
Hún lést í nóvem-
ber2006 tuttugu
og eins árs og vó
aðeins um fjörutíu
kíló þegar hún lést.
irsóttar sýningardömur á borð við
Lily Cole, Erin O'Connor og Evu
Herzigova yrði brugðið, en hver veit
nema þær yrðu heilbrigðar fýrir-