Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Suðurland DV
Bæjarstjórn Hvera-
gerðis fyrirhugar að
reisa svokallað
mjúkhýsi og er það
hluti af uppbygg-
ingu íþróttamann-
virkja í bænum.
Húsið getur fallið
saman á 10 mínút-
um, segir Herdís
Þórðardóttir, bæjar-
fulltrúi minnihlut-
ans. „Ný hugsun
sem gerir minni
bæjarfélögum kleift
að uppfylla kröfur
nútímans til íþrótta-
iðkunar/4 segir Al-
dís Hafsteinsdóttir
bæjarstjóri.
„Við í Hveragerði þurfum að fara í
uppbyggingu á íþróttamannvirkj-
um en uppblásin hús eru ekki lausn
sem okkur hugnast," segir Herdís
Þórðardóttir, bæjarfulltrúi minni-
hlutans í Hveragerði. „Á kynningu
sem framleiðendur héldu fyrir bæj-
arstjórn kom í ljós að ef gat kemur á
gúmmíið getur húsið fallið saman á
tíu mínútum," segir hún.
Gæti hentað minni bæjar-
félögum
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
í Hveragerði, segir hugmyndina
bera vott um nýja hugsun á íslandi.
„Þetta er algjörlega ný hugmynd hér
heima en hefur verið notað víða er-
lendis. Svona mjúkhýsi eru notuð í
Bretlandi, í Bandaríkjunum, aust-
antjaldslöndunum og á Norður-
Gervigrasvöllur Rekstrarkostnaður
jafnast á við upphitunarkostnað á
gervigrasvelli utanhúss, segir bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar.
löndum svo dæmi séu tekin. Ýmist
sem knattspyrnuhús, frjálsíþrótta-
hús eða jafnvel sundlaugar," segir
Aldís sem bindur vonir við að fram-
kvæmdin verði samþykkt af bruna-
málastofnun og rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins.
„Þetta er lausn sem gæti gert
minni bæjarfélögum kleift að upp-
fylla kröfur nútímans til íþróttaiðk-
unar," segir Aldís en kostnaðurinn
er margfalt minni en við byggingu
venjulegs íþróttahúss. „Við reiknum
með að kostnaðurinn við að reisa
mjúkhýsi og inni í því hálfan gervi-
grasvöll nemi um 200 milljónum
króna," segir Aldís en það er einung-
is þriðjungur eða helmingur þeirra
upphæða sem nýlegar íþróttahallir
á íslandi hafa kostað.
Kostnaðinn við rekstur hússins
segir Aldís óverulegan. „Rekstrar-
kostnaðurinn er sambærilegur við
það að hita upp venjulegan gervi-
grasvöll, án yfirbyggingar. Við telj-
um kostnaðinn því vel yfirstíganleg-
an."
Tilraunaverkefni á börnum
Minnihlutanum í bæjarstjórn líst
afar illa á þessa hugmynd, að sögn
Herdísar. „Við óttumst að þetta hús
muni ekki standast íslenskt veður-
Herdís Þórðardóttir baejarfulltrúi
Minnihlutanum hugnastekki uppblásið
íþróttahús.
far auk þess sem auðveldlega mætti
vinna skemmdir á húsinu með ófyr-
irséðum afleiðingum. Við viljum
ekki að bæjarstjórnin í Hveragerði
standi að tilraunaverkefni á börn-
unum okkar," segir hún og bætir við
að Brunamálastofnun hafi nú þegar
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði Segir að mjúkhýsi geti
orðið framtíðarlausn fyrir minni
sveitarfélög.
hafnað þessari hugmynd.
„Bæjarstjórnin hefur nú þegar
fengið höfnun frá Brunamálastofn-
un á þeirri forsendu að það sé bann-
að að setja upp skemmtitjöld til
lengri tíma en mánaðar í senn. Það
Mjúkhýsi Minnihlutinn efast um að
húsið standist (slenska veðráttu.
segir allt sem segja þarf. Við þurfum
að byggja alvöru íþróttamannvirki
en ekki uppblásið hús," segir Her-
dís og bætir við. „Það þarf að vinna
að uppbyggingu íþróttamannvirkja
á metnaðarfullan hátt, en ekki til
bráðabirgða".
Hætta á tjóni
Girða þarf húsið allan hringinn
til að verja það fyrir hugsanlegum
tjónvöldum. Aldís segir að vissulega
sé hægt að vinna skemmdir á hús-
inu ef einbeittur brotavilji ráði för.
„Það er auðvitað hægt að skemma
allt mögulegt. Hér í Hveragerði eru
til dæmis mörg gróðurhús sem auð-
veldlega er hægt að skemma. Þrátt
fýrir það hafa þau fengið að vera í
friði," segir hún og blæs á gagnrýni
minnihlutans. „Gagnrýni þeirra
hefur aðallega snúist um útlit húss-
ins. Ég get ekki séð að þetta sé verra
en þær íþróttahallir sem reistar hafa
verið hingað til," segir Aldís en hug-
myndin að þessari lausn kom frá
Knattspyrnusambandi fslands. „Við
fengum ábendingu um að þetta gæti
verið sniðug lausn og því viljum við
athuga hvort hún er raunhæf. Ef til-
skilin leyfi fást ekki til uppsetning-
ar á þessu húsi nær það ekki lengra.
Svo einfalt er það," segir hún að lok-
um en mjúkhýsið er á fjárhagsáætl-
un þessa árs.
TIU ÞUSUND FINGUR
Meira en tíu þúsund fingur hafa leikið
fagra tónlist á þetta píanó, síðan það
kom í Húsið á Eyrarbakka, árið 1871.
Það var flutt á seglskipi til landsins, í
árabáti upp í fjöru, þaðan sem fjórir
menn báru það heim í grenjandi
rigningu. En þú getur snert það núna í
Húsinu á Eyrarbakka.
Qpið alla daga frá 15. maí til 15. sept. rnilli kl 11 -18. fl öðrum tímum eftir samkomulagi.
sími 483 1504 | husid@south.is | www.husid.com
Sími 899-2910 Staöurinn sem kemur til þín
Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur
14. feb 15. feb Flúðir 16. feb Reykholt
21. feb Laugarvatn 22. feb Árnes 23. feb Borg
28. feb 29. feb Flúðir 1. mars Reykholt
Staöurinn sem kemur til þín Opiö frá kl: 18:00-21:00