Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 Suöurland DV Fæddur Sunnlendingur „Ég held að sambands- menn hafi ekki gáð að sér. Þeir voru auðvitað að fikta við hluti sem Baugur tók svo upp," segir Guðni. Þriöji þingmaður Suðurlands er fæddur á Brúna- stöðum í Hraungerðishreppi. Hann segir Fram- sóknarflokkinn þurfa landvinninga á höfuðborgar- svæðinu ef vel eigi að takast til i næstu kosningum. Hins vegar tilheyri stór hluti Suðurlandsins höfuð- borgarsvæðinu í krafti bættra samgangna. Guðni er andsnúinn Evrópusambandsaðild og vill halda samvinnuhugsjóninni á loft á ný. FRAMSOKNARMENN „Ég þekki Suðurlandið út og inn, fæddur á Brúnastöðum í Flóa. Brúnastaðir eru efst í Fló- anum upp við Hvítá. Við vorum sextán systkinin og erum fimmtán á lífi. Það verður með Ágúst á Brúnastöðum eins og JÓn Arason biskup að eftir fimm hundruð ár verða allir fslendingar út af honum komnir og minni göfúgu móður, Ingveldi Ásgeirsdóttur," segir fyrrverandi land- búnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins. Guðni starfaði hjá Mjólkurbúinu fyrir þing- mennsku og var út um sveitir að vinna með bændum. Hann segir það hafa verið jafnvel skemmtilegra starf en þingmennskuna. Hann segir einnig að það yndislegasta við pólítísk störf sé að kynnast fólkinu í kjördæmunum. „Mér fannst gaman að finna hvað höfuðborgar- búar stóðu vel með mér í mörgum málum sem snéru að sveitinni enda er nú svo komið að flest- ir þéttbýlisbúar eiga sér með einum eða öðrum hætti athvarf í náttúrunni, heilsárshús eða jarð- arskika." Kynnin við umbjóðendurna í landinu virðast þó fjarlægari eftir því sem kjördæmin stækka. „Reyndar eru norðurkjördæmin sennilega hvað erfiðust í þessu tilliti. Suðurkjördæmið er í raun- inni auðvelt yfirferðar. Þrír fjórðu íbúanna eru í innan við kluldaistundar færi ff á höfuðborginni, Suðumesin, Suðurlandsundirlendið og Vest- mannaeyjar." Áfall kosninganna „Framsóknarmenn hafa haft sterka stöðu í öllum landsbyggðarkjördæmum í gegnum tíð- ina. Við höfum það reyndar ennþá, bæði á Norð- urlandi eystra og vestra og Suðurlandi, þótt alls staðar hafi dregið úr í áfalli síðustu kosninga. Sjálft suðurkjördæmið er vítt og breitt og nær nú ffá Hornafirði og heim að Straumsvík. Við höf- um alltaf verið mjög sterkir í hinu gamla suður- kjördæmi og eigum þar gott vígi," segir Guðni og virðist ekki svartsýnn þrátt fyrir slakt gengi Framsóknarflokksins í síðustu kosningum. „Við fórum náttúrulega áberandi verst út úr kosningunum á höfuðborgarsvæðinu og mis- stum okkar fulltrúa í Reykjavík. Á síðustu árum höfum við staðið í innri átökum og verið í vondri umræðu, oft ranglega bendlaðri við spillingu og sitthvað. Þetta hefúr gert það að við höfum misst frá okkur gott fólk," segir Guðni. Hann segir það brýnast fýrir Framsóknarflokkinn að vinna höf- uðborgarsvæðið að nýju. „Ég þykist merkja það að átökin séu að baki og nú taki við tími upp- byggingar. Það eru aðrir flokkar sem eiga í meiri innbyrðis erjum um þessar mundir." Suðurlandið og borgin „Málið er það að Suðurlandið tilheyrir að miklu leyti höfuðborgarsvæðinu, eins og málin hafa þróast. Ég bý á höfúðborgarsvæðinu af því að ég bý á Selfossi," heldur Guðni áfram. Hann segir Framsóknarflokkinn eiga jafnt erindi við þéttbýlisbúann og bóndann. „Við þurfum að átta okkur á því að höfúð- borgarsvæðið nær í raun frá Holtavörðuheið- inni í norðri og alla leið austur á Hvolsvöll. Fólk vill geta búið í dreifbýli eða byggðarkjörnum í sveitinni og sótt flest sem þarf til höfuðborg- arinnar. Núna blasir við að vegurinn um Hell- isheiði verði tvöfaldaður. Þetta er jafnmikið hagsmunamál fyrir Sunnlendinga og það er fýr- ir höfuðborgarbúa og í raun þarf að tryggja að stofnæðar verði tvöfaldar frá Selfossi og alla leið í Borgarnes." „Ég hef meiri áhyggjur af byggðinni sem nær frá Markarfljóti og austur að Hornafjarðarfljóti. Þarna eru dreifðar byggðir á þtjú hundruð laló- metra vegarkafla sem stjórnvöld þurfa að vaka yfir og taka á með." Heiðarlegir framsóknarmenn Guðni lætur ekki skína í að hrakfarir Fram- sóknarflokksins á undanförnum árum valdi honum hugarangri. „Það er öllum hollt að vera í stjórn í einhvern tíma og svo náttúrulega í stjórnarandstöðu. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur haft yfirburðastöðu hér síðustu árin og get- að valið sér annan flokk til samstarfs. Á meðan eiga engir aðrir möguleika. Nú er Sjálfstæðis- flokkurinn bráðum búinn að sitja í tuttugu ár að kjötkötíunum. Við sjáum þess merki að hann á orðið ráðuneytin og verkefnin og situr þarna og drottnar. Þetta er hættuleg vegferð." Guðni kveðst greina þreytumerki hjá gamla samstarfsflokknum og segir að fyrir Framsókn- arflokkinn liggi tækifæri í því að tapa í kosning- um og taka út áfallið. ,yið getum núna hreins- að okkur af því sem reynst hefur okkur erfitt og ég kvíði ekki því verkefhi. Framsóknarmenn eru yfirhöfuð heiðarlegt fólk og við viljum heiðarleg vinnubrögð. Þannig er okkar sigling." Samvinnan Guðni er ánægður með árangur sveitarfélag- anna á Suðurlandi. „Það hefúr verið mikilll upp- gangur í stóru sveitarfélögum kjördæmisins, reyndar sérstaklega í Reykjanesbæ og Árborg þar sem fólksfjölgun hefur verið hlutfallslega mest á síðustu árum. Framsóknarmenn hafa verið í meirihluta í Árborg og auðvitað erum við stolt af okkar verkum þar" segir Guðni. Hann bendir á að sveitarfélögum í örum vexti sé oft þröngur stakkur sniðinn hvað varð- ar tekjustofna. „Stærri sveitarfélögin telja sig gjarnan ráða við stærri og meiri verkefni og telja auðvitað betra að þau séu unnin heima fyrir en á vegum ríkisins. Smærri sveitarfélögin þjást svo af því að þau telja sig ekki fá þær tekjur sem þarf frá einstaklingunum til þess að reka öfluga þjón- ustu. Allir vija öfluga þjónustu." Sveitarfélögin verði hins vegar fyrst og fremst að líta á starf sitt sem samvinnuverkefhi með ríkisvaldinu á hverj- um tíma. Einnig getí sveitarfélög tekið að sér stærri verkefni með því að taka höndum saman við önnur byggðarsamlög um þau verkefni sem hagkvæmt sé að vinna í sameiningu. „Ég held að fátt sé mMvægara en að valdið og ákvarðanatakan færist nær fólkinu og þama er leiðin fær. Auðvitað hafa ekki öll sveitarfélög ráð á að hafa leikskólann gjaldfrjálsan. Þarna er munur á milli sveitarfélaganna. Það þarf engu að síður að hlúa að leikskólum og grunnskól- um." Regnhlífar auðjöfra Og Guðni ræðir áfram um samvinnuhug- sjónina. „Núna þegar við sjáum alla þessa eigna- tilfærslu þar sem tvær valdablokkir eiga nánast alla hlutí fer alþýðan að hugsa sinn gang. Hún vill ekki ávallt vera undir regnhlíf einhverra auð- jöffa. Hún vill almenningseign og þess vegna á samvinnan sennilega meiri vaxtarmöguleika þegar horft er til framtíðar." Guðni segir að samvinnuhugsjónin hafi far- ið illa út úr átökum síðustu áratuga. „Ég held að sambandsmenn hafi ekki gáð að sér. Þeir voru auðvitað að fikta við hluti sem Baugur tók svo upp, eins og til dæmis lágvöruverslanir. Á Sel-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.