Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 34
24 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 Suöurland DV Strumpadeild björg- unarsveitarinna Mannbjargar i Þor- lákshöfn er önnum kafin viö aö safna sér fyrir feröalagi: „Það er búið að vera mikið álag á okkur undanfarna daga," segirÁsgeir Guðmundsson, formaðurbjörgunar- sveitarinnar Mannbjargar í Þorláks- höfn, þegar blaðamaður sótti svet- ina heim á laugardag. Han segir að mikið hafl verið um að fólk hafi lagt á kolófæra vegi, jafnvel á illa búnum smábílum. „í svona tilvikum er fólk nattúrlega að hundsa skýr fyrirmæli lögregluyfirvalda, sem gefin eru út vegna þess að fólki getur hreinlega stafað stórhætta af slíkum ferðalög- um," segir Ásgeir. Hann segir björgunarsveitirn- ar þó aldrei geta brugðið sér í hlut- verk lögreglu og iráleitt sé að ætía sér að heimta björgunarlaun af fólki. Þannig sé lagaramminn hreinlega ekki smíðaður. „Auðvitað eru marg- ir sem taka hjá okkur reikningsnúm- er þegar við höfum losað þá úr prís- undinni, en svoleiðislagað á það til að gleymast þegar heim er komið," bætr Ásgeir við. Strumparnir Þegar komið var í höfuðstöðvar mannbjargar við höfnina í Þorláks- höfn þá var Strumpadeildin svokall- aða önnum kafin við störf og leik. Strumpadeildin er barna- og ungl- ingadeild björgunarsveitarinnar. Hana skipa á þriðja tug ungmenna á aldrinum þrettán til nítján ára. Unglingarnir safna fé með því að safna gosdósum og peningarnir eru ætíaðir í ferðalag sem farið verður á vegum sveitarinnar. Öll kveðast þau ætía að taka þátt í starfi Mannbjarg- ar seinna í lífinu og segja að þau fái góða þjálfún í útivistinni í ferðalög- Strumpadeildin Þegar helstu verkum Strumpadeildarinnar var lokið á laugardag komu krakkarnir sér makindalega fyrir á loftinu. • • „/ svona tilvikum er fóik nattúrlega að hundsa skýr fyrirmæli lögregluyfirvalda, sem gefin eru út vegna þess að fólkigetur hreinlega stafaðstór- hætta afslíkum ferðalögum." IBJORGUNARSVEITINA um með fullorðna fólkinu. Krakk- arnir sjá um að þrífa björgunarsveit- arjeppana og sinna örðum þörfum verkum fyrir sveitina. Nýr fjallajeppi „Fjáröflun Strumpanna er al- veg aðskilin frá okkar fjáröflun," segir Ásgeir. „Okkar fjáröflun fer fyrst og fremst fram með flugelda- sölunni og svo höfum við starfað í gæslu fyrir Herjólf í kring um verls- unarmannahelgi og á örðum dög- um eins og þurfa þykir. Svo tökum við grafir. Það er okkar vinna," bætir hann við. Mannbjörg hefu nýverið tekið á móti nýjum og fullkomnum fjalla- bíl af Nissan Patrol gerð. Bíllinn er sambærilegur við best búnu jepp- ana sem Flugbjörgunarsveitin og aðrar stærri sveitir hafa yfir að ráða. „Reyndar þurfum við minna að sækja á jökla en margar aðrar sveit- ir. Það kemur hins vegar ekki í veg fyrir að þörfin fyrri stórum og vel útbúnum bílum komi upp. Reynd- ar er þetta þannig að eftir því sem almenningur fær sér stærri og bet- ur búin fjallatæki, þá þurfum við að fylgja með í þróuninni til þess að geta sótt fólk þegar hætta steðjar að,“ segir Ásgeir. sigtryggur@dv.is Formaðurinn ÁsgeirGuð- mundsson formaður björgunar- sveitarinnar Mannbjargar undrast að fólk á illa búnum bílum leggi á lokaða fjallvegi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.