Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Qupperneq 37
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 37
Framarar eru á leið í úrslita-
leikinn í Eimskipsbikar-
keppni karla eftir 27-24 sigur
á Akureyringum. Leikurinn
var bráðskemmtilegur og
týpiskur bikarleikur
HLÓGIIAÐ FRÉTTUNUM
UM FRAMLENGINGU
„Ég fann mig vel í seinni hálfleik
en ég var heldur lengi í gang. Það
var pínu óöryggi yflr vörninni en
um leið og sjálfstraustið kom þá fór
þetta að ganga betur," sagði Magnús
Erlendsson sem varði 15 skot, mörg
hver úr upplögðum marktækifær-
um. Hann var maðurinn á bak við
27-24 sigur Framara
Norðanmenn byrjuðu leikinn af
miklum móð og lömdu á borgar-
drengjunum sem halda að mjólk-
in komi frá Mjókurbúi Flóamanna.
Jónatan Magnússon fór þar fremst-
ur í flokki og var gríðarlega gaman
að sjá þann pilt í essinu sínu. Hall-
dór Sigfússon fékk sérstaklega að
kenna á Jónatani og náði sér ekki á
strik í fyrri hálfleik.
Norðanmenn komust í 2-0 og
Framarar voru lengi að átta sig á
hlutunum en þeir komust í 6-4. En
norðanmenn gáfust ekki upp og
breyttu stöðunni í 10-8 sér í vil en
staðan í leikhlé var 13-13. Þegar
fimm mínútur voru eftir fengu tveir
leikmenn að líta rauða spjaldið. Þeir
Andri Berg Haraldsson og Nicolaj
Jankovic fuku útaf. Niolaj leysti inn,
Andri tók á móti, alls ekki neitt gróf-
lega en Nicolaj svaraði með einum
hægri krók. Þetta sáu dómararnir og
ráku þá báða útaf. Skrýtinn dómur
þar sem Andri Berg hreyfði hvorki
legg né lið, tók höggið eins og hann
stæði fyrir utan Sólón í miðbæjar-
slagsmálum. Greinilega drengur
með granítkjálka.
Ekki verður hægt að sjá atvik-
ið í sjónvarpi þar sem RÚV og Stöð
2 voru ekki mættir í húsið. Fannst
greinilega undanúrslitin í bikar-
keppni karla ekki nógu merkileg
keppni til mæta með myndatöku-
mann eða fréttamann. Það lagað-
ist þó í seinni hálfleik þegar báð-
ar stöðvarnar voru mættar til að
mynda og sjá skemmtilegan síðari
hálfleik.
Framarar byrjuðu eins og norð-
anmenn í þeim fyrri. Börðust allir
fyrir einn í vörninni, Magnús fór að
verja og auðveld mörk komu. Þrátt
fyrir það var aldrei langt í Akureyr-
ingana. Magnús varði víti í stöðunni
19-17 og Fram komst í 20-17 með
marki úr hraðaupphlaupi.
Með seiglu og baráttu minnk-
aði Akureyringar muninn í 24-23 en
gríðarleg orka fór í það og Fram var
sterkari í lokinn. Heimamenn höfðu
úr breiðari hópi að velja og því fór
sem fór. 27-24 og Framar biðu nú í
ofvæni eftir því hverjir mótherjarn-
ir yrðu. Þegar svo fréttir bárust að
því að framlengt yrði í Víkinni mátti
heyra hláturinn duna enda ekki á
hverjum degi sem fyrstu deildarlið
hangir í íslandsmeisturunum.
Eins og í síðasta leik
„Þetta var eins og í síðasta leik á
móti þeim. Við vorum komnir með
gott forskot en þá kemur einhver
værukærð yfir okkur og við förum
að missa boltann klaufalega og lát-
um þá keyra á okkur, við þurfum
klárlega að laga þetta fyrir næsta
leik," sagði Magnús markvörður eft-
ir leikinn. Þegar hann var spurður
um óskamótherja sagði hann; „Mér
flnnst það ótrúlegt ef það er jafnt í
Víkinni. En ég get ekki sagt að það
sé einhver draumamótherji. Auðvit-
að kitlar það að endurtaka leikinn
frá 1998, Fram Valur. Ég gæti trúað
að það yrði mögnuð viðureign"
Vissum að þetta yrði erfitt
Stefán Baldvinn Stefánsson
hornamaðurinn knái skoraði 5 mörk
í gær og átti góðan leik sem fyrr. „Við
vissum að þetta yrði erfitt og þetta
var svipað ströggl og á Akureyri en
þetta var týpiskur bikarleikur. Sókn-
arleikurinn hikstaði nokkuð þar sem
oklcur vanntaði nokkra menn, en það
sem bjargaði þessu var að við náðum
að stríða þeim í vörninni."
Sár og svekktur
Jónatan Magnússon var að von-
um svekktur og sár eftir leikinn. „Við
komum til baka í 24-23 en þá eins
og svo oft áður í vetur gerist eitt-
hvað klaufalegt hjá okkur og það
gerðist aftur og enn núna. En jú jú,
menn voru að berjast, annað væri
nú óeðlilegt þar sem þetta eru und-
anúrslit í bikar en því miður þá voru
þeir sterkari. Þeir voru með stóru
skotinn inni og stóru boltana varða.
Nú er ekkert eftir nema að passa
það að falla ekki úr þessari deild en
eðli málsins samkvæmt þá erum við
mjög sárir."
benni@dv.is
Undanúrslit bikarkeppni kvenna fara fram í kvöld.
ALLT EÐA EKKERT
Undanúrslitin í Eimskipsbikar-
keppni kvenna fara fram í kvöld. Vals-
konur fá Fylki úr Arbæ í heimsókn og
á Seltjarnarnesi taka Gróttukonur á
móti íslandsmeisturum Stjörnunar.
Alfreð Finnsson þjálfari Gróttu seg-
ir að stígandi sé búinn að vera í liði
Gróttu og sé hann því töluvert bjart-
sýnn. „Ég tel okkur eiga ágæta mögu-
leika. Fyrirfram er Stjarnan kannski
sigurstranglegri en þær hrjá þó ein-
hver meiðsli og vonandi nýtist það
okkur.
Það er búin að vera þokkalegur
stígandi í þessu hjá okkur og ef mín-
ar stelpur verða ekki tílbúnar í þenn-
an leik geta þær sleppt því að vera
í þessu. Öllum langar að vera með í
bikarúrslitaleik og langflestir leik-
menn mínir hafa verið þar áður. Þær
vita hvað þarf og þetta er síðasta
tækifæri okkar til þess að vinna titil
á leiktímabilinu. Við ætluðum okkur
stóra hluti áður en leiktímabilið byrj -
aði en við höfum ekki alveg náð þeim
markmiðum sem við settum okkur.
Það hafa verið hörkuleikir á milli
þessarra liða í vetur en við höfum
ekki náð að sigra. Vonandi er kom-
ið að okkur að klára þessa leiki. Við
þurfum fyrst og fremst að hafa góð-
an móral í hópnum og ná að fækka
tæknimistökum, þá fer þetta vel,"
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunar, segir íýrri leiki skipta
engu þegar að bikarkeppni kem-
ur. „Þetta er gríðarlega mikilvægur
leikur íyrir bæði lið því það vilja all-
ir komast í höllina. Rakel er enn frá
hjá okkur ásamt Hörpu Eyjólfsdóttur.
Bikarkeppni er alltaf sérstök því hún
hefur sína eigin sál. Það sem áður
hefur gerst í vetur eða síðustu tíma-
bil hefur ekkert að segja þegar í bik-
arkeppnina er komið.
Bikarleikir snúast um dagsformið
og því hafa oft orðið mjög óvænt úr-
slit. Oftar heldur en ekki hefur liðið
sem verður íslandsmeistari ekki náð
að landa bikarnum." vidar@dv.is,
Breytt markmið hjá Liverpool
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool,
viðurkennir að félagið verði ekki
enskur meistari á þessari leiktíð. Hann
segir markmiðið nú sé að tryggja sér
4. sætið en það tryggir sæti þeirra í
meistaradeildinni á komandi leiktíð.
Liverpool er nú I
5. sæti 19
stigum á eftir
Arsenal sem er á
toppi deildar-
innarog þremur
stigum á eftir
erkifjendunum í
Everton sem
sitja í 4. sæti.
„Það ermikil
áskorun að ná að enda í fjórða sætinu.
Við getum gleymt titlinum um sinn.
Mörg af þeim liðum sem eru í
kringum okkur spila vel og það er okk-
ur mikilvægt að halda dampi," segir
Gerrard sem var ánægður með leik
liðsins í markalausu jafntefli gegn
Chelsea um helgina.
Mun Ronaldo leggja skóna á
hilluna?
Meiðslavandræði Ronaldos,
leikmanns AC-Milan, virðast engan
enda ætla að taka og nú er svo komið
að kappinn fhugar að leggja skóna á
hilluna að lokinni þessari leiktíð ef
marka má
fréttirfrá Ítalíu.
Ronaldo
byrjaði
einungis einn
leikfyrirjól, en
útlit var fyrir að
hann væri á
réttri leið fyrir
skömmu er
hann skoraði
tvívegis í 5-2 sigri á Napólí. Einnig lék
hann vel gegn Udinese í vikunni á
eftir en hann þurfti að draga sig í hlé í
hálfleik gegn Siena um liðna helgi,
vegna meiðsla. Miklar líkur eru á því
að hann geti ekki tekið þátt í leikjum
AC-Milan við Arsenal í Meistaradeild-
inni 19. febrúar næstkomandi.
Ronaldo er31.árs.
Lucas valdi Liverpoool fram
yfir inter
Lucas Leiva, miðjumaður Liverpool,
sagði í nýlegu
viðtali að síðasta
sumar hefði
honum gefist
kostur á að fara
tillnterMilanen
valið að fara til
Liverpool í
staðinn. Leiva
sem er21 árs
kom til
Liverpool síðasta sumarfrá Gremio í
Brasilíu fyrir 12 milljónirevra eða 1,2
milljarða íslenskra króna.„Ég var í
góðri stöðu hjá Gremio og hafði náð
árangri, því langaði mig að fara lengra.
Ég hefði getað farið til Spánar og ítalíu
en valdi að fara til Englands. Liverpool
er stórt félag og um leið og ég heyrði
af þeirra áhuga vissi ég hvert ég vildi
fara," segir Leiva. Hann er þess fullviss
að hann sé hjá rétta félaginu jafnvel
þó gengið hafi ekki verið eins og
væntingar stóðu til.„Ég myndi aldrei
velja Interef ég væri í sömu sporum
núna og ég var í sumar," segir Leiva.
Reo-Coker ósáttur vifi leikara-
skap
Nigel Reo-Coker, leikmaður Aston
Villa, hefurfengið sig fullsaddan af
leikmönnum sem gera of mikið úr því
w þegar brotið er
á þeim. Hann
segirsuma
leikmenn
einungis hugsa
um að fá
andstæðinga
sína bókaða og
slíkt sé
óheiðarlegt.
Sjálfur hefur
hann fengið 8 áminningar en segir að
það sé ekki síst vegna leikaraskaps.
„Martin O'Neill vill að ég sé agaðri á
leikvelli og ég er að vinna í því. Það er
hins vegar óþolandi aðfágula
spjaldið (hvert skipti sem ég snerti
leikmann. Leikmenn eru farnir að leika
allt of mikið I von um að fiska gul
spjöld. Þú rétt snertir leikmann og
hann veltir sér í 20 hringi emjandi.
Þetta er erfitt fyrir dómara og
leikmenn ættu að líta í eigin barm,"
segir Reo-Coker