Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Suðurland DV
LANGAFLAMESTU ÁRNAR
í Rangá var slegið íslandsmet í fyrra og eru Ytri Rangá og
Eystri Rangá aflamestu ár landsins. Stefán Sigurðsson, sölu-
stjóri Lax-ár ehf, þakkar öflugu laxeldi árangurinn.
„Við settum íslandsmet í íyrra,"
segir Stefán Sigurðsson, sölustjóri
hjá Lax-á ehf, um veiðina í Rangá
á síðasta ári. „Við slógum öll met á
landsvísu," segir Stefán en Ytri Rangá
og Eystri Rangá voru langaflamestu
laxveiðiár landsins á síðasta ári. Stef-
án segir mikla vinnu liggja að baki
metinu en engan lax var að finna í
ánum fyrir 20 árum.
Ótrúlegar tölur
Á tímabilinu 1. júlí til 10. október
veiddust 7.525 fiskar í Eystri Rangá
og 6.377 í Ytri Rangá en athygli vekur
hversu mikið meira veiðist í Rangán-
um miðað við næstu ár á listanum.
„Næst á eftir kom Kjarrá í Borgarfirði
en hún var með 2.435 fiska," segir
Stefán en fiskarnir 13.902 sem veidd-
ust í Rangánum á síðasta ári voru
veiddir á 34 stangir.
„Við erum með 18 stangir í Eystri
og 16 í Ytri," segir Stefán en mikið er
Frábært umhverfi Náttúran í
kringum aflamestu á landsins
er skartar sínu fegursta.
m* ■
um að vera í Rangánum á sumrin
og þegar mest er að gera eru um 20
leiðsögumenn á svæðinu. „Við erum
með tvö veiðihús, eitt fyrir Ytri og
annað fyrir Eystri. Þau eru bæði um
700 fermetrar á stærð og með 18 her-
bergi," en það er að frátöldum her-
bergjum starfsmanna.
Vel heppnað fiskeldi
Eins og áður kom fram var engan
fisk að finna í Rangá fyrir 20 árum og
því er aílinn öflugu fiskeldi að þakka.
„Það er vel heppnuðu fiskeldi í Rang-
ánum að þakka að þetta eru aflamestu
ár á landinu," segir Stefán sem er í skýj -
unum yfir afrakstrinum. „Þetta hefiir
tekið nokkuð langan tíma en núna er
þetta orðið alveg hreint magnað."
Stefántekurþó fram að Rangáflokk-
ist ekki undir svokallaðar stórlaxaár þó
svo að veiðin sé góð. „Stærstu laxam-
ir sem eru að veiðast hjá okkur eru í
kringum 20 pund," en misjafnt er eft-
ir árum hversu mikið veiðist af smærri
og stærri laxi. „Það var mikið af smá-
laxi í fyrra en þó mjög vænum fiski."
Undirbúningur hafinn
Stefán og samstarfsfólk hans eru
löngu farin að huga að næsta veiði-
tímabili og fer nú undirbúningur að
hefjast af fullum krafti. „Á þessum
tíma er aðallega í gangi sala veiði-
leyfa. Hvað úr hverju fer undirbún-
ingurinn á fullt, þá förum við að
manna húsin með starfsfólki og ráða
leiðsögumenn."
Veiðileyfi í Rangánum kosta allt ff á
10.000 krónum upp í 130.000 krón-
ur að sögn Stefáns og ættu því flest-
ir sem hafa áhuga að hafa efni á því
að komast í ána. Hægt er að fá nánari
upplýsingar um Rangá á ranga.is.
asgeir@dv.is
Minnum á eitt landsins
mesta úrval af skóm,
fatnaði og metravöru
Erum að taka upp mikið af nýjum
vörum á næstu dögum
r
^lnavörubúðin Jgreiðftmörk
- Hveragerði Sími 4834517