Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Qupperneq 70

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Qupperneq 70
70 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 Slöast en ekki síst DV * • • SANDKORN BÓKSTAFLega MJOG SKEMMTILEG- UR FERÐAFÉLAGI Árni Vilhjálmsson var settur í akstursbann en andmælti því með tilvísun í meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Bergur Ebbi, félagi Árna og söngvari Sprengjuhallarinn- ar, aðstoðaði hann við málflutningin en Bergur er menntaður lögfræðing- ur. Eins og DV greindi frá í gær unnu þeir félagar málið og Árni gat því keyrt sáttur í burtu frá réttarsalnum. Hver er maðurinn? „Ég er Ámi litli Vil, einnig þekktur sem Árni Kalli." Hvað drífur þig áfram? „Öll þau skemmtilegu verkefni sem bíða mín á hverjum degi." Hvar ólst þú upp? „Á Tómasarhaganum í Vesturbæ Reykjavíkur, 107. Annars er ég enn þá í uppeldi hjá sjálfum mér og er ég að ljá sjálfum mér ftábær viðhorf og góða afstöðu til lífsins." Hver er eftirminnilegasta bókin sem þú hefur lesið? „Being There eftir Jerzy Kosinski, Glæpur og refsing eftir Dostojevski og Something Happened eftir Joseph Heller." Hefur þú búið erlendis? „Ég hef búið í Berlín, Aberdeen í Skot- landi og Tacoma í Washingtonfylki." Hverír eru eftirminnilegustu tónleikarnir sem þú hefur farið á? „Der Messias í Schauspielhaus í Berl- ín, Beck á Reading-hátíðinni árið 2000 og æfingatónleikar Sprengjuhallar- innar árið 2006." Áttu þér fyrirmynd? „Stundum finnst mér Jón Gnarr frá- bær íyrirmynd. Foreldrar mínir eru líka góðar fyrirmyndir. Pabbi er til dæmis örugglega skynsamasti mað- ur sem ég hef kynnst. Það er næstum því óskynsamlegt hvað hann er skyn- samur." Hvað er leiðinlegasta vinna sem þú hefur verið í? „Það er erfitt að segja. Ég vann eitt sinn við búslóðarflutninga á Vellinum. Það var ekki beint leiðinlegt - reyndar ekki gaman að bera níðþung bandarísk húsgögn. Maður gat hitt alveg fárán- legar týpur í þessari vinnu enda Kan- inn oft á tíðum spaugilegur. Svo var ekki síður gaman að grúska í draslinu þeirra." Hver er uppáhaidsmaturinn þinn? „Fer eftir aðstæðum. Árnaloka er í augum margra besti matur í heimi og mér finnst hún líka mjög góð, sushi, þá sérstaklega sashimi, en það skríður hægt og rólega upp listann hjá mér og svo er soufflé mjög ofarlega á listanum sem uppáhaldsdesert hjá mér. Annars fer þetta mjög mikið eftir því í hvaða stuði ég er. Naut með bernaise er það kannski einn daginn og svo saltfiskur að hættí Spánverja hinn daginn. Ég er mikill gourmet-maður og hef mikla ástríðu þegar kemur að matargerð." Hvenær tókstu bílpróf? „Ég tók bflpróf árið 2005. Ég dúxaði í bóklega prófinu - held ég sé enn á skrá með hæstu einkunn." Af hverju tókstu það svona seint? „Annars vegar af því að ég var kæru- laus og latur og hins vegar af þvi að mér þótti gott að ganga á milli staða. Síðan átti ég nú líka her vina sem vildu h'tíð annað gera en að sækja mig og slcutla mér á milli staða (ég er enn þá að borga skutlin tíl baka en skuldimar voru náttúrulega settar á hóld þar sem ég var settur í akstursbann). Ég þyki mjög skemmtilegur ferðafélagi." Bjóstu við því að vinna málið? „Mér fannst ég hafa mörg mjög góð rök. Málaflutningurinn var að mörgu leyti óaðfinnanlegur en auðvitað veit maður aldrei hvað gerist. Innsæi mitt sagði mér að ég myndi vinna en haus- inn á mér sagði að ég myndi tapa þessu." Hvernig tilfinning var það þegar þið unnuð? „Þetta kom mjög á óvart. Þegar ég sagði Bergi frá þessu varð hann svo æstur að hann hljóp óvart í gegnum glerhurð." Fagnaðir þú sigrinum? „Ég og Bergur ætlum að fara tíl Lanz- arote í mánaðarfrí, sleikja sólina og skrifa texta fyrir reggí-plötu sem við ætlum að gefa vinum og vandamönn- um í jólagjöf um næstu jól." Myndir þú ráða Berg Ebba sem lögfræðing í harðri skilnaðar- deilu? „Ég myndi ráða Berg Ebba í hvaða vinnu eða verkefni sem er enda er hann sigurvegari af Guðs náð. Bergur mætir ekki á svæðið með semingi eða í hálfkáki. Svo ég myndi ekkert hugsa mig tvisvar um þyrfti ég á hjálp hans aðhaida." Hefur þú núna áhuga á því að leggja stund á lögfræðinám? „Annaðhvort það eða verða gourmet- kokkur (en ég er þetta nú þegar að vissu leyti)." Hvað erfram undan? „Ég er að fara tíl Portúgals um næstu helgi með FM Belfast. Því næst förum við til Noregs og svo stefnum við á Tex- as í mars. Fyrir utan þetta mun ég vera með augun opin gagnvart forkastan- legri stjórnsýslu. En ekki hvað!" MAÐUR DAGSINS ■ Verið er að hreinsa út inn- anstokksmuni af skemmti- staðnum Sirkus þessa dag- ana - mörgum bæjarbúum til mikillar mæðu. Heyrst hefur aðSigga Sirkusstjóri þurfi að hugsa um meira en bara innan- stokksmuni því nokkr- ir óprúttn- ir aðilar tengdir samtökum Saving Ice- land eru búnir að gera ítrekað- ar tilraunir til þess að brjótast inn á staðinn og segir sagan að ætlun þeirra sé að mála húsið svart. Það mun vera þeirra leið til að mótmæla niðurrifi í mið- bænum. Það fylgir sögunni að þetta sé gert í óþökk Siggu sem er til í að mótmæla en vill gera það á friðsælan hátt. ■ Sitthvor leilcmaðurinn úr liði Njarðvíkur og Keflavík- ur þeir Guðmundur Jóns- son úr Njarðvíkurliðinu og Arnar Freyr Jónsson Keflvík- ingur voru handteknir undir sunnudagsmorgunn, eða þann áttunda febrúar síðastliðinn, fýrir utan skemmti- staðinn Yello. Þeir félagar voru búnir að vera saman allt kvöldið að skemmta sér og voru með síðustu mönnum út þeg- ar að eitthvað kom uppá milli þeirra sem endaði með því að þeir voru báðir látnir gista fangageymslur eftir heiftarleg átök við hvorn annan og mót- þróa við handtöku. Áður fyrr kom stundum til átaka milli stuðningsmanna liðanna eftir leiki en þetta er sjaldgæfara. um málið á blogg- síðu sinni (og lokaði henni svo í kjölfarið) og Helga Vala sem bryddaði upp á umræðunni á bloggsíðu sinni þann 10. febrúar síðast- liðinn. Helga Vala hefur nú birt langa afsökunarbeiðni í kjöl- far færslu sinnar þar sem hún biðst Vilhjálm, fjölskyldu hans og vini innilegrar afsökunnar. berglind@dv.is „Við látum ekki sjá okk- ur í dómsal nema til að vinna." ■ Bergur Ebbi Benediktsson, söngvari Sprengjuhallarinnar, sem aðstoðaði Árna Vilhjálmsson, félaga sinn, við að tala eigin máli fyrir Héraðsdómi. Það er naumast. „Þar af teng- ist hjónaher- berginu fata- herbergi." ■ Fasteignalýsing á húsi Ólafs F. Magnússonar sem er til sölu. Ekki kemur fram hvort að borgar- stjórafötin hafi verið geymd í fataherberginu. „Ætli það sé ekki The Fast & The Furi- ous." ■ Sveinn Elías EKasson methlaupari spurður um hver sé uppáhaldsmyndin hans. „Við erum öll að sökkva með Villa ■ Nafnlaus borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í samtali við DV í gær um raunir leiðtogans og þann háska sem borgarstjórnarflokkurinn gllmir við. «... kannski hefði ver- ið gott fyrir Vilnjálm p. Vilhjálmsson að geta hringt í 112 til að fápól- itíska ráðgjöf eða hjálp." ■ Björn Bjarnason, dómsmáíaráð- herra á útleið, á heimasíðu sinni um það þegar hann bauðst til að vera við neyðarsímann til að bjarga öðrum pólitlkusum úr krlsu. „Það er miklivægt að muna að ég er starfs- maður Lagastofnunar." ■ Helgi Áss Grétarsson, sérfræðingur við Lagastofnun, í DV. Hann hefur verið duglegur að tjá sig um kvótakerfið en staða hans er borguð af útgerðarmönnum sem eiga fiskinn f sjónum. „Hvað hafa mörg kæru- stupör kynnst þarnaV" ■ Páll Óskar Hjálmtýs- son tónlistarmaður á vfsi.is um fyrirhugað hótel sem á að byggja þar sem skemmtistaðurinn NASA er f dag. Gild spurning. „Það hafa komið upp fjögur mál á tveimur árum. Þau koma öll úr sama félaginu öll úr sama agsskap innan þess félags; ■ Viðar Garðarsson, formaður (shokkísam- bands Islands, í DV um steramál f hokkf. Félagsskap- uráhálum ' fs greinilega. ■ Það virðast margir í þjóðfé- laginu vera haldnir þeirri trú að Vilhjálmur Þ. Viljálmsson sé alkóhól- isti. Kári Sturluson fór offorsi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.