Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 Ættfræöi 2>V TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ UMII.ISHAIiV DAGSINS I 30 Ara afmæli ■ Monika Dabkowska Hjallabraut 35, Hafnarfíröi ■ Sonja Hvidbro Andreasen Hjaröarhlíð 3, Egilsstööum ■ Jóhann Teitur Maríusson Sæviðarsundi 102, Reykjavlk ■ SigþórViðar Ragnarsson Hafnarstræti 29, Akureyri • Ása Dóra Garðarsdóttir Bæheimum, Borgarnesi ■ Sveinn Oddur Sigurðsson Marbakkabraut 15, Kópavogi ■ Atli Björn Eiríksson Hverfísgötu 92, Reykjavlk ■ Eva Björk Sveinsdóttir Þórsvöllum 3, Reykjanesbæ ■ Valgeir Einar Ásbjörnsson Lónsá, Akureyri ■ Þorgeir Símonarson Glitvöllum 19,Hafnarfírði ■ Elva Rósa Skúladóttir Eikjuvogi 29, Reykjavlk m Eiður Magnússon Ormskoti, Hvolsvelli ■ Róbert Bragason Laugavegi 27, Reykjavlk ■ Charlotta Björk Steinþórsdóttir Melabraut29, Seltjarnarnesi • Helga Ágústsdóttir Miðholti 17, Selfossi 40 ára afmæu ■ GarðarTryggvason Hamrahllð 17, Reykjavlk ■ Ingi Berg Ingason Lágholti2, Stykkishólmi ■ Ingibjörg M Ingibergsdóttir Öldutúni 8, Hafnarfírði ■ óðinn Sigtryggsson Hraunbæ 109, Reykjavlk ■ Guðmundur Örn Óskarsson Erluási 7, Hafnarfírði ■ Bergþóra Eirlksdóttir Brunnstlg 3, Reykjanesbæ m Hildur Sigurðardóttir Klappakór ld, Kópavogi m Vigdís Klara Aradóttir Selvogsgötu 20, Hafnarfíröi m Einar Einarsson Kristnibraut 2, Reykjavlk ■ Haraldur Sigurðsson Núpskötlu 2, Kópaskeri m Inga Lára Sigurjónsdóttir Löngumýri 18,Akureyri m Svandis Ragnarsdóttir Reyrengi 1, Reykjavlk m Jón Þorvaldur Heiðarsson Vanabyggð 11, Akureyri 50 ÁRA AFMÆLI ■ Ján Francovic Lækjargötu 10, Siglufirði m Róbert Schumy Þernunesi 13, Garðabæ ■ GunnarHaraldsson Kistuholti 5b, Selfossi m Matthildur Guðmannsdóttir Birkihvammi 11a, Kópavogi m Sigríöur Róbertsdóttir Fjörubraut 1226, Reykjanesbæ ■ Jóhanna Kristinsdóttir Birkivöllum 31, Selfossi m Sigrún Hólmfriöur Pálsdóttir Reykjabyggð 32, Mosfellsbæ m Sveinn Haukur Sigvaldason Vallengi 1, Reykjavlk m Jón Ketilsson Mýrargötu 16, Reykjavlk m Heimir Freyr Hálfdanarson Reynimel 92, Reykjavlk m Guðrún Helga Magnúsdóttir Dalbraut 11, Dalvlk 60 ÁRA AFMÆLI ■ Carol Anne Butler Kirkjubraut 4, Akranesi m Þórdfs Sigurðardóttir Gullberastöðum, Borgarnesi ■ Óskar Magnússon Dalbraut 50, Bíidudal ■ Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir Valiargötu 14, Sandgerði BRYNJA BENEDIKTSDÓTTIR LEIKSTJÓRI, HÖFUNDUR OG LEIKARI Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri, höfundur og leikari, varð sjötug í gær. STARFSFERILL Brynja fæddist að Reyni í Mýr- dal í Vestur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp til sjö ára aldurs en síðan í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1958, stundaði nám við verk- fræðideiid Hf í teknískri teikningu, lauk prófi frá Leiklistarskóla Þjóð- leikhússins 1960, stundaði nám við Látbragðslistaskóla Jacques Lecoq í París 1960-61, sótti leikstjórnar- námskeið hjá British Drama Legue í London 1965-66, við Berliner En- semble og Burgtheater í Berlín, hjá Strehler og Daríó Fó á Ítalíu og leik- stjóranámskeið í Ósló. Þá sótti hún ýmis önnur námskeið, s.s. við Dra- matiska Institutet í Stokkhólmi og Sænska sjónvarpið 1985, hjá Stjóm- unarfélagi fslands 1986 og í ljósa- hönnun í Helsinki 1988. Brynja stundaði teiknistörf hjá Húsameistara ríkisins og á verk- fræðistofu með skólanámi, var flugfreyja hjá Loftleiðum sumrin 1958-63, var fastráðinn leikari og leikstjóri við Þjóðleikhúsið 1962- 92, kenndi stærðfræði við Iðnskól- ann í Reykjavík 1963-65, hefur kennt við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og Leiklistarskóla ríkisins og ýmsa framhaldsskóla um árabil frá 1966, var formaður og framkvæmdastjóri Grímu 1966-67, kenndi leiklist og leildistarsögu við MA 1977-78, var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar 1977-78 og hefur stjórnað leiklistar- starfsemi í Skemmtihúsinu, vinnu- stofu sinni og Erlings Gíslasonar á Laufásvegi 22, ffá 1996. Brynja hefúr leikstýrt á annað hundrað leikstjórnarverkefnum, þar af mörgum frumuppfærslum íslenskra leikrita hjá Þjóðleikhús- inu, Leikfélagi Reykjavflcur, Leikfé- lagi Akureyrar, Nemendaleikhúsinu, Grímu, í fjölda landa, víða um heim, í útvarpi, sjónvarpi, hjá áhugaleikfé- lögum og í framhaldsskólum. Hún hefur farið leikferðir til fjölda landa, m.a. með leikflokkinn Inúk til tut- tugu landa í Evrópu og Mið- og Suð- ur-Ameríku og nú síðustu árin með Ferðir Guðríðar, sem hefur verið flutt á íslensku, ensku, frönsku og þýsku, víðs vegar um Evrópu og Suður- Ameríku. Auk þess hefur henni ver- ið boðið með önnur verk til fjölda landa. Brynja var ritstjóri leikskrár LA, hefur skrifað greinar í blöð og tíma- rit, samið þætti fyrir ríkisútvarp og Stöð 2, samið nokkur leikrit ein og með öðrum, s.s. Inúk, Flugleik og Gosa fýrir Þjóðleikhúsið og leikrit og leikgerðir fyrir áhugafélög, Revíuleik- húsið og fleiri aðila. Hún hefúr skrif- að handrit og leikstýrt kvikmyndinni Inúk - saga úr leikhúsi, gert mynd- bönd og leikstýrði stuttmyndinni Símon Pétur fullu nafni. Brynja var forseti Bandalags ís- lenskra listamanna 1989-91, hefur setið í dómnefndum, m.a. fýrir Leik- listarskóla íslands, Kvikmyndasjóð og Félag kvikmyndaleikstjóra, Lista- hátíð í Reykjavík og leikritavalsnefnd Þjóðleikhússins, hefur setið í stjórn fagfélaga, s.s. FLf og L.Þj. og hefur setið í ýmsum opinberum nefndum, s.s. formaður Barnamenningarsjóðs á vegum menntamálaráðuneytis til 1996. Hún þáði starfslaun lista- manna 1992-94 og var sæmd ridd- arakrossi fálkaorðunnar fyrir störf að íslensku leikhúsi árið 2007. Út hafa komið eftir Brynju bæk- urnar Gosi, útg. 1989, og Brynja og Erlingur fýrir opnum tjöldum eftir Brynju, Erling og Ingunni Þ. Magn- úsdóttur sagnfræðing, útg. 1994. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Brynju er Erlingur Gísli Gíslason, f. 13.3. 1933, leikari. Hann er sonur Gísla Ólafssonar, f. 21.11. 1898, d. 11.4. 1991, bakara- meistara í Reykjavík, og k.h. Krist- ínar Einarsdóttur, f. 26.9. 1899, d. 12.12.1992, húsmóður. Sonur Brynju og Erlings er Bene- dikt, f. 31.5. 1969, leikstjóri, leikari og leikskáld, en kona hans er Char- lotta Böving, f. 15.8. 1964, leikkona og er dóttir þeirra Anna Róshild- ur Benediktsdóttir Böving, f. 27.2. 1999. Stjúpsynir Brynju og synir Er- lings eru Guðjón, f. 15.12. 1955, tölvuverkfræðingur í Svíþjóð en kona hans er Berta Ragnarsdóttir og eiga þau þrjá syni; Friðrik, f. 4.3. 1962, rithöfundur og tónlistarmað- ur og á hann einn son. Foreldrar Brynju: Benedikt Guð- jónsson, f. 3.3. 1909, d. 12.4. 1982, kennari og skólastjóri í Mýrdal og síðar kennari í Reykjavík, og k.h. Róshildur Sveinsdóttir, f. 21.2. 1911, handavinnu- og jógakennari. ÆTT Benedikt var sonur Guðjóns, b. í Auðsholti Jónssonar, b. í Syðra-Seli í Ytrihreppi Jónssonar. Móðir Bene- dikts var Kristjana, leikkona á Eyr- arbakka, systir Olgeirs sögumanns þar. Kristjana var dóttir Jóns, for- manns í Grímsfjósum, sonar Adolfs Petersen, hreppstjóra í Steinakoti. Móðir Jóns var Sigríður Jónsdóttir, ríka af Bergsætt. Róshildur var systir Páls sand- græðslustjóra og Runólfs sand- græðslustjóra, föður Sveins land- græðslustjóra. Róshildur var dóttir Sveins, b. á Norður-Fossi í Mýrdal Sveinssonar, pr. á Ásum Eiríksson- ar. Móðir Sveins á Norður-Fossum var Guðríður, systir Páls málleys- ingjakennara sem fjöldi leikara eru komnir frá, s.s. Róbert Arnfinns- son, Guðrún Ásmundsdóttir og Sigrún Edda, dóttir hennar. Móðir Sveins í Ásum var Sigríður Sveins- dóttir, náttúrufræðings Pálssonar. Móðir Sigríðar var Þórunn Bjarna- dóttir, landlæknis Pálssonar. Móðir Þórunnar var Rannveig Skúladóttir, landfógeta Magnússonar. Bára Agnes Ketilsdóttir HJÚKRUNARFRÆÐINGUR OG FRAMKVÆMDASTJÓRI Bára fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp í Breiðholtinu. Hún var Breiðholtsskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1988, stundaði síðan nám í hjúkrunarfræði við HÍ og laukþaðan prófi 1995 og lauk MA-prófi í mann- auðsstjórnun frá við- sldpta- og hagfræðideild Hf 2005. Þá laukhún prófi sem einkaþjálfari 2007. Bára var hjúkrunar- fræðingur á Landspítala - Háskólasjúkrahúsi 1992- 2007, var þróunar- og gæðastjóri hjá embætti Tollstjórans í Reylqa- vík um skeið, var hjúkrunarfræð- ingur hjá World Class á árinu 2007 en stofhaði eigið fýrirtæki, Gallerí Heilsu, haustið 2007 sem hún starf- rækir ásamt manni sínum. Bára sat í stjórn Félags maraþ- onhlaupa 2004-2007, var formaður Maestro, Félags meistara- nema í viðskipta- og hag- fræðideild HI2002-2003. Hún er mikill áhugamaður um hlaup og fjallgöngur. FJÖLSKYLDA Maður Báru eru Örn Gunnarsson, f. 9.8.1961, framkvæmdastjóri Amar- seturs. Sonur Báru og Amar er Hilmir Arnarson, f. 20.1. 2005. Sonur Báru frá fyrra hjónabandi er Amar Jóns- son, f. 16.11.1989. Stjúpsonur Bám og sonur Arnar er Gunnar Máni Arnarson, f. 27.8. 1992. Foreldrar Bám em Ketill Arnar Hannesson, f. 4.12.1937, hagfræð- ingur í Reykjavík, og Auður Ásta Jónasdóttir, f. 21.3.1939, húsmóðir. Bára verður á Tenerife með stór- fjölskyldunni á afmælisdaginn. Hjálmar Heimisson ATVINNUBÍLSTJÓRI Á FÁSKRÚÐSFIRÐI 40 Hjálmar fæddist á Fáskrúðsfirði, ólst þar upp og hefur átt þar heima lengst af. llann var í Barnaskóla Fá- skrúðsfjarðar. Hjálmar fór fimm- tán ára til sjós og var þá fyrst á togaranum Kambaröst frá Stöðvarfirði en var síðan á ýmsum bátum og togurum frá Austfjörðum. Hann var til sjós í tuttugu og tvö ár en kom endanlega í land árið 2004. Þá hóf hann akstur, var bílstjóri á námutrukk og hefur síðan ekið olíubflum, nú hjá Olíudreifingu ehf. FJÖLSKYLDA Eiginkona Hjálmars er Krist- ín Hanna Haulcsdóttir, f. 6.5.1973, verkakona á FásJcrúðsfirði. Börn Hjálmars og Kristínar Hönnu em Bryndís Hjálmars- dóttir, f. 16.12.1992; Áslaug Stefanía Hjálmarsdóttir, f. 19.2. 2001; Fannar Haukur Hjálmars- son,f. 6.11.2002. Hálfbróðir Hjálmars, sam- feðra: Albert Svanur Heimis- son, f. 1965, skrifstofumaður í Reykjavík. Alsystkini Hjálmars em Jónína Heimisdóttir, f. 1969, verkakona á Fáskrúðsfirði; Heimir Ástþór Heimisson, f. 1980, starfsmaður IKEA í Kaup- mannahöfn; Eydís Ósk Heimis- dóttir, f. 1984, nemi í Kaupmanna- höfn. Foreldrar Hjálmars eru Heimir Hjálmarsson, f. 8.3.1946, verka- maður á Fáskrúðsfirði, og Áslaug Jónsdóttir, f. 10.12.1948, verkakona á Fáskrúðsfirði. Hjálmar verður í vinnunni á af- mælisdaginn. Róbert Bragason fékk fyrsta aldursbömmerinn tíu ára: 0 Óþægileg áminning Róbert Bragason, svifflugmaður og áhuga- ljósmyndari, er þrítugur í dag. f tilefni dagsins ætlar Róbert að bjóða sínum nánustu f kaffi um helgina og bjóða upp á smárétti og jafnvel tvær tertutegundir. „Ég er nú ekki mikið afmælisbarn og held alla jafita ekki upp á afmælið," segir Róbert sem ákvað þó að slá til þetta árið enda áfanginn stór. „Mér finnst afmælisdagar vera óþægileg áminning um hvað tíminn líður hratt. Þegar Róbert er beðinn um að rifja upp eftir- minnilegasta afmælisdaginn segir hann: „Ætli það hafi ekJd verið þegar ég var tíu ára. Þá fékk ég fyrsta aldursbömmerinn, fékk hálfgert sjokk við að vera kominn upp í tvær tölur og áttaði mig þá í fýrsta skipti á að ég væri dauðlegur," segir Róbert dramatískur þó að hæðnin leyni sér nú ekld. Hann er alveg með það á hreinu, hann Ró- bert, hvað hann langar helst að fá í afmælisgjöf. „Prófessjonal ljósmyndavél en ég hef mjög gam- an af því að taka ljósmyndir úr lofti þegar ég er í svifflugi," segir Róbert sem er greinilega ævintýra- maður mildll en á döfinni hjá honum er að fara í fallhlffarstöklcskóla í Bandaríkjunum. DV óskar Róberti til hamingju með daginn. Þrítugur í dag Róberti þykja afmælisdagar óþægileg áminning um hvað tfminn Ifður hratt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.