Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2008, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008
Frittir DV
Græn orka í
Washington
Össur Skarphéðinsson iðnað-
arráðherra tekur þátt í alþjóð-
legri ráðstefnu Bandaríkjastjórn-
ar um endurnýjanlega orku í
vikunni. Ráðstefnan WIREC2008
hefst í Washington í dag og lýkur
á fimmtudag. Þar koma saman
ráðherrar, fulltrúar almanna-
samtaka og fyrirtækja til þess að
ræða leiðir og samstarf um að
auka hlut endurnýjanlegrar orku
í orkubúskap heimsins og finna
lausnir sem ganga í þá átt fyrir
einstök svæði og lönd. össur
fundar einnig sérstaklega með
Alexander Karsner, aðstoðar-
orkumálaráðherra Bandaríkj-
anna.
Vatnstankar í
Helguvík
Vatnsfyrirtækið Iceland Glob-
al Water ehf. hefur sótt um 3000
fermetra lóð undir vatnstanka í
Helguvík. Erindið var borið upp í
atvinnu- og hafnarráði í Reykja-
nesbæ f síðustu viku. Tankarn-
ir yrðu í höfninni við Helguvík.
Fyrirtækið hyggst nýta aðstöð-
una fyrir vatnsútflutning til Kan-
ada en vatninu yrði þá
W dælt úr tönkunum í skip.
Fyrirtækið hefur fengið
vilyrði um lóð í Vest-
mannaeyjum en einn
af forsvarsmönnum
vatnsfyrirtækisins er
HaO Guðjón G. Engilberts-
— son. Atvinnu- og hafn-
arráð hefur óskað eftir
frekari upplýsingum
um málið.
Burt með
transfituna
Neytendasamtökin fagna
þingsályktunartillögu um há-
marksmagn viðbættra trans-
fitusýra í matvælum.
Samtökin sendu erindi
til umhverfisráðherra fyrir
ári þar sem hann var hvattur
til að teknar yrðu upp sömu
reglur og í Danmörku. Erind-
ið var ítrekað fyrir ári en auk
þess fékk heilbrigðisráðherra
það inn á borð til sín. Lög um
hámarksmagn transfitusýra
í matvælum tóku gildi í Dan-
mörku fyrir fimm árum.
Verði tillagan samþykkt
verður sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra falið að
undirbúa reglur um hámarks-
magn viðbættra transfitusýra
í matvælum en þær geta verið
skaðlegar séu þær innbyrtar í
miklu magni.
Foreldraverðlaun
íþrettánda sinn
Foreldraverðlaun Heimilis og
skóla verða veitt í þrettánda sinn
15. maí og óskar félagið eftir til-
nefningum.
1 fýrra hlaut Iþróttafélagið
Grótta á Seltjarnarnesi Foreldra-
verðlaunin fýrir samræmingu
skóladags og æfingatíma í sam-
vinnu við bæjaryfirvöld, foreldra
og grunnskóla Seltjarnarness.
Leitað er eftír tílnefningum
um einstaklinga, félög, fyrirtæki,
stofnanir, sveitarfélög eða skóla
sem stuðlað hafa að árangursrík-
um leiðum við að efla samstarf
foreldra og kennara, heimilis og
skóla.
Á heimasíðunni Bathmate.is er hægt að kaupa samnefnt typpastækkunartól. Eigandi
síðunnar lofar að endurgreiða þeim sem ekki er ánægður með árangurinn. Læknar og
kynfræðingar segja tækið ekki líklegt til að virka en engu að síður segja forsvarsmenn
fyrirtækisins að salan sé gríðarlega mikil og lagerinn nánast tómur.
REÐURSTÆKKUNAR-
TÓL R0KSELST
„Lagerinn er að verða búinn, ætli það
séu nema þrjú stykki eftir" segir Ág-
úst Smári, forsvarsmaður Bathmate
á Islandi sem selur reðurstækkun-
artól, sem vill ekki koma fram und-
ir fullu nafni vegna viðskiptanna.
Bathmate er kynnt sem byltingar-
kennt reðurstækkunartól og hófst
sala þess nýverið hér á landi á vefsíð-
unni bathmate.is.
Á vefsíðunni er viðskiptavinum
heitíð sex sentímetra reðurlengingu
eða meira. Þar eru birtar frásagnir frá
meintum viðskiptavinum sem lýsa
árangursríkri meðferð með tólinu.
Notendum er ráðlagt að nota tækið í
15-20 mínútur á dag á sex vikna tíma-
bili. „Þetta hljómar kannski ótrúlega
en er alveg satt," segir á vefsíðunni.
Lofar endurgreiðslu
Aragrúi tölvupóstskeyta er sendur
út á Netinu, þar sem boðið er upp á
hinarýmsu pillur sem eiga að stækka
kynfæri karlmanna. Þess háttar pill-
ur virka ekki og hafa margir fjölmiðl-
ar greint frá skaðsemi þeirra. Ágúst
Smári heldur því fram að þrýstings-
pumpur séu eina lausnin til lenging-
ar. „Við bjóðum upp á fulla endur-
greiðslu ef fólk er óánægt með þetta,
en þá er líka miðað við að menn klári
það sex vikna prógramm sem við
mælum með," segir Ágúst.
Reðurstækkunardælur hafa lengi
verið til en segir Ágúst þær líkleg-
ar til að aflaga á mönnum liminn
vegna mikils þrýstings. Það sé ekki
raunin með Bathmate, þar sem vatn
í hólknum komi í veg fyrir þess háttar
meiðsli og slys. Ágúst segir vinsældir
tækisins hafa komið honum á óvart
og að eins og staðan sé í dag sé ekki
hægt að anna eftírspurn. „Það er von
á meiru í lok vikunnar svo við ör-
væntum ekki."
Ekki fengust nákvæmar upplýs-
ingar hjá Bathmate.is um sölu á tól-
inu, en þegar spurt var hvort um væri
að ræða tíu eintök eða meira var
svarið „margfalt, margfalt meira".
Stækka ekki til frambúðar
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir,
kyn- og hjúkrunarfræðingur,
sagði í viðtali við DV að hún
hefði ekki tíma til þess að
skoða málið til hlítar. „En
verksins. Limirnir á mönnum lengd-
ust að meðaltali um 0,3 sentímetra,
sem verður að teljast ansi lítíð. Hins
vegar voru um 30 prósent mannanna
afar sátt við meðferðina, sem lækn-
ar sögðu vera vegna „lyfleysuáhrifa"
tækisins.
dori@dv.is, baidur@dv.is
■JSt
POSITION i
TO BODY P
THIS WAY .,
UP j,
«
um
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kyn- og
hjúkrunarfræðingur Efastumað
undirþrýstingspumpur virki til frambúðar.
^ Bathmate Umboðsaðili ábyrgist
endurgreiðslu bæti kúnninn ekki
við sig nokkrum sentímetrum.
reynsla mín er sú að ef þetta hljóm-
ar of gott til að vera satt er það lík-
lega rétt." Jóna tók það þó sérstaklega
fram að undirþrýstingspumpur, eins
og Bathmate, myndu ekki stækka
liminn til frambúðar og að loforð
um endurgreiðslu væri þekkt bragð
í markaðssetningu því ólíklegt væri
að einhver myndi leggja í það að
skila svona apparati og þar
með viðurkenna vonbrigði
sín.
Hjá skrifstofu Land-
læknisembættisins
kom fram að land-
læknir vildi ekki tjá
sig um reðurstækkar-
ann en að embættíð
myndi fylgjast með
framgangi mála.
Bættu við sig 0,3
sentímetrum
1 könnun sem birt
var í the British Journal
of Urology Internation-
al árið 2006 kom fram að
slíkar pumpur væru ekki lík-
legar til þess að bera árangur.
I rannsókninni var fylgst með
hópi af mönnum sem allir töldu
sig þurfa á slíkum pumpum að
halda. Þeir notuðu pumpurnar þri-
svar í viku í 20 mínútur í senn í hálft
ár. Það tæki sem þeir notuðu var ekki
keypt í hjálpartækjaverslun
heidur var það
sérhannað "
vísinda-
mönn-
til
I
Framkvæmdastjóri SMÁÍS ánægöur með niðurstöðuna i DC++-málinu:
Níu dæmdir fyrir ólöglegt niðurhal
Sáttur Snæbjörn er sáttur með niðurstöðuna þótt hann vildi fá þyngri refsingar.
„Þetta er hrein og klár niðurstaða
um að dómstólar telja þetta ólög-
legt," segir Snæbjörn Steingrímsson,
framkvæmdastjóri Samtaka mynd-
rétthafa á Islandi (SMÁÍS), um dóm
í DC++-málinu svokallaða.
Málið fjallaði um ólöglegt nið-
urhal á netinu í gegnum skráa-
skiptaforritið DC++ sem þúsundir
Islendinga notuðu um tíma. I gær
var kveðinn upp dómur í málinu
en þá voru níu einstaklingar sak-
felldir fyrir aðild að málinu. Sá sem
fékk þyngsta dóminn, Bjarki Magn-
ússon, fékk 30 daga skilorðsbundið
fangelsi en refsingu yfir hinum átta
var frestað haldi þeir almennt skil-
orð næstu tvö árin. Þeir þurfa sam-
tals að greiða 2,6 milljónir í sakar-
kostnað.
Málið á upphaf sitt að rekja til
ársins 2004 þegar lögreglan gerði
húsleit hjá mönnunum og gerði
mikið magn tölvubúnaðar upptækt.
Var mönnunum ekki gerð þyngri
refsing meðal annars á þeim grund-
velli að rannsókn málsins tafðist
mikið. Bjarki hlaut þyngsta dóminn
en hann hafði veg og vanda af því að
setja á laggirnar tengipunktinn Ás-
garð á vefsvæðinu dci.is. I gegnum
tengipunktinn gátu menn sótt og
deilt höfundarréttarvörðu efni sín á
milli en hann hýsti vefinn.
Snæbjörn segir að niðurstaðan
sé rétthöfum í hag en viðurkennir þó
að það séu viss vonbrigði að mönn-
unum hafi ekki verið gerð þyngri
refsing. „Að vissu leyti eru von-
brigði með refsinguna en við viss-
um alveg fyrirfram að það yrðu ekki
þungar refsingar í þessu máli vegna
þess hve rannsóknin tók langan
tíma. Þetta er prófmál en það er nið-
urstaðan sem skiptir okkur mestu
máli," segir Snæbjörn en dómur-
inn féllst bæði á bein brot og hlut-
deildarbrot á höfundarréttarlögum.
Ákæra hefur verið gefin út á hendur
Svavari Lútherssyni, forsvarsmanni
torrent.is, en það mál verður þing-
fest í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Því máli þykir svipa til málsins sem
dæmt var í f gær. einar@dv.is