Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2008, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2008, Qupperneq 11
■ÞRIÐXUDlAGuk Í'tóXtólÖbá.Æ DV Fréttir KOLBEINN ÞORSTEINSSON bladamadur skrifar: Leynirýmið sem breska rannsókn- arlögreglan uppgötvaði í síðustu viku kemur heim og saman við frá- sagnir fjölda fyrrverandi vistmanna á barnaheimilinu í Haut de la Gar- enne á Jersey. Þar er að finna stóra steinsteypta þró og segja mörg fórn- arlambanna að þeim hafi verið gert að dúsa þar í ísköldu vatni og þurftu síðan að þola misnotkun og ofbeldi af hálfu starfsfólks stofnunarinnar og utanaðkomandi. Lögreglan hef- ur fundið þijár leyndar vistarverur enn sem komið er og fann hlekki í einni þeirra. Ekki hefur fengist stað- fest að þeir tengist málinu á nokk- um hátt. Sá óhugnanlegi grunur hef- ur læðst að lögreglunni að undir byggingunni geti verið að finna net leyniherbergja og býr hún sig undir viðamikla leit á sama tíma og þræð- ir rannsóknarinnar leiða hana víðar um eyjuna. Öryggisdeild og góðgerðarsamtök Áður hefur verið upplýst að rannsókn lögreglunnar beinist að samtökunum Sea Cadets á Jersey. Sea Cadets em sjálfboðaliðssam- tök fyrir rmglinga á aldrinum 12 til 18 ára og em með starfsemi um allt Bretíand. Sea Cadets vom með að- stöðu í Haut de la Garenne og við upphaf rannsóknarinnar árið 2006 hnaut lögreglan um tengsl fóm- arlamba við samtökin. Á heima- síðu samtakanna segir í orðsend- ingu Melanie Bowran, talsmanns þeirra, að þau hafi veitt lögreglunni fullt liðsinni við rannsóknina und- anfama mánuði. Að sögn Bowran leika samtökin lítinn þátt í rann- sókninni og hún snúi ekki að sam- tökunum heldur einstaklingum sem tengdust þeim. Greenfield-öryggisdeildin á eynni er einnig undir smásjá lög- reglunnar. Öryggisdeildin er hugs- uð fýrir unglinga og böm sem glíma við hegðunarvandamál og hafa gert tilraun til sjálfsmorðs. Grunur um illa meðferða bama á stofnuninni er ekki nýtilkominn. Á síðasta ári var Simon Bellwood félagsráðgjafi rekinn úr starfi við stofnunina eftir að hafa gagnrýnt þeir aðferðir sem tíðkuðust þar innan veggja. Að sögn Bellwoods vom börn, niður í ellefu ára aldur, sett í sól- arhrings einangrun eða lengur og hann áleit að bömum sem vist- uð vom á stofnuninni væri hætta búin vegna skorts á meðferðarúr- ræðum, reynsluleysis starfsfólks, einangrunar frá umheiminum og „arfleifðar ótta" sem kom í veg fyrir að starfsfólk tjáði sig um ástandið. Bellwood sagði að hann hefði verið „gagnrýndur fyrir að eiga erfitt með að umbera refsingu" þegar böm vom beitt henni. Yfirgaf staðinn í öngum sínum Christine Bowker var ung kona þegar hún vann sjálfboðavinnu á Haut de la Garenne um tveggja mánaða skeið árið 1972. Hún sagði að starfsfólk stofnunarinnar hefði verið „ískalt" og að börnin hefði skort ástúð. Hún sagði í viðtali við BBC að hún hefði yfirgefið staðinn vegna ótta við hið „illa" sem þar við- gekkst. Að sögn Bowker var engu „Efbörnin slökuðu á eða brugðust við ástúð minni sendu þeir [starfs- mennirnir] börnunum og mér illt augnaráð og börnin skriðu aftur inn í skelsína." líkara en enginn væri við stjóm á heimilinu, aðeins sex eða átta starfsmenn sem varla sögðu „siðað orð" og hefðu verið „kaldranalegir og yfirvegaðir". „Þeir hundsuðu mig alfarið og töluðu ekki mildð saman. Þeir vom sjúklegir að sjá - starandi augu og strekktir á taugum. Þetta var óhugn- anlegt," sagði Christine Bowker. Hún varð ekki vitni að misnotkun, en skynjaði að börnin vom óttaslegin. „Ef börnin slökuðu á eða bmgðust við ástúð minni sendu þeir [starfs- mennimir] bömunum og mér illt augnaráð og bömin skriðu aftur inn í skel sína." Þegar Bowker reyndi að segja fólki frá grunsemdum sínum mætti henni „veggur þagnar" og hún yfirgaf stofnunina í öngum sín- um eftir tveggja mánaða dvöl. Feiti maðurinn I fyrradag staðfesti lögreglan að einn þeirra sem nefndur hefur ver- ið til sögunnar sem níðingur í mál- inu hafi verið mikils metinn stjóm- málamaðurog formaður nokkurra nefiida. Þar er um að ræða Wilfred Krichefski, sem einnig var kallaður Feiti maðurinn, en hann lést árið 1974. Að sögn eins fórnarlambs heimsótti hann Haut de la Garenne reglulega, til að beita drengi kyn- ferðislegu ofbeldi, allt til dauðdags. Fómarlambið staðhæfir að sér hafi verið nauðgað ítrekað af Krich- efski á bamaheimilinu árin 1962 og 1963. Fómarlambið, karlmað- ur á sexmgsaldri, sagði að í hverj- um mánuði hefði hann og annar drengur verið færðir í bakherbergi og þeir misnotaðir af tveimur karl- mönnum. Hann sagði að við þessi tækifæri hefði hann verið vakinn af umönnunaraðila með orðunum: „Það er einhver sem vill hitta þig." Hann sagði geðlækni, einum manna, frá ofbeldinu á sínum tíma og fékk þau svör að ef hann viðraði þessar ásakanir aftur yrði hann lok- aður inni á geðsjúkrahúsi. Gæta flóttaleiða Einhveijir núlifandi eistakling- ar úr stjómkerfi Jersey-eyjar liggja undir grun um aðild að ofbeldinu, en lögreglan hefur ekki, af lagaleg- um ástæðum, viljað gefa upp nöfn þeirra. Enn sem komið er hefur einn fýrrverandi starfsmaður Haut de la Garenne verið ákærður og vaktar lögreglan flugvöll og hafnir til að koma í veg fýrir flótta grun- aðra. Lögreglan telur sig hafa vissu fyrir því að einn fyrrverandi starfs- manna bamaheimilisins hafi hót- að fyrrverandi vistmanni til að letja hann til að samvinnu við lögregl- una. Lenny Harper, sem fer fyr- ir rannsókninni, sagði að hart yrði tekið á öllum þeim sem reyndu að hindra framgang réttvísinnar. Talið er að rannsókn málsins geti tekið allt að einu ári. í dag rennur upp ögurstund í slagnum um útnefningu demókrata- flokksins til forsetaframboðs í Bandaríkjunum. Hillary Clinton stóð í ströngu um síðustu helgi. f dag fara fram for- kosningar í Texas og Ohio og Hill- ary hefur róið lífróður í baráttu fyr- ir útnefningu demókrataflokksins til forsetaframboðs. Hún jós tugum milljóna króna í auglýsingaherferð, enda talið að úrslit í þessum tveimur fylkjum muni ráða framtíð hennar í kosningaslagnum. Kosningavél Hill- ary fór svo mikinn að þess hafa ekki sést dæmi síðan í upphafi baráttunn- ar fyrir tveimur mánuðum. Kosningastjórar Hillary hafa herjað á keppinaut hennar, Barack Obama, í málefnum sem tengjast öllu frá reynsluleysi hans í utanrík- ismálum til umdeildra tengsla hans við lóðasölu í Chicago. Innan her- búða Hillary ríkir enginn uppgjafar- andi og greinilegt að ef hennar bíður ósigur mun það ekki gerast án bar- áttu. Samkvæmt könnunum í gær hafði Hillary naumt forskot á Obama í Ohio og örlítið minna fylgi en hann í Texas. Það er mikil breyting frá því sem var fyrir um mánuði, en þá var hún með traustvekjandi forskot í Ohio og einhverju minna í Texas. En sú fullvissa að Hillary myndi vinna útnefningu demókrataflokksins sem eitt sinn lifði með stuðningsmönn- um hennar hefur undanfarið vikið fyrir voninni einni saman. Slæmur fyrirboði Auk aukins krafts í auglýsinga- áróðri höfðaði Hillary til nafntog- aðra demókrata. Á meðal þeirra eru leikarahjónin Ted Danson, sem gerði garðinn frægan í sjónvarps- þáttunum um Staupastein, og Mary Steenburgen. Einnig leiðaði hún ásjár Jacks Nicholson sem svaraði kallinu með því að gera auglýsingu fyrir hana þar sem hann skírskot- aði til kvikmyndarinnar A Few Good Men og sagði að það væri fátt kyn- þokkafyllra en að heilsa kvenkyns yfirforingja. Kosningastjórn Hillary segir að sextíu prósent kjósenda í suður- hluta Texas séu konur af rómönsk- um uppruna, og þangað muni Hill- ary sækja stuðning. En í San Antonio upplifði Hillary slæman fyrirboða þegar hún og Obama héldu kosn- ingafund á sama tíma á föstudags- kvöldið. Á sama tíma og átta þúsund manns sóttu fund Obama komu ein- ungis um tvö þúsund manns á fund Hillary. Obama hefur tryggt sér 1.385 kjörmenn, en Hillary Clinton 1.276 og 370 kjörmenn eru í boði í Tex- as og Ohio og tveimur smáfylkjum á Nýja-Englandi; Rhode Island og Vermont. Hillary Clinton nægir ekk- ert minna en sannfærandi sigur ef henni á að takast að jafna forskot Obama. Ef eitthvað er að marka spár verður mjótt á mununum og ef Hill- ary innbyrðir ekki afgerandi sigur er líÚegt talið að Obama fari þess á leit við hana að hún stígi til hliðar. Nýr ráðsmaður í Kreml Vestrænir eftirlitsmenn sem fylgd- ust með forsetakosningum í Rúss- landi segja að framkvæmd hennar hafi verið stórlega ábótavant. Engu að síður hafa Evrópusamband- ið, Þýskaland og Frakkland óskað Dmitry Medvedev til hamingju með sigurinn og létu í ljósi von um bætt samband. Medvedev hlaut um sjötíu prósent greiddra atkvæða, en sá sem næstur kom, Gennady Zyuganov, fékk tæplega átján prósent. Að sögn fréttastof- unnar Itar-Tass hefur Zyugan- ov heitið því að leggja fram kæru vegna kosningasvindls. Minnistöflur Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is FOSFOSER MEMORY Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.