Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2008, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2008, Síða 23
. DV IpjinHprfiúZ ÞRIQJUDAGUR 4. MARS 2008 23 komu að Tónlistarhúsinu og sjá til þess að minnsta kosti hluti af bílageymsl- unni, sem verður undir svæðinu, verði tilbúinn." Helgi ítrekar mikilvægi þess að umhverfið líti sem best út og göngu- götur og torg verðir tilbúin þegar húsið verður vígt í desember 2009. Óttast ekki samdrátt Aðspurður segist Helgi ekki óttast verktöf vegna þess samdráttar sem hefur gert vart við sig í samfélaginu. „Þetta mun ekki hafa áhrif á Tónlistar- og ráðstefnuhúsið. Það er í sjálfu sér al- veg fast sett. En hugsanlega getur þetta haft áhrif á aðra þætti á þessu svæði. Við vitum bara ekki hversu mikil þau verða. En þetta er til góðs og ills. Það verður væntanlega meiri samkeppni á verktakamarkaðinum. Minni þensla þýðir í rauninni lægri stofnkostnað fyrir okkur. Þetta er langtíma verkefni og öll okkar plön taka mið af því að ís- lenskt efnahagslíf fer alltaf upp og nið- Geirsgata í stokk Framkvæmdir á Austurbakkanum eru á góðu skriði. En það er ákveðin óvissa sem Portus-menn glíma við. Upp komu hugmyndir um að leggja Geirsgötuna í stokk. Færa umferðina neðanjarðar og setja gangandi um- ferð í forgang. Svo stór mál taka tíma í borgarskipulagi og því getur orðið þó nokkur bið á þessu máli til viðbót- ar. „Við höfum verið í svolitlum hæga- gangi frá því í haust. Borgin hefur tek- ið vel í þetta mál og ég held að það sé þverpólitísk samstaða um það. Það eru líka að vakna ný viðhorf varðandi umhverfis- og samgöngumál - bílnum er ekki gert eins hátt undir höfði," seg- ir Helgi. Tónlistarhúsið tengist miðborginni Margir líta svo á að Geirsgatan skeri höfnina frá miðborginni. Þegar svo Tónlistarhúsið er komið og öll hin starfsemin sem þarna á að vera mun fólk vafalítið finna meira fyrir því. Helgi nefnir að öll umferð um Geirsgötuna sé í rauninni flutningur milli austur- hluta borgarinnar og vesturhluta borg- arinnar. Þessi umferð á hvorki upphaf sinn né endi hér í miðborginni. Þetta er bara gegnumakstur. Þessu viljum við breyta. Ef meginþunginn verður færður í stokk þýðir það að Tónlist- arhúsið muni tengjast miðborginni sterkari böndum." Það verður spenn- andi að fylgjast með ffamkvæmdun- um á Austurbakka sem eru þær um- fangsmestu í miðbæ Reykjavíkur um þó nokkurt skeið. ' V TEIKNINGAR AF SVÆÐINU Þegar svæðið verður fullbyggt er Ijóst að ásjóna miðbæjarins verður allt önnur,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.